Fréttablaðið - 26.09.2012, Side 42

Fréttablaðið - 26.09.2012, Side 42
26. september 2012 MIÐVIKUDAGUR22 sport@frettabladid.is ÞÝSKA HANDKNATTLEIKSLIÐIÐ KIEL komst aftur á sigurbraut í gær er það lagði Magdeburg, 33-30. Kiel tapaði stigum í síðustu umferð eftir að hafa unnið alla sína leiki í rúmlega 500 daga. Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í liði Kiel með fimm mörk en Aron Pálmarsson komst ekki á blað. FÓTBOLTI Þó svo að tímabilinu í Pepsi-deild kvenna hafi lokið fyrir næstum þremur vikum hafa leik- menn Stjörnunnar þurft að halda sér á tánum. Liðið mætir í kvöld rússneska félaginu Zorky Krasn- ogorsk á heimavelli sínum í Garða- bæ en þetta verður fyrsti Evrópu- leikur félagsins frá upphafi. Stjarnan tryggði sér þátttöku- rétt í keppninni með því að verða Íslandsmeistari í fyrra og hefur því beðið lengi eftir þessum leik. Stjörnukonum tókst þó ekki að verja titilinn nú í sumar og verð- ur því Þór/KA fulltrúi Íslands í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Stjarnan slapp við undankeppn- ina sem fór fram fyrr í sumar og fór beint inn í 32-liða úrslitin. Þar var liðið í neðri styrkleikaflokki af tveimur og dróst gegn Zorky. Um er að ræða ungt félag en það var stofnað árið 2006. Það var nýliði í efstu deild á síðasta tímabili en náði engu að síður öðru sæti sem dugði til að komast í Meistara- deildina. Sterkir landsliðsmenn í liðinu „Okkur tókst ekki að útvega okkur upptöku af leik með þessu liði en mér hefur þó tekist að afla mér einhverra upplýsinga,“ sagði þjálfarinn Þorlákur Árnason um andstæðing kvöldsins. „Við vitum lítið sem ekkert um liðið sjálft en það eru þó marg- ir sterkir einstaklingar í því – landsliðsmenn frá Rússlandi, Úkraínu og Ítalíu. Það leikur í það minnsta enginn vafi á því að þetta sé sterkasta lið sem við höfum mætt hingað til.“ Þorlákur segir að þó svo að nokkuð sé síðan tímabilið klár- aðist hér heima verði leikmenn klárir í slaginn í kvöld. „Allur undirbúningur hefur gengið mjög vel – þó svo að það hafi ekki verið hægt að spila mikið af leikjum þar sem tímabilinu er lokið,“ sagði hann. „En við tókum okkur líka frí í eina viku sem var kærkomið. Ég hef engar áhyggj- ur af því að leikmenn verði ryðg- aðir í kvöld enda betra að vera með ferska leikmenn en þreytta.“ Þorlákur hefur enga leik- menn misst í nám til Bandaríkj- anna eða neitt slíkt. „Hins vegar höfum við misst nokkra leik- menn í sumar vegna meiðsla, sérstaklega varnarmenn. Nú síðast bættist Soffía [Arnþrúður Gunnarsdóttir], vinstri bakvörð- urinn okkar, í þann hóp og spil- ar hún ekki meira á tímabilinu,“ sagði Þorlákur. „Við erum svo enn með erlendu leikmennina okkar, þar á meðal Ashley Bares sem hefur verið meidd í nánast allt sumar. Hún verður þó til taks í kvöld.“ Ætlum að vinna þennan leik Stjarnan hefur selt 300 miða í forsölu og á Þorlákur von á góðri mætingu á Samsung-völl- inn í kvöld. Sendiherra Rúss- lands verður gestur á leiknum í kvöld en liðin mætast svo aftur á fimmtudaginn í næstu viku og þá í Krasnogorsk sem er rétt utan við höfuðborgina Moskvu. Þorlákur segir að mikil spenna ríki í herbúðum Stjörnunnar. „Við erum búin að bíða lengi eftir þessum leik og þó svo að við vitum lítið um andstæðinginn ætlum við að fara í leikinn eins og hvern annan – með það að mark- miði að vinna.“ eirikur@frettabladid.is Löng bið loksins á enda Stjarnan leikur í kvöld sinn fyrsta Evrópuleik þegar Íslandsmeistararnir fyrrver- andi taka á móti Zorky frá Rússlandi í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. „Vitum lítið sem ekkert um þetta lið,“ segir Þorlákur Árnason þjálfari. ERFITT VERKEFNI Stjörnustelpur leika sinn fyrsta Evrópuleik í kvöld og þeirra bíður mjög erfitt verkefni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL N1-deild kvenna: Haukar-Valur 17-36 (13-14) Mörk Hauka: Marija Gedroit 7, Díana Kristín Sigmarsdóttir 3, Áróra Eir Pálsdóttir 2, Ásthildur Friðgeirsdóttir 2, Elsa Björg Árnadóttir 1, Gunn- hildur Pétursdóttir 1, Sigríður Herdís Hallsdóttir 1. Mörk Vals: Dagný Skúladóttir 14, Þorgerður Anna Atladóttir 7, Hrafnhildur Skúladóttir 5, Rebekka Rut Skúladóttir 2, Anna Úrsula Guðmundsdóttir 2, Íris Ásta Pétursdóttir 2, Karólína Lárudóttir 1, Aðalheiður Hreinsdóttir 1, Morgan Þorkellsdóttir 1, Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 1. Grótta-Fylkir 31-23 Engar upplýsingar bárust um markaskorara. Fram-HK 30-12 (15-3) xx Mörk Fram: Stella Sigurðardóttir 8, Elísabet Gunnarsdóttir 6, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 4, Guð- rún Þóra Hálfdánsdóttir 2, Ásta Birna Gunnars- dóttir 2, María Karlsdóttir 2, Steinunn Björnsdóttir 2, Marthe Sördal 1, Birna Berg Haraldsdóttir 1, Sunna Jónsdóttir 1, Elva Þóra Arnardóttir 1. Mörk HK: Nataly Sæunn Valencia 4, Sigríður Hauksdóttir 3, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 2, Heiðrún Björk Helgadóttir 2, Valgerður Ýr Þor- steinsdóttir 1. Afturelding-FH 19-28 Engar upplýsingar bárust um markaskorara. ÚRSLIT FÓTBOLTI Steven Gerrard og Glen Johnson, leikmenn Liver- pool, telja að sóknarmaðurinn Luis Suarez fái ekki sanngjarna meðhöndlun hjá dómurum ensku úrvalsdeildarinnar. Liverpool-menn vildu fá víti í leiknum gegn Manchester United um helgina en þá virtist Jonny Evans brjóta á Suarez. Mark Halsay, dómari leiksins, dæmdi hins vegar ekki neitt. United vann leikinn 2-1. Suarez hefur ekki fengið víta- spyrnu síðan í leik Liverpool gegn Arsenal í mars á þessu ári en hann hefur það orðspor á sér að fiska víti og aukaspyrnur óheiðarlega. „Það eru dómararnir sem taka þessar ákvarðanir. Það virðist ekki skipta máli þó svo að um greinilega vítaspyrnu sé að ræða, Luis fær aldrei víti,“ sagði Gerr- ard. „Dómararnir mega ekki láta fortíðina hafa áhrif á sig og eiga að gleyma hvaða leikmaður á í hlut,“ sagði Johnson og bar áður- nefnt atvik saman við vítaspyrn- una sem United fékk í leiknum. Þá dæmdi Halsey vítaspyrnu eftir að Antonio Valencia féll í teignum en United skoraði sigur- mark leiksins úr vítaspyrnunni. „Orðspor leikmanna virð- ist hafa áhrif. Valencia fékk vítið vegna þess að hann er ekki þekktur fyrir að láta sig detta.“ - esá Steven Gerrard: Suarez fær aldrei víti ÓVINSÆLL Gerrard finnur til með Suarez. NORDICPHOTOS/GETTY HANDBOLTI Bestu lið N1 -deildar kvenna síðustu ár, Valur og Fram, unnu bæði stórsigra í leikj- um sínum í gærkvöldi er önnur umferð deildarinnar hófst. Búist var við meiri mótspyrnu frá HK í Safamýrinni en liðið skoraði aðeins þrjú mörk í fyrri hálfleik og ballið búið. - hbg N1-deild kvenna: HK kjöldregið í Safamýri HARKA Það var hraustlega tekist á þegar HK kom í Safamýrina. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.