Fréttablaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 10
7. nóvember 2012 MIÐVIKUDAGUR10 Katrín Júlíusdóttir og Árni Páll Árnason berjast um fyrsta sætið á lista Sam- fylkingarinnar í Kraganum og öðrum þræði um for- mannsstólinn. Um 750 skráðu sig í flokkinn eða sem stuðningsmenn fyrir prófkjörið. Allir þingmenn flokksins gefa kost á sér. Staða Samfylkingarinnar hefur verið sterk í Suðvesturkjördæmi á síðustu fjórum árum. Hún er stærsti flokkur kjördæmisins, fékk fjóra þingmenn kjörna við síðustu alþingiskosningar, 32,2 prósent atkvæða, og oddviti listans, Árni Páll Árnason, er fyrsti þingmaður kjördæmisins. Þá átti kjördæmið tvo af fimm ráðherrum flokksins fram að síðustu áramótum. Ekki er á vísan að róa með að Kraginn haldi þessari sterku stöðu sinni á næsta kjörtímabili. Kynja- sjónarmið spiluðu inn í þegar Katr- ín var gerð að ráðherra. Konur sækjast nú eftir efsta sæti í öllum kjördæmum, utan Norðausturs. Komist Samfylkingin í ríkis- stjórn er því engan veginn öruggt, raunar frekar ólíklegt, að tveir ráðherrar flokksins komi úr Krag- anum. Formannsslagur Árni Páll hefur lýst yfir fram- boði sínu til formanns flokksins, en kjör hans fer fram upp úr ára- mótum. Hann hefur sagt að úrslit prófkjörsins núna skilji ekki á milli feigs og ófeigs hvað það varð- ar; hann sækist eftir formennsku hvort sem hann hefur sigur nú eður ei. Engum blöðum er þó um það að fletta að sá frambjóðandi sem ber sigur úr býtum í prófkjörinu stendur sterkar að vígi í formanns- kjörinu. Heimildarmenn Frétta- blaðsins herma að beri Katrín sigur úr býtum í prófkjörinu sé öruggt að hún gefi kost á sér til formanns. Vissulega sækir formaður fylgi sitt út fyrir eigið kjördæmi, en það veikir óneitanlega stöðu hans að vera ekki oddviti. Samkvæmt hefðinni mætast oddvitar kjör- dæmanna í umræðum í kosninga- baráttu. Það gætu því fylgt því ýmisleg vandkvæði að vera með formanninn í öðru sæti. Ljóst er að Árni Páll hefur undir- búið framboð sitt af kostgæfni. Hann hefur sótt fundi í kjördæm- isfélögum og skrifað ýtarlega um pólitík í Frétta blaðið og víðar. Katrín hefur verið í fæðingar- orlofi og er nú fjármálaráðherra og hefur því knappari tíma til að sinna eigin pólitískum frama. Þingmenn gefa kost á sér Auk Árna Páls og Katrínar eru Magnús Orri Schram og Lúðvík Geirsson þingmenn í kjör dæminu. Magnús skipaði fjórða sæti lista flokksins við síðustu kosningar og náði því kjöri til þings. Nú sæk- ist hann eftir 2.-3. sæti. Hann var kjörinn formaður þingflokksins á meðan Oddný G. Harðardóttir gegndi embætti ráðherra. Magnús gaf nýverið út bókina Við stöndum á tímamótum, en þar setur hann fram pólitíska sýn sína. Hún hefur mælst vel fyrir og mun ekki skemma fyrir honum í slagnum. Lúðvík skipaði fimmta sæti listans síðast og kom inn á þing þegar Þórunn Sveinbjarnardóttir, sem skipaði þriðja sætið, hætti í stjórnmálum í september 2011. Lúð- vík, sem er fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði, sækist eftir 2. sæti. Allir fjórir þingmenn flokks- ins gefa því kost á sér til endur- kjörs. Auk þeirra gefa fimm kost á sér í prófkjörinu. Amal Tamimi varaþingmaður í 2.-3. sæti, Anna Sigríður Guðnadóttir í 2.-4., Geir Guðbrandsson í 5., Margrét Gauja Magnúsdóttir í 3.-4., Margrét Júlía Rafnsdóttir í 3.-4. og Stefán Rafn Sigurbjörnsson í 3.-5. sæti. Blásið til bandalaga? Það þykir ekki góð latína í dag að mynda bandalög í prófkjörum. Á tímum þar sem krafan um að allt sé uppi á borðum er í hávegum höfð, þykir ekki par fínt að fram- bjóðendur hópi sig saman. Slíkt gæti hins vegar verið skynsam- legt, þó ekki fari sú skoðun hátt. Heimildarmenn Fréttablaðsins nefndu í því skyni helst að hags- munir Katrínar og Lúðvíks færu saman. Í herbúðum Árna Páls óttast menn að þar hafi myndast bandalag, en í herbúðum Katrínar er fólk duglegt að neita því. Bandalög geta verið tvíbent vopn því bindi Katrín trúss sitt um of við Lúðvík gæti það komið niður á stuðningi við hana hjá stuðnings- fólki Magnúsar Orra. Opnasta flokksvalið Forvalið í Kraganum stendur yfir í tvo daga, hefst á miðnætti aðfara- nótt föstudags og lýkur klukkan 17 á laugardag. Kosið verður rafrænt og á kjörstað. Allir flokksmenn geta tekið þátt í prófkjörinu, en einnig þeir sem skrá sig á stuðningslista. Frestur til þess rann út á miðnætti síðasta föstudag. Flokksfélagar í kjördæminu voru tæplega 5.000 talsins. Rúm- lega 150 nýir félagar skráðu sig í flokkinn og tæplega 600 á stuðn- ingslista, en það var nægilegt til að taka þátt í prófkjörinu. FRÉTTASKÝRING: Prófkjör Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi Generalprufa fyrir formannskjör SIGRI FAGNAÐ Samfylkingin fékk fjóra þingmenn í Suðvesturkjördæmi í síðustu kosningum og er stærsti flokkurinn í kjördæminu. Ánægja ríkti á kosningavöku flokksins árið 2009. FRÉTTBLAÐIÐ/ARNÞÓR Mosfellsbær Kóp. Kóp. Kópavogur Garðabær Hafnarfjörður Hafnarfjörður Álftanes Seltjarnarnes Kjósarhreppur KORT/WIKIPEDIA Prófkjör Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi Á kjörskrá: Um 5.650 Nýir í flokknum: Um 150 Skráðu stuðning fyrir prófkjör: Um 600 FYLGI Í SÍÐUSTU KOSNINGUM: ATKVÆÐI: 15.669 ÞINGMENN: 4 32,2% Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is Til viðbótar við ríkulegan staðalbúnað í Volkswagen Passat Comfortline Plus er nú fullkomið leiðsögukerfi með Íslandskorti ásamt bakkmyndavél. www.volkswagen.is Ratvís og víðsýnn Volkswagen Passat EcoFuel Passat Comfortline Plus sjálfskiptur kostar aðeins 4.790.000 kr. Við fjármögnum þín bílakaupmv. Passat Comfortline Plus sjálfskiptan og óverð- tryggðan bílasamning frá Ergo til 84 mánaða og 25% útborgun. Hlutfallsleg tala kostnaðar 10,48%. 59.640 kr. á mánuði

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.