Fréttablaðið - 26.09.2012, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 26.09.2012, Blaðsíða 25
KYNNING − AUGLÝSING Svanurinn, fyrir umhverfið & heilsuna26. SEPTEMBER 2012 MIÐVIKUDAGUR 5 Olís býður upp á mikið úrval af Svansvottuðum vörum. Hreinlætisefni, hreinlæt- ispappír, pokar og fleira. „Í Svans- vottuðu línunum okkur erum við með allt sem þarf til þrifa og erum stöðugt að vinna í því að bæta inn meira og meira af vörum,“ segir Eggert Bjarnason, sölu- og þjón- usturáðgjafi heildsölu- og rekstr- arvörudeildar. „Við eigum núna til allt sem þarf til þess að þrífa og sinna öllum fyrir tækjum, stofnun- um og sveitar félögum. Við bjóð- um upp á heildarlausnir fyrir alla þessa aðila.“ Umhverfisvænir Eggert segir mikla aukningu vera í sölu á umhverfisvottuð- um vörum. „Markaðurinn hefur kallað eftir þessum vörum í aukn- um mæli og við erum að bregð- ast við þeirri kröfu. Við getum nú boðið okkar viðskiptavinum upp á allt sem þeir þurfa hvað þetta varðar. Það eru alltaf að verða fleiri og fleiri sem eru meðvitaðir um verndun umhverfisins og því fleiri sem nota þessar vörur miðað við það sem áður var. Þessi aukna sala hjá okkur leiðir til þess að við höfum meira samstarf við erlenda birgja á þessu sviði og getum þar af leiðandi boðið upp á frábær kjör og gæði. Við erum stöðugt að leita og bæta inn hjá okkur umhverfisvottuðum vörum í öllum viðeigandi vöru- tegundum. Nýjungar Meðal nýjunga í Svanslínunni hjá Olís er sjálfvirkur sápuskammtari, Solid Allround, sem er kjörin lausn fyrir sjálfvirkar uppþvottavélar í mötuneytum, stór- eldhúsum, á veitingastöðum og víðar. Solid All round er alkalískt uppþvottaefni í föstu formi fyrir upp- þvottavélar með sjálfvirkt skömmtunarkerfi. Solid Allround vinnur mjög vel á almennum matarleif- um, fitu, próteinum og kalkútfellingum. Það hent- ar vel til uppþvotta á gleri, postulíni, plasti og ryð- fríu stáli og skilar því skínandi hreinu. Efnið endist vel og sparar bæði tíma og peninga. Þetta hefur verið gríðarlega vinsælt kerfi frá því við komum með það á markað og eru sápuskammtararnir komnir upp víða um land á veitingastöðum, leikskólum, skólum, skip- um og á fleiri stöðum. Þeir sem nota þetta efni segja það þrífa mjög vel og er mikil ánægja með það,“ segir Eggert. „Þetta eru létt og meðfæri- leg fimm kílóa hylki sem samsvara 22 til 27 lítrum af f ljótandi upp- þvottalegi. Skynjari tryggir lág- marksskömmtun og hámarksnýt- ingu. Það er mikil virkni í efninu og þar sem þetta er lokað kerfi tryggir það öruggari og þægilegri vinnuað- stæður. Það tekur lítið pláss og tak- markar sorp og Olís sér um upp- setningu og alla þjónustu.“ Sérfræðingar á öllum sviðum Eggert segir marga líta á Olís þannig að þeir selji bara bensín og átti sig ekki á að þeir séu með lausnir fyrir alla sem þurfa að nota hreinlætisvörur. „Við erum með sérfræðinga á öllum sviðum, Sér- fræðingar okkar aðstoða fyrirtæki við að finna hagkvæmari lausnir í þessum málum, veita alhliða ráð- gjöf varðandi hreinlæti á vinnu- stað, gerð þrifaáætlana, eftirlit með þrifum, val á tækjum, gæða- eftirlit og svo framvegis. Námskeið Við höldum námskeið í notk- un hreinlætisvara fyrir fyrir- tæki, stofnanir og sveit- arfélög í þeim tilgangi að ná fram hagkvæm- ari rekstri. Með kennsl- unni erum við að hjálpa viðskiptavinum við að minnka efnisnotkun. Við komum því þannig fyrir að þetta sé einfalt og þægilegt fyrir alla.“ Það eru ekki einungis umhverfissjónarmið sem ráða för í kaupum á Svansvott- uðum vörum þó þau leiki stórt hlutverk. „Vörurnar eru auðveld- ar og þægilegar í notkun. Þær eru jafnframt ekki jafn hættulegar og önnur sambærileg efni því þær eru minna ertandi. Þetta ræður oft för hjá almenningi sem kaupir þess- ar vörur, sérstaklega hjá fólki sem á börn,“ segir Eggert. Eggert segir úrval Svansvottaðra vara vera fjölbreytt hjá Olís og sífellt sé verið að bæta við nýjum vörutegundum í línuna. MYND/GVA Fjölbreytt úrval Svansvottaðra hreinlætis- vara er fáanlegt í verslunum Olís. MYND/VALLI Meðal nýjunga í Svanslínunni hjá Olís er sjálfvirkur sápuskammtari, Solid All- round, sem er kjörin lausn fyrir sjálfvirkar uppþvottavélar í mötuneytum, stóreld- húsum, á veitingastöðum og víðar. Úrval af vistvænum vörum hjá Olís Vitund um vernd umhverfisins hefur aukist mikið undanfarin ár. Olís býður fjölbreytt úrval hreinlætisefna, poka og pappírs sem er vottað með merki Svansins. Fyrirtækið tekur inn nýjar vörur í línuna reglulega og býður einnig upp á námskeið í notkun þeirra fyrir fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög. REKSTRARVÖRUR Þú finnur fjölda svana á rekstrarvörum okkar Sími 515 1100 | pontun@olis.is | olis.isSVANURINN er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna P IP A R \T B W A - S ÍA - 121950

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.