Fréttablaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 46
7. nóvember 2012 MIÐVIKUDAGUR30
BÓKIN
„100 ára einsemd , Lífsregl-
urnar fjórar og svo asnaðist ég
til að lesa 50 Shades of Grey í
21 klukkutíma rútuferð. Bara
tölustafir í mínum titlum.“
Diljá Ámundadóttir, ferðalangur
Mugison fær góða dóma á vefsíðu breska tíma-
ritsins Clash fyrir tónleika sína í Hörpu síðast-
liðinn fimmtudag.
Tónlistarmaðurinn hljóp í skarðið fyrir
bandarísku hljómsveitina Swans sem þurfti að
hætta við komu sína vegna stormsins Sandy.
Gagnrýnandi Clash segir að Mugison hafi fyllt
skarð Swans svo um munaði með kraftmikilli
spilamennsku og skemmtilegum persónuleika.
„Hann blandaði Suðurríkjarokki saman
við mikla spilagleði og sýndi að hægt er að
fylla skarð stórra nafna með öflugum heima-
manni. Mugison er einn af hertogum íslensku
tónlistar senunnar,“ skrifaði hann og bætti við:
„Lengi lifi goðsagnir á borð við Mugi. Lengi
lifi hið óvænta.“
Of Monsters and Men fær einnig góða dóma
hjá gagnrýnandanum fyrir tónleika sína
í Hörpunni. Hann líkir hljómsveitinni við
Arcade Fire og nefnir að útgáfa Of Monsters
á lagi Yeah Yeah Yeahs, Skeletons, hafi hitt í
mark.
Airwaves-hátíðin fær jafnframt góða
dóma á bresku vefsíðunni Nme.com. „Það er
kannski ekki besta veðrið í heimi í Reykja-
vík en Airwaves bauð upp á ótrúlega blöndu
af góðri tónlist og hinni alræmdu partí-
menningu borgar innar. Í myrkrinu í Norður-
Atlantshafinu í nóvember var hvergi hlýrra að
vera en akkúrat þarna.“ - fb
Hertoginn Mugison hreif Clash
GÓÐIR DÓMAR Mugison fær góða dóma fyrir frammi-
stöðu sína á Airwaves-hátíðinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/KLARA
„Ég hef verið að fást við viðburðastjórnun
og markaðsmál lengi svo það má segja að
ég hafi verið að búa mig undir þetta starf
síðustu tólf árin,“ segir Einar Bárðarson,
nýráðinn forstöðumaður Höfuðborgar-
stofu.
Auk þess að hafa átt og rekið útvarps-
stöðina Kanann og setið í dómnefndum í
íslensku útgáfunum af Idol og X-Factor
hefur Einar flutt til landsins fjölda
stórra nafna á síðustu árum og hjálpað
íslenskum listamönnum að koma sér á
fót erlendis. Meðal þeirra sem hafa verið
undir hans verndarvæng eru stúlkna-
hljómsveitin Nylon, SSSól og Skíta-
mórall. Einar hefur í kjölfarið verið kall-
aður umboðsmaður Íslands en leggur nú
þann titil á hilluna til að einbeita sér að
nýja starfinu. „Það verður spennandi
að vinna í agaðra og formlegra
umhverfi og ég hlakka mikið
til að vinna með öllu því
hæfa fólki sem Höfuðborgar-
stofa býr yfir. Ég efast ekki
um að ég eigi eftir að læra
mikið af þeim,“ segir hann.
Einar hefur verið búsett-
ur í Reykjanesbæ undan-
farin ár og segist ekki hafa
leitt hugann að því hvort
hann flytji með fjölskylduna
til Reykjavíkur. „Við þurfum
kannski að fara að pæla í
því,“ segir hann og hlær. - trs
Tólf ára undirbúningur
AGAÐUR OG
FORMLEGUR
Einar segist hlakka
til að fara að vinna
verkefnin sín í
agaðara og form-
legra umhverfi hjá
Höfuðborgarstofu.
Raftónlistargúrúinn Square-
pusher, enski tónlistarmaður-
inn James Blake, þýsk-japanska
tvíeykið Alva Noto & Ryuichi
Sakomoto og þýski rafdúett-
inn Modeselektor stíga á svið á
tónlistar hátíðinni Sónar í Hörp-
unni 15. og 16. febrúar á næsta ári.
Einnig koma þar fram Gus Gus,
Retro Stefson, Ólafur Arnalds og
Gluteus Maximus.
„Þetta eru þeir fyrstu sem við
kynnum til leiks. Okkur finnst
þetta mjög sterk byrjunar dagskrá
fyrir fyrstu Sónar-hátíðina á
Íslandi. Við eigum eftir að bæta
við um fjörutíu listamönnum og
plötusnúðum bæði innlendum
og erlendum. Við munum klára
endan lega dagskrá í lok nóvem-
ber eða byrjun desember,“ segir
skipuleggjandinn Björn Steinbekk,
sem er hæstánægður með að hin
rótgróna Sónar-hátíð sé komin til
Íslands. „Það er frábært að þeir
skyldu velja Ísland og eiginlega
alveg ótrúlegt.“
Miðað við dagskrána sem hefur
verið tilkynnt mætti ætla að Sónar
sé raftónlistarhátíð. Björn segir
það ekki rétt því popp- og rokktón-
list er líka hluti af henni. „Sónar
er haldin í fjórum heimsálfum
og selur yfir tvö hundruð þúsund
miða á sínar hátíðir á hverju ári.
Það er horft til hátíðarinnar sem
brautryðjanda þegar kemur að
því að kynna nýja og spennandi
listamenn til sögunnar, ásamt því
að mjög þekktir, bæði popp- og
rokktónlistarmenn, hafa komið
þar fram og gera það enn,“ segir
Björn. Með þeirra sem hafa spil-
að á undanförnum tveimur hátíð-
um í Barcelona eru Fatboy Slim,
New Order, Lana Del Rey, M.I.A.
og The Human League.
Spurður út í muninn á Sónar og
hina nýafstöðnu Airwaves segir
Björn að Airwaves-hátíðin sé frá-
bær hátíð sem hafi tekið þrettán ár
að búa til. „Airwaves er kynning á
íslenskri tónlist gagnvart erlend-
um plötufyrirtækjum og erlendum
gestum. Á móti er Sónar tónlistar-
hátíð þar sem tónlistarmennirn-
ir spila í sextíu til níutíu mínútur
hver og einn. Þetta er meiri hátíð
þegar kemur að því að njóta tón-
listarinnar.“ Björn bætir við að
stefnt sé á að vera með góða „off
venue“, eða utan dagskrá, sem
verður haldin samhliða Sónar-
hátíðinni.
Halldór Guðmundsson, forstjóri
Hörpunnar, segir það gríðarlegt
fagnaðarefni að fá Sónar-hátíð-
ina í tónlistarhúsið. „Airwaves er
nýbúið að vera hér í húsinu. Slík-
ar hátíðir eru geysilegur fengur
fyrir þetta hús og partur af því
sem sannar tilverurétt þess.“
freyr@frettabladid.is
BJÖRN STEINBEKK: FRÁBÆRT AÐ ÞEIR SKYLDU VELJA ÍSLAND
Squarepusher og James
Blake spila á Sónar-hátíð
SQUAREPUSHER Squarepusher, eða Tom Jenkinson, kom fram á sjónarsviðið um
miðjan tíunda áratuginn með raftónlist sem einkenndist af hröðum trommutakti þar
sem áhrif frá hipphoppi og djassi komu við sögu. Hann hefur gefið út tólf breiðskífur,
flestar hjá hinni virtu útgáfu Warp. NORDICPHOTOS/GETTY
Sónar-hátíðin verður haldin á
fjórum sviðum. Auk tveggja aðal-
sviða í Silfurbergi og Norðurljósum
verður hluta af bílastæðinu í kjallara
Hörpunnar breytt í næturklúbb þar
sem hinir ýmsu plötusnúðar halda
uppi stemningu. Eitt svið til viðbótar
verður svo sett upp í Flóahorninu
á fyrstu hæð Hörpunnar. Aðeins
tvö þúsund miðar verða til sölu
á hátíðina á Íslandi en um eitt
þúsund miðar verða í boði erlendis.
Miðasala hefst 12. nóvember á Midi.
is, Harpa.is og á Sonarreykjavik.com.
NÆTURKLÚBBUR Í KJALLARA HÖRPUNNAR