Fréttablaðið - 08.12.2012, Side 98
8. desember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 74MENNING
Skáldsögur sem fjalla um samtím-
ann gerast ekki mikið meira í núinu
en Íslendingablokk Péturs Gunn-
arssonar. Bókin hefst á nýársdag
á þessu ári og lýkur á útgáfudegi
bókarinnar nú fyrir skemmstu.
Pétur sat líka að skriftum fram á
haust.
En þótt Íslendingablokk sé sam-
tímasaga liggja þræðir hennar
víða, bæði í tíma og rúmi og ná
jafnvel alla leiðina aftur í Mikla-
hvell. Verkið sjálft teygir anga sína
líka langt aftur, tuttugur ár nánar
tiltekið, og átti upphaflega að vera
hluti að öðru verki.
„Ég réðst á sínum tíma í verkefni
sem ég nefni Skáldsögu Íslands,
undir þeim hatti hafa til þessa
komið út þrjú verk á árunum 2000
til 2004. Ég hafði viðað að mér efni
um þónokkurt skeið, en vildi ekki
beinlínis fara í þetta far að skrifa
sögulega skáldsögu, sem er ákveð-
ið „genre“; sá sem skrifar sögu-
lega skáldsögu þarf að vera mjög
vel heima í þeim tíma sem hann
fjallar um og þarf að gæta sín á
anakrónisma, svo sem í málfari
eða láta atburði henda sem passa
ekki við sögutímann og svo fram-
vegis. Ég aftur á móti vildi vísvit-
andi stíga yfir þetta strik og hræra
nútímanum saman við söguna. Ég
var því alltaf með eitt nútímahorn
í þeim sögum.“
Uppfærslan varð yrkisefni
Nútíðarkaflinn vildi hins vegar
stækka og þenjast út.
„Fyrir tuttugu árum ætlaði ég að
skrifa sögu um þessa karaktera og
hafa þá hreinlega inn í Skáldsögu
Ísland. Hún hafði hins vegar til-
hneigingu til að verða of stór fyrir
þær bækur og að lokum afréð að
gera sjálfstætt verk úr þessum
nútíðarkafla.“
Pétur setti sér fyrir að láta þá
sögu gerast í rauntíma stundar-
innar sem er að líða. Sá rauntími
var upphaflega árið 1992 en varð
að endingu árið 2012. Í millitíðinni
hafði Pétur gert nokkrar atlögur
að sögunni og fór því eðli málsins
samkvæmt jafnan mikið púður í að
uppfæra hana.
„Það er dálítið skondið að sjálf
uppfærslan varð síðan eitt af yrkis-
efnum bókarinnar. Árið 1992 var
fólk enn að skrifa ávísanir, netið
var ekki komið eða farsímar og svo
framvegis. Alltaf þegar ég réðst til
atlögu við verkið á ný þurfti ég að
taka tillit til þessa, uppfæra tækni-
stigið og láta karakterana fá þessi
tæki og tól í hendur og uppgötva
jafnvel hvernig það breytti sam-
skiptum þeirra. Ýmislegt fleira
breyttist að sjálfsögðu einnig;
persónur sem voru 65 ára þegar ég
byrjaði voru orðnar 85 ára núna og
ég hafði ástæðu til að óttast um að
ég væri að missa þær yfir móðuna
miklu.“
Að hliðra veruleikanum til
Sagan er nokkuð kyrfilega stað-
sett í Reykjavík nútímans og vísar í
atburði sem voru ofarlega á baugi á
árinu sem var að líða. Sumar pers-
ónurnar gætu líka komið kunnug-
lega fyrir sjónir úr raunveruleikan-
um, til dæmis Máni Ísaksson, sem
hefur getið sér orð fyrir hjálpar-
starf í Afríku en snýr heim til að
bjóða sig fram til forseta. (Stefán
Jón Hafstein?) Pétur tekur þó fyrir
að Íslendingablokk sé lykilsaga.
„Hitt er annað mál að maður
nótar oft hjá sér eitthvað skemmti-
legt sem maður heyrir eða verður
vitni að og það kann að rata löngu
löngu síðar inn í bók. Mín aðferð
er að hliðra veruleikanum aðeins
til, vera á skjön við hann til að sjá
hann betur. Ef ég færi bara akk-
úrat ofan í hjólförin sem við erum
í skilaði það kannski ekki miklu.
Ég er svolítið í því að leika mér að
veruleikanum en get ekki merkt að
það séu persónur á bakvið persón-
urnar. Máni kemur úr Skáldsögu
Íslands og ég var fyrir löngu búinn
að staðsetja hann í hjálparstarfi í
Afríku áður en þetta með Stefán
Jón kom upp á. Það helgaðist af því
að Máni var búinn að ferðast um
allan heiminn og hans niðurstaða
eftir þá reisu var að fólk væri gott.
Mögulega hefur það ýtt undir löng-
un hans til að verða að liði.“
Fólk er gott
Allar persónurnar í bókinni eru
dregnar af slíkri næmni og samlíð-
an að það liggur beint við að spyrja
Pétur hvort hann deili þessari lífs-
skoðun með Mána, að fólk sé gott.
„Já, alveg hiksta- og skilyrðis-
laust. Það er svo mikill munur á
fólki sem maður kynnist í raun og
þeirri mynd sem kann að framkall-
ast af fólki í fjölmiðlafárinu. Það
er að minnsta kosti mín reynsla.
Ég hef sjálfur farið í mína reisu og
mætti aldrei öðru en góðvild. Raun-
ar lygilegri góðvild.“
Jafnvel má líta á Íslendingablokk
sem mótvægi við rað uppnámið og
dómhörkuna, sem oft einkennir
þjóðmálaumræðuna.
„Ég held að það sé gríðarlegur
munur á því sem er að gerast í fjöl-
miðlaumræðunni og því sem er að
gerast hjá fólki upp og ofan. Tökum
sem dæmi þessa borgarastyrjöld
sem ríkir á Alþingi Íslendinga, hún
er svo afmörkuð við þennan hóp. Ég
held að þú finnir hvergi á Íslandi
mengi af fólki sem er svipað inn-
stillt og þetta litla mengi í þinginu.
Samt breiðist þetta yfir allt þjóðlíf-
ið – þetta er nú einusinni fólkið sem
við höfum kosið til að standa vakt-
ina og koma þjóðarskútunni í heila
höfn. En það sem okkur er boðið
upp á jaðrar við að vera óbærilegt
á köflum.“
Pétur segist þó ekki hafa skrif-
að bókina með neinn meðvitaðan
boðskap í huga, hann komi meira
ósjálfrátt.
„Þegar maður stendur upp frá
verki lokast það á vissan hátt fyrir
manni, maður stendur fyrir utan
það. Þetta er svolítið svipað og með
drauma. Þegar þú vaknar manstu
óljóst eftir draumnum en svo gufar
hann upp á meðan þú ert að klæða
þig í. Skáldskapur er smíðaður að
verulegu leyti úr dulvitund og fyrir
bragðið hefur verkið tilhneigingu
til að fjarlægjast mann um leið og
punktur er settur. Fyrir vikið á ég
oft erfitt með að tilgreina hvað er
hvaðan og hvað er hvað.“
Lýtur járnhörðum lögmálum
Sem stílisti er Pétur upp á sitt allra
besta í Íslendingablokk; textinn
meitlaður og drekk hlaðinn merk-
ingu en um leið svo lipur og flæð-
andi að það er engu líkara en hann
hafi verið skrifaður áreynslulaust.
„Ég held að það sé alltaf blekk-
ing,“ segir Pétur. „Áreynsluleysið
er búið til með mikilli áreynslu.
Þótt ég hafi ekki verið tuttugu ár
að skrifa bókina þá var hún mjög
lengi í gerjun.
Ég get verið mjög lengi að vinna
með texta sem stafar af því að
hann virðist lúta einhverjum lög-
málum sem eru járnhörð; ég reyni
kannski að koma með viðbætur
og textinn hrindir þeim jafnharð-
an frá sér. Það er einhver músík í
textanum sem ég verð að hlíta. Á
meðan ég er að vinna textann er
ég samrunninn honum – hann er
svo að segja runninn mér í merg
og blóð. En svo kemur að því stigi
að hann er tilbúinn og hafnar öllu
sem kemur nýtt í viðbót og þá skil-
ar maður af sér.“
Að gleðjast yfir ómögulegum texta
Textinn í Íslendingabók afspyrnu-
skemmtilegur aflestrar. Var
skemmtilegra að skrifa þessa bók
en aðrar?
„Ég man ekki til þess. Yfirleitt
finnst mér mjög gaman að kljást
við texta. Mín kenning um muninn
á rithöfundi og ekki rithöfundi er
sú að sá sem er ekki rithöfundur
brotnar saman yfir vangetu sinni.
Hann les það sem hann skrifaði í
miklu stuði daginn áður, sér að það
er ekki boðlegt og missir móðinn.
Rithöfundur hins vegar gleðst yfir
því hvað afraksturinn frá því í gær
er ómögulegur því þá eygir hann
möguleika til að betrumbæta.
Þetta er það sem drífur mann
áfram. Maður skrifar á hverjum
degi í nokkra klukkutíma á meðan
frjómagn er í hugsuninni og sköp-
un í gangi. Að því búnu er brýnt
að hætta, að ætla að halda áfram
eftir að maður er orðinn tómur er
dæmt til að mistakast. Síðan gerist
eitthvað stórkostlegt um nóttina,
í svefninum. Undirvitundin held-
ur áfram að vinna – maður vakn-
ar endurnýjaður og kemur nýr að
verkinu. Ég hef nú verið nokkuð
lengi að verki, í 40 ár, en ég nýt
þess alltaf jafn mikið að vakna og
uppgötva lífið í textanum.“
ÁREYNSLULEYSIÐ KEMUR
MEÐ MIKILLI ÁREYNSLU
Pétur Gunnarsson er í essinu sínu í Íslendingablokk, fyrstu skáldsögu sinni í átta ár, þar sem hann fl éttar saman sögur nokkurra íbúa í
blokk við Lönguhlíð. Hann segir að eft ir 40 ára rithöfundarferil njóti hann þess enn að vakna og koma nýr að textanum.
PÉTUR GUNNARSSON Persónurnar í Íslendingablokk fæddust fyrir tuttugu árum og Pétur ákvað að skrifa um þær sögu sem átti að gerast á rauntíma líðandi stundar.
Tuttugu árum síðar og nokkrum uppfærslum er sagan komin út. „Það er dálítið skondið að sjálf uppfærslan varð síðan eitt af yrkisefnum bókarinnar.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Mín kenning um
muninn á rithöfundi og
ekki rithöfundi er sú að
sá sem er ekki rithöf-
undur brotnar saman
yfir vangetu sinni.
Bergsteinn
Sigurðsson
bergsteinn@frettabladid.is