Fréttablaðið - 30.11.2012, Side 86

Fréttablaðið - 30.11.2012, Side 86
30. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| SPORT | 58 visir.is Frekari upplýsingar um leikina má finna á Vísi. N1-DEILDIN HK 23 HAUKAR 24 HK - Mörk (skot): Bjarki Már Elísson 8/3 (12/3), Atli Karl Bachmann 5 (9), Leó Snær Pétursson 3 (7), Eyþór Már Magnússon 3 (8), Garðar Svansson 2 (4), Tryggvi Þór Tryggvason 1 (1), Daníel Örn Einarsson 1 (3), Bjarki Már Gunnarsson (1), Ólafur Víðir Ólafsson (1), Varin skot: Arnór Freyr Stefánsson 5/1 (26/2, 19%), Björn Ingi Friðþjófsson 4 (7, 57%), Haukar - Mörk (skot): Stefán Rafn Sigurmanns- son 9/1 (11/2), Tjörvi Þorgeirsson 4 (9), Sveinn Þor- geirsson 2 (3), Gylfi Gylfason 2 (3), Jón Þorbjörn Jóhannsson 2 (3), Gísli Jón Þórisson 2 (6), Árni Steinn Steinþórsson 2 (7) Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 21 (43/2, 49%), Einar Ólafur Vilmundarson (1/1, 0%), FRAM 26 FH 31 Fram - Mörk (skot): Haraldur Þorvarðarson 8/1 (10/2), Róbert Aron Hostert 6 (13), Stefán Baldvin Stefánsson 3 (3), Stefán Darri Þórsson 2 (3), Jóhann Gunnar Einarsson 2/1 (6/2), Sigurður Eggertsson 2 (8), Ólafur Magnússon 1 (2), Hákon Stefánsson 1 (2), Ægir Hrafn Jónsson 1 (3), Arnar Freyr Dagbjartsson (1), Þorri Gunnarsson (3), Varin skot: Magnús Erlendsson 16 (40/3, 40%), Björn Viðar Björnsson (7/1, 0%), FH - Mörk (skot): Ragnar Jóhannsson 7 (11), Einar Rafn Eiðsson 6/3 (9/3), Ásbjörn Friðriks- son 4/1 (5/1), Sigurður Ágústsson 3 (4), Þorkell Magnússon 3 (5), Andri Berg Haraldsson 3 (6), Magnús Óli Magnússon 2 (2), Logi Geirsson 2 (3), Ari Magnús Þorgeirsson 1 (2), Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 18/2 (44/4, 41%), DOMINOS-DEILD KARLA KR 80 GRINDAVÍK 87 KR: Helgi Már Magnússon 20/8 fráköst, Brynjar Þór Björnsson 16/4 fráköst, Kristófer Acox 15/12 fráköst, Martin Hermannsson 15, Finnur Atli Magnusson 10/8 fráköst, Jón Orri Kristjánsson 4. Grindavík: Aaron Broussard 27/6 fráköst, Samuel Zeglinski 23/7 fráköst/5 stoðsendingar, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 12/6 fráköst, Ómar Örn Sævarsson 10/6 fráköst, Þorleifur Ólafsson 8, Davíð Ingi Bustion 4, Jóhann Árni Ólafsson 3 KFÍ 86 ÍR 90 KFÍ: Damier Erik Pitts 37/8 fráköst/7 stoðsend- ingar, Tyrone Lorenzo Bradshaw 18, Mirko Stefán Virijevic 15/8 fráköst, Kristján Pétur Andrésson 14/11 fráköst, Jón Hrafn Baldvinsson 2/5 fráköst. ÍR: Eric James Palm 23/4 fráköst/6 stoðsend- ingar, Nemanja Sovic 21/7 fráköst, Hreggviður Magnússon 15/9 fráköst, Isaac Deshon Miles 11/14 fráköst, Sveinbjörn Claessen 7, Hjalti Frið- riksson 7, Vilhjálmur Jónsson 4, Ellert Arnarson 2 FJÖLNIR 86 NJARÐVÍK 110 Fjölnir: Sylverster Cheston Spicer 20/12 fráköst, Tómas Heiðar Tómasson 16, Paul Anthony Williams 11, Elvar Sigurðsson 9, Jón Sverrisson 7, Gunnar Ólafsson 2, Árni Ragnarsson 2. Njarðvík: Ágúst Orrason 22, Elvar Már Friðriksson 17, Nigel Moore 13/9 fráköst/11 stoðsendingar, Marcus Van 10/19 fráköst, Friðrik E. Stefánsson 7/6 fráköst, Maciej Stanislav Baginski 6, Ólafur Helgi Jónsson 6, Hjörtur Hrafn Einarsson 5, Óli Ragnar Alexandersson 4, Oddur Birnir Pétursson 2 TINDASTÓLL 85 ÞÓR 101 Tindastóll: George Valentine 23, Þröstur Leó Jóhannsson 15, Drew Gibson 13/8 fráköst/7 stoðsendingar, Helgi Rafn Viggósson 11/6 fráköst, Ingvi Rafn Ingvarsson 10, Hreinn Gunnar Birgis- son 8, Pétur Rúnar Birgisson 3, Svavar Birgisson 2. Þór Þ.: Benjamin Curtis Smith 31/6 stoðsendingar, David Bernard Jackson 30/11 fráköst, Darri Hilm- arsson 24/5 fráköst, Darrell Flake 14/6 fráköst, Guðmundur Jónsson 2/5 fráköst/7 stoðsendinga KEFLAVÍK 86 SNÆFELL 82 Keflavík: Stephen Mc Dowell 28/7 fráköst, Valur Orri Valsson 19, Darrel Keith Lewis 17/6 fráköst, Michael Craion 15/19 fráköst/4 varin skot, Magnús Þór Gunnarsson 5, Ragnar Albertsson 2. Snæfell: Jón Ólafur Jónsson 31/9 fráköst, Asim McQueen 13/6 fráköst, Jay Threatt 12/8 fráköst/10 stoðsendingar, Sigurður Á. Þorvaldsson 11, Sveinn Arnar Davíðsson 5, Pálmi Freyr Sigur- geirsson 4/4 fráköst, Hafþór Ingi Gunnarsson 3, Ólafur Torfason 2/4 fráköst SKALLAGRÍMUR X STJARNAN X Skallagrímur: Carlos Medlock 23/4 fráköst/5 stoðsendingar, Haminn Quaintance 21/8 fráköst/5 stoðsendingar, Sigmar Egilsson 14, Trausti Eiríks- son 7/4 fráköst/6 stoðsendingar, Orri Jónsson 6/4 fráköst, Birgir Þór Sverrisson 5, Davíð Ásgeirsson 5, Davíð Guðmundsson 3. Stjarnan: Brian Mills 35/14 fráköst, Justin Shouse 21/16 stoðsendingar, Marvin Valdimarsson 18/12 fráköst, Jovan Zdravevski 12/5 fráköst, Kjartan Atli Kjartansson 5/5 fráköst, Fannar Freyr Helgason 4, Dagur Kár Jónsson 3/5 fráköst FÓTBOLTI Sauðkrækingurinn Rúnar Már Sigurjónsson er nýkominn til landsins en hann hefur verið á ferð og flugi frá því Pepsi-deildinni lauk í sumar. Þessi efnilegi Valsmaður hefur vakið athygli víða um Evrópu og er eftirsóttur. Það er því afar ólíklegt að við sjáum hann í Pepsi-deildinni næsta sumar. „Þetta hefur verið stór pakki og nú er loks smá frí frá ferðalögum. Nú bíð ég bara eftir því hvað liðin vilja gera. Ég býst fastlega við því að heyra í þeim á næstu tveimur vikum,“ sagði Rúnar Már en leik- tíðunum í Noregi og Svíþjóð er lokið og danska deildin er á loka- sprettinum. „Ég byrjaði á því að fara í viku- tíma til SönderjyskE í Danmörku og þaðan fór ég þriggja daga ferð til Tromsö í Noregi. Þaðan lá leið- in til Kalmar í Svíþjóð þar sem ég var í fimm daga. Svo fór ég með landsliðinu til Andorra og loks aftur til SönderjyskE nú síðast,“ sagði Rúnar sem mokar inn flug- punktum en er feginn að vera kom- inn aftur heim. „Þetta gekk ágætlega hjá mér. Fyrsta vikan í Danmörku var róleg enda þeir að spila mikið á þeim tíma. Þess vegna fór ég aftur og spilaði leik með varaliðinu sem mér fannst reyndar ekki ganga nógu vel. Ég fór aðallega til Nor- egs að skoða aðstæður. Ég tók flottar æfingar í Svíþjóð og það gekk best þar fannst mér.“ Fleiri félög vildu fá Rúnar til æfinga en hann ásamt umboðs- manni sínum ákvað að taka þess- um boðum þar sem þau þóttu meira spennandi sem stendur. „Ég vonast eftir því að fá tvö til þrjú tilboð svo ég geti valið besta kostinn. Danmörk heillar mest og ég vil helst spila þar. Það er besta deildin. Ef ekkert af þessu gengur upp þá skoða ég líklega hina kost- ina,“ sagði Rúnar en hann er samn- ingsbundinn Val og spilar með þeim næsta sumar fari svo að hann komist ekki í atvinnumennsku á þessum tímapunkti. „Það eru nánast engar líkur á því að ég spili hér heima næsta sumar en ég gæti fótbrotnað eða eitthvað og það myndi þá eyði- leggja möguleikann á að fara út núna. Ein ástæðan fyrir því að ég samdi við Val var að hafa starfs- öryggi. Ég býst samt við því að fara út,“ sagði Skagfirðingurinn sem var valinn besti leikmaður Pepsi-deildarinnar 2012 af Frétta- blaðinu. - hbg Langar helst að spila með liði í Danmörku Rúnar Már er nýkominn heim úr miklu ferðalagi um Evrópu og bíður nú eft ir tilboðum. EFTIRSÓTTUR Fjölmörg lið í Skandinavíu vildu skoða Skagfirðinginn sterka. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN GOLF Hinn 25 ára gamli Manuel de los San- tos kemur frá Dóminíska lýðveldinu. Hann hefur alla tíð verið hæfileikaríkur íþrótta- maður og átti bjarta framtíð fyrir sér sem hafnaboltamaður. Það var nánast frágengið að hann myndi spila með Toronto Blue Jays í MLB-deildinni í Bandaríkjunum þegar líf hans breyttist skyndilega. Hann var þá 18 ára gamall og lenti í mót- orhjólaslysi sem leiddi til þess að það varð að taka af honum annan fótinn. Eftir það varð De los Santos að hugsa lífið upp á nýtt. De los Santos lét fötlun sína ekki aftra sér frá því að taka þátt í íþróttum og árið 2003, er hann flutti til Frakklands, byrjaði hann að æfa golf. Það var Tiger Woods að þakka. „Tiger Woods er hetjan mín,“ sagði De los Santos sem fór að æfa eins og Tiger og notaði ráðleggingar frá honum í bókum. Hann varð líka fyrir miklum áhrifum er hann sá myndina „The Legend of Bag- ger Vance“ en hún fjallar um kylfing sem lendir í miklu mótlæti. „Daginn eftir að ég sá myndina bað ég um að fá að fara út golfæfingasvæði. Það skiptir ekki máli þó ég hafi bara einn fót- legg. Þegar lífið gefur manni tækifæri þá verður maður að grípa það. Ég ákvað að gera það,“ sagði þessi ungi maður sem er orðinn fyrirmynd um allan heim. De los Santos hefur náð ótrúlegum árangri í golfinu og er þegar kominn með þrjá í forgjöf. Það sem gerir árangur hans enn eftirtektarverðari er að hann notar ekki gervifót. Hann stendur á einum fæti og slær. Það er hreint ótrúlegt að sjá hvern- ig hann nær að slá hátt í 300 metra og vipp- ar síðan eins og atvinnumaður. Hann styðst þó við hækjur á milli högga. Hann fékk stóran draum upp- fylltan á dögunum er hann fékk að spila á móti atvinnumanna og áhuga- manna á St. Andrew‘s-vellinum í Skot- landi. „Ég hef líklega aldrei séð eins góðan kylfing með þrjá í forgjöf,“ sagði atvinnu- maðurinn Gavin Dear eftir hringinn með De los Santos en hann kom í hús á 76 högg- um á þessum gríðarlega erfiða velli sem hann hafði ekki leikið áður. John Hopkins, fyrrum kylfingur og blaðamaður, var á meðal þeirra sem fylgd- ust með einfætta kylfingnum. „Á golfvellinum í morgun varð ég vitni að líklega því ótrúlegasta sem ég hef séð á 50 ára ferli í sportinu. Augun stóðu á stilkum er ég horfði á De los Santos spila. Einfættur án gervifótar með upphafshögg sem ná tæplega 300 metra. Svo vippaði hann með álíka til- finningu og Seve Ballesteros gerði á sínum tíma. Þessu mun ég aldrei gleyma,“ skrifaði Hopkins. henry@frettabladid.is Einfætti kylfi ngurinn Manuel de los Santos er enginn venjulegur kylfi ngur. Þrátt fyrir að vera með aðeins einn fótlegg hefur honum tekist að ná ótrúlegum tökum á golfíþróttinni. Hann er kominn með þrjá í forgjöf og slær hátt í 300 metra upphafshögg. Á SÖGUSLÓÐUM De los Santos er hér að slá upphafshöggið á 18. holu á frægasta golfvelli heims, St. Andrew‘s. Hann lék þann völl á 76 höggum. NORDICPHOTOS/GETTY KÖRFUBOLTI Hel- ena Sverrisdótt- ir fékk lang- þráðar mínútur með Good Ang- els Kosic í Euro- league í fyrra- kvöld og skilaði sínu (11 stig og 4 fráköst) í naumu 91-93 tapi á móti tyrkneska liðinu Fenerbahce. Helena átti loka- skot leiksins og gat tryggt sínu liði sigur með því að hitta en því miður geigaði skotið sem var tekið úr afar erfiðri stöðu. Helena hefur aðeins fengið alvöru mínútur í tveimur leikj- um í Euroleague í vetur en er með samtals 29 stig og 11 fráköst í þeim sem ætti að kalla á fleiri mínútur í framhaldinu. Frábær skotnýting hennar vekur athygli. Helena hefur nýtt 6 af 9 þriggja stiga skotum sínum í þessum tveimur leikjum og er eins og er búin að nýta 55 prósent þriggja stiga skota sinna í keppn- inni (6 af 11). Hún er þessa stund- ina í 4. sæti yfir bestu þriggja stiga skytturnar í Euroleague en auk þess hefur hún nýtt öll sex vítin sín. Helena fj órða besta skyttan JAFNVÆGI De los Santos heldur ótrúlegu jafnvægi á einum fæti. Hann vill ekki sjá gervifót. FÓTBOLTI Rafael Benítez, knatt- spyrnustjóri Chelsea, er á þeirri skoðun að Fernando Torres, fram- herji liðsins, þurfi að rífa í lóðin í lyftingasalnum til þess að ná fyrri getu. Torres hefur átt erfitt upp- dráttar frá því hann kom til Chelsea frá Liverpool fyrir um 10 milljarða kr. í lok janúar á síðasta ári. Benítez segir í viðtali við íþrótta- fréttavefinn Sportinglife að hann viti ekki hvort Torres nái fyrri styrk. Hinn 28 ára gamli Torres lék gríðarlega vel undir stjórn Benítez hjá Liverpool. „Torres þarf að leggja áherslu á þá hluti sem bæta hann sem leikmann. Við erum að finna út úr því hvað það er, og það mun taka tíma. Hann þarf að bæta styrk sinn og það gerir hann í lyftingasalnum,“ sagði Benítez m.a. í viðtalinu. Hann bætti því við að slakt gengi Torres á vellinum hefði ekkert með meiðsli eða aldur hans að gera. Torres þarf að rífa í lóðin SPORT

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.