Fréttablaðið - 26.09.2012, Síða 22
KYNNING − AUGLÝSINGSvanurinn, fyrir umhverfið & heilsuna MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24,
s. 512 5000 | Umsjónarmenn auglýsinga:
Elsa Jensdóttir elsaj@365.is sími 512 5427
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
HVAÐ ER SVANSMERKI?
Svansmerkinu er ætlað að
leiðbeina norrænum neytendum
og innkaupafólki hjá fyrirtækjum
þannig að þeim gefist raunveru-
legur kostur á að kaupa um-
hverfisvæna vöru og á þann hátt
leggja sitt af mörkum við að bæta
umhverfið. Jafnframt er markmið-
ið að hvetja framleiðendur til að
framleiða umhverfisvænar vörur.
Í dag eru um 60 mismunandi
skilyrði og fjöldi leyfishafa eykst
stöðugt. Alls hafa verið gefin út
um 2010 leyfi fyrir meira en 6000
vörur. Svansmerkið er opinbert
umhverfismerki Norðurlanda.
Markmiðið er valfrjálst norrænt
umhverfismerki, sem stuðlar
að því að minnka það álag sem
dagleg neysla veldur umhverfinu.
Starfsmenn Svansmerkisins kanna
umhverfisáhrif tiltekinnar vöru
og þjónustu í gegnum allan feril
hennar frá hráefni til úrgangs.
Gerðar eru strangar loftslags- og
umhverfiskröfur en einnig kröfur
um notagildi og gæði.
Ég þekki vel til Svansmerkis-ins og mér er kunnugt um að almenningur gerir það
líka. Þetta merki er búið að skapa
sér sess, enda fyrsta merki sinn-
ar tegundar. Ég vel Svansmerkt-
ar vörur vegna þess að þá veit ég
fyrir víst að þær eru umhverfis-
vænni en aðrar sambærilegar
vörur,“ segir Siv.
„Mig minnir að Svanurinn
sé fyrsta merki sinnar tegund-
ar sem er án landamæra. Nor-
ræna skráar gatið er hins vegar
fyrsta hollustumerkið sem fer
yfir landamæri í matvælaiðnaði.
Norðurlöndin öll hafa notað þessi
merki og sama hugmyndafræð-
in er á bak við þau. Þetta eru um-
hverfisvænar vörur sem stand ast
gæðavottun,“ segir Siv enn frem-
ur.
„Ég reyni að vera umhverfis-
væn og þegar ég sé Svansmerkta
vöru tek ég hana fram yfir aðrar.
Ég treysti þessu merki, enda
áreiðanleiki á bak við það. Ég hef
f lokkað til endurvinnslu í gegn-
um árin og fer reglulega í Sorpu.
Ég fer alltaf með dagblöð í þar til
gerða gáma og f löskur og gler í
endurvinnslu. Þar fyrir utan hef
ég farið með öll föt sem ég er hætt
að nota til Hjálpræðishersins og
vona að þau endurnýtist með
þeim hætti.
Ég hef lengi verið meðvituð um
umhverfisvernd og tel að f lestir
Íslendingar séu það. Að minnsta
kosti hefur orðið mikil viðhorfs-
breyting í samfélaginu á undan-
förnum árum.“
Siv var f lutningsmaður þings-
ályktunar um að Norræna skrá-
argatið yrði tekið upp hér á landi.
Sú tillaga var samþykkt í þinginu
sem frumvarp en Siv segist ekki
vita hvort búið sé að koma upp því
eftirlitskerfi sem sé nauðsynlegt í
framhaldinu.
„Ég er líka flutningsmaður þess
að svokallaður broskarl verði tek-
inn upp hér á landi. Það er gæða-
merki fyrir veitingahús og aðra
matsölustaði að danskri fyrir-
mynd. Ef veitingahúsið stenst
þau heilbrigðisviðmið sem merkið
býður upp á fær það broskarl. Við-
skiptavinurinn getur treyst því að
veitingahús með broskarl sé með
hreinlæti og aðra hluti í lagi. Bros-
karlinn hefur ekki enn verið sam-
þykktur á Alþingi en ég vonast til
að svo verði. Broskarlinn er hvetj-
andi fyrir veitingamenn,“ segir Siv
sem ætlar að kveðja Alþingi í vor.
Ég treysti þessu
merki, enda er
áreiðanleiki á bakvið
það.
Meðvituð um umhverfið
Siv Friðleifsdóttir alþingismaður hefur verið ötull talsmaður umhverfisvænna
hluta. Hún segir Svaninn hafa mikla þýðingu fyrir sig.
Siv Friðleifsdóttir aþingismaður velur umhverfisvottaðar vörur.
FYRSTA SVANSVOTTAÐA VEITINGAHÚSIÐ
„Hér leggjast allir á eitt og hafa gaman af enda góð tilfinning að hlúa
að umhverfi okkar og bjóða aðeins það besta, grænasta og hollasta úr
náttúrunni,“ segir Guðríður María Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri
veitingahússins Nauthóls.
„Með Svansvottun tökum við samfélagslega ábyrgð og skref í átt að
eðlilegri framtíðarþróun, ásamt sjálfsagðri skyldu gagnvart umhverfinu,
starfsfólki okkar og viðskiptavinum.“
VELDU GRÆNT MEÐ OLÍS
Olís býður upp á mikið úrval af Svansvottuðum
vörum. „Í Svansvottuðu línunum okkur erum við
með allt sem þarf til þrifa og erum stöðugt
að vinna í því að bæta við meira og meira
af vörum,“ segir Eggert Bjarnason, sölu-og
þjónusturáðgjafi heildsölu- og rekstrarvöru-
deildar. „Við eigum núna til allt sem þarf til
þess að sinna öllum fyrirtækjum, stofnunum
og sveitarfélögum. Við bjóðum upp á heildar-
lausnir fyrir alla þessa aðila.“
Eggert segir mikla aukningu vera í sölu á um-
hverfisvottuðum vörum. „Markaðurinn hefur
verið að kalla eftir þessum vörum í
auknum mæli og við erum að
bregðast við þeirri kröfu.“
Eggert Bjarnason, sölu- og þjónusturáðgjafi
heildsölu- og rekstrarvörudeildar.