Fréttablaðið - 30.11.2012, Síða 90

Fréttablaðið - 30.11.2012, Síða 90
30. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| SPORT | 62 ÁHRIF CANTONA Á GENGI UNITED FÓTBOLTI Haustið 1992 höfðu stuðningsmenn Manchester United ekki fagnað Englands- meistaratitlinum í 25 ár og útlit var fyrir að lengi yrði enn að bíða. Vorið á undan hafði liðið glutrað niður vænu forskoti á Leeds, sem fagnaði fyrir vikið óvæntum og kær- komnum meistaratitli. Markaskorun var helsta vandamál United, sem sat í áttunda sæti deildarinnar og var úr leik í báðum bikar keppnunum þegar síminn hringdi á Old Trafford 25. nóvember 1992. Bill Fotherby, framkvæmdastjóri Leeds, var á línunni og vildi vita hvort Denis Irwin, bakvörður United, væri til sölu. Martin Edwards, stjórnarformaður United, ráðfærði sig við Alex Ferguson, stjóra liðsins, sem tók ekki í mál að selja írska varnarmann- inn. Ferguson sat við hliðina á Edwards sam- kvæmt flestum útgáfum sögunnar. Skotinn ritaði nafn Cantona á blað og Edwards spurð- ist fyrir um stöðu Frakkans hjá Leeds. Sú fyrirspurn átti eftir að borga sig. Cantona hafði komið til Leeds tímabilið á undan og átt stóran þátt í frábæru gengi liðs- ins. Franski landsliðsmaðurinn, sem þekkt- ur var fyrir ólæti og vandræðagang í takt við boltafimi sína, reyndist ekki í uppáhaldi hjá Howard Wilkinson, stjóra Leeds. Sólar- hring eftir símtal Fotherby og Edwards var Cantona kynntur til leiks á Old Trafford. Í hönd fór sigursælasti kaflinn í sögu United, sem enn sér ekki fyrir endann á. Breytti hugsunarhætti leikmanna Á fimm tímabilum með Eric Cantona inn- anborðs unnu lærisveinar Alex Fergu- son deildina fjórum sinnum og ensku bik- arkeppnina í tvígang. Cantona gerði ekki aðeins knattspyrnuunnendur orðlausa með tilþrifum sínum heldur gerði hann samherja sína að betri leikmönnum. Þrátt fyrir titla- leysið hafði United haft mjög góða leikmenn innanborðs sem virtust ekki passa saman. Olían sem vantaði á vélina var Cantona. „Frammistaða hans í leikjum skipti ekki jafn miklu máli og hvernig hann opnaði augu mín fyrir mikilvægi þess að æfa vel,“ sagði Ferguson í ævisögu sinni. Að lokinni fyrstu æfingu hjá United bað Cantona Ferguson um tvo leikmenn, markvörð og boltapokann. Í hönd fór hálf- tíma viðbótaræfing þar sem Cantona skaut á markið eftir fyrirgjafir frá hægri og vinstri. Daginn eftir varð helmingur liðs- ins eftir og æfði aukalega. Hugsunarháttur leikmanna breyttist. Krakkarnir áttu föður Þegar Paul Ince, Lee Sharpe og Andrei Kanchelskis yfirgáfu Old Trafford sumarið 1995 töldu margir að leiðin lægi niður á við hjá United. „Þú vinnur ekkert með krakka í liðinu,“ sagði sparkspekingurinn Alan Han- sen um ungt lið United, sem steinlá 3-1 í fyrsta leik tímabilsins gegn Aston Villa. Í hönd fór eftirminnilegt kapphlaup United við Newcastle um meistaratitilinn. United vann upp tólf stiga forskot New- castle og munaði miklu um fjóra 1-0 sigur- leiki United á vormánuðum 1996. Cantona skoraði sigurmarkið í þeim öllum og einnig sigurmarkið í 1-0 sigri á Liverpool í úrslit- um enska bikarsins. „Krakkarnir“ hans Hansen áttu sér læri- meistara og ári síðar, þegar Cantona kvaddi Old Trafford eftir viðtöku fjórða Englands- meistaratitilsins, voru krakkarnir orðnir að sigursælum mönnum. Tólf meistaratitlar og öðlun Tuttugu árum eftir komu Cantona á Old Trafford er Sir Alex Ferguson virtasti stjórinn í ensku úrvalsdeildinni og mögu- lega í öllum heiminum. Tólf Englandsmeist- aratitlar á tuttugu árum gerðu United að sigur sælasta liði í sögu enskrar knatt- spyrnu. Fram að komu Cantona var Fergu- son valtur í sessi sökum titlaleysis. „Ef ég ætti að nefna einn leikmann í öllum heiminum sem var skapaður til þess að spila fyrir Manchester United þá væri það Cantona,“ sagði Ferguson um franska sóknarmanninn sem hann á mikið að þakka. „Hann mætti til leiks með brjóstkassann þaninn, lyfti höfði og horfði út í loftið líkt og hann spyrði: „Ég er Cantona. Hversu stór ert þú? Ert þú jafnoki minn?““ kolbeinntumi@365.is Símtalið sem breytti fótboltanum Tuttugu ár eru liðin frá því Eric Cantona gekk óvænt til liðs við Manchester United frá þáverandi Englandsmeisturum Leeds. Líklega hafa engin félagaskipti haft jafn mikil áhrif á gengi eins liðs og í tilfelli Cantona og United, sem hafði þá ekki unnið titilinn í 26 ár. Ýmsir töldu Ferguson gera mikil mistök með kaupunum á Cantona. Frakkinn þótti agalaus og gekk illa að festa sig í sessi hjá félagsliðum sínum. Hann virtist finna frið á Old Trafford þótt þar hafi hann einnig komið sér á forsíður dagblaðanna fyrir óviðunandi hegðun. Stendur keppnistímabilið 1994-1995 upp úr. Rauð spjöld í tveimur deildarleikj- um í röð ásamt brottvísun í Evrópu- leik gegn Galatasaray rifjuðu upp orðspor Cantona. Það var þó aðeins lognið á undan storminum. Í deildar- leik gegn Crystal Palace í janúar 1995 réðst Cantona á stuðningsmann mótherjanna með kung fu-sparki. „Ég á margar góðar minningar en sú sem stendur upp úr er þegar ég sparkaði í fótboltabulluna,“ sagði Cantona eitt sinn spurður út í feril sinn. Cantona fór í átta mánaða keppnisbann og gegndi samfélagsþjón- ustu. Færa má rök fyrir því að fjarvera Frakkans hafi kostað United bæði Englandsmeistaratitilinn og enska bikarinn. Tímabilið var hið eina titillausa á meðan Cantona var í herbúðum Rauðu djöflanna. Dökku hliðar Eric Cantona Fyrir komu Eric Cantona Ekki Englands- meistarar í 26 ár (1967) Fimm tímabil með Eric Cantona 4 Englandsmeistaratitlar Tvisvar tvöfaldir meistarar 64 mörk í 142 leikjum 89 sigrar og aðeins 15 töp í 142 leikjum Hér fyrir neðan má sjá gengi Manchester United 37 leiki fyrir komu Cantona miðað við gengið í 37 leikjum eftir að Cantona fór að spila með liðinu. Flestir eru sammála um að bitleysi í sókninni hafi kostað liðið titilinn árið á undan en tölfræðin sýnir svart á hvítu rosalega breytingu á sóknarleik United-liðsins við komu Frakkans á Old Trafford. Rosaleg breyting á sóknarleik United Fyrir komu Cantona 37 deildarleikir 54 stig 38 mörk Eftir komu Cantona 37 deildarleikir 88 stig 77 mörk Eft ir Eric Cantona 8 Englandsmeistaratitlar á 15 árum 1992-93 1993-94 1995-96 1996-97 1998-99 1999-00 200-01 2002-03 2006-07 2007-08 2008-09 2010-11 MEÐ ROBSON Cantona fagnar hér Englandsmeistaratitli vorið 1993 með miðjumanninum Bryan Robson. VIÐ AFHJÚPUN Stytta af Ferguson var afhjúpuð í Manchester í síðustu viku. Cantona mætti og vottaði gamla stjóranum virðingu, sjálfur hefur hann lýst yfir áhuga á að taka við stjórastöðu United einhvern daginn.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.