Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.12.2012, Qupperneq 98

Fréttablaðið - 08.12.2012, Qupperneq 98
8. desember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 74MENNING Skáldsögur sem fjalla um samtím- ann gerast ekki mikið meira í núinu en Íslendingablokk Péturs Gunn- arssonar. Bókin hefst á nýársdag á þessu ári og lýkur á útgáfudegi bókarinnar nú fyrir skemmstu. Pétur sat líka að skriftum fram á haust. En þótt Íslendingablokk sé sam- tímasaga liggja þræðir hennar víða, bæði í tíma og rúmi og ná jafnvel alla leiðina aftur í Mikla- hvell. Verkið sjálft teygir anga sína líka langt aftur, tuttugur ár nánar tiltekið, og átti upphaflega að vera hluti að öðru verki. „Ég réðst á sínum tíma í verkefni sem ég nefni Skáldsögu Íslands, undir þeim hatti hafa til þessa komið út þrjú verk á árunum 2000 til 2004. Ég hafði viðað að mér efni um þónokkurt skeið, en vildi ekki beinlínis fara í þetta far að skrifa sögulega skáldsögu, sem er ákveð- ið „genre“; sá sem skrifar sögu- lega skáldsögu þarf að vera mjög vel heima í þeim tíma sem hann fjallar um og þarf að gæta sín á anakrónisma, svo sem í málfari eða láta atburði henda sem passa ekki við sögutímann og svo fram- vegis. Ég aftur á móti vildi vísvit- andi stíga yfir þetta strik og hræra nútímanum saman við söguna. Ég var því alltaf með eitt nútímahorn í þeim sögum.“ Uppfærslan varð yrkisefni Nútíðarkaflinn vildi hins vegar stækka og þenjast út. „Fyrir tuttugu árum ætlaði ég að skrifa sögu um þessa karaktera og hafa þá hreinlega inn í Skáldsögu Ísland. Hún hafði hins vegar til- hneigingu til að verða of stór fyrir þær bækur og að lokum afréð að gera sjálfstætt verk úr þessum nútíðarkafla.“ Pétur setti sér fyrir að láta þá sögu gerast í rauntíma stundar- innar sem er að líða. Sá rauntími var upphaflega árið 1992 en varð að endingu árið 2012. Í millitíðinni hafði Pétur gert nokkrar atlögur að sögunni og fór því eðli málsins samkvæmt jafnan mikið púður í að uppfæra hana. „Það er dálítið skondið að sjálf uppfærslan varð síðan eitt af yrkis- efnum bókarinnar. Árið 1992 var fólk enn að skrifa ávísanir, netið var ekki komið eða farsímar og svo framvegis. Alltaf þegar ég réðst til atlögu við verkið á ný þurfti ég að taka tillit til þessa, uppfæra tækni- stigið og láta karakterana fá þessi tæki og tól í hendur og uppgötva jafnvel hvernig það breytti sam- skiptum þeirra. Ýmislegt fleira breyttist að sjálfsögðu einnig; persónur sem voru 65 ára þegar ég byrjaði voru orðnar 85 ára núna og ég hafði ástæðu til að óttast um að ég væri að missa þær yfir móðuna miklu.“ Að hliðra veruleikanum til Sagan er nokkuð kyrfilega stað- sett í Reykjavík nútímans og vísar í atburði sem voru ofarlega á baugi á árinu sem var að líða. Sumar pers- ónurnar gætu líka komið kunnug- lega fyrir sjónir úr raunveruleikan- um, til dæmis Máni Ísaksson, sem hefur getið sér orð fyrir hjálpar- starf í Afríku en snýr heim til að bjóða sig fram til forseta. (Stefán Jón Hafstein?) Pétur tekur þó fyrir að Íslendingablokk sé lykilsaga. „Hitt er annað mál að maður nótar oft hjá sér eitthvað skemmti- legt sem maður heyrir eða verður vitni að og það kann að rata löngu löngu síðar inn í bók. Mín aðferð er að hliðra veruleikanum aðeins til, vera á skjön við hann til að sjá hann betur. Ef ég færi bara akk- úrat ofan í hjólförin sem við erum í skilaði það kannski ekki miklu. Ég er svolítið í því að leika mér að veruleikanum en get ekki merkt að það séu persónur á bakvið persón- urnar. Máni kemur úr Skáldsögu Íslands og ég var fyrir löngu búinn að staðsetja hann í hjálparstarfi í Afríku áður en þetta með Stefán Jón kom upp á. Það helgaðist af því að Máni var búinn að ferðast um allan heiminn og hans niðurstaða eftir þá reisu var að fólk væri gott. Mögulega hefur það ýtt undir löng- un hans til að verða að liði.“ Fólk er gott Allar persónurnar í bókinni eru dregnar af slíkri næmni og samlíð- an að það liggur beint við að spyrja Pétur hvort hann deili þessari lífs- skoðun með Mána, að fólk sé gott. „Já, alveg hiksta- og skilyrðis- laust. Það er svo mikill munur á fólki sem maður kynnist í raun og þeirri mynd sem kann að framkall- ast af fólki í fjölmiðlafárinu. Það er að minnsta kosti mín reynsla. Ég hef sjálfur farið í mína reisu og mætti aldrei öðru en góðvild. Raun- ar lygilegri góðvild.“ Jafnvel má líta á Íslendingablokk sem mótvægi við rað uppnámið og dómhörkuna, sem oft einkennir þjóðmálaumræðuna. „Ég held að það sé gríðarlegur munur á því sem er að gerast í fjöl- miðlaumræðunni og því sem er að gerast hjá fólki upp og ofan. Tökum sem dæmi þessa borgarastyrjöld sem ríkir á Alþingi Íslendinga, hún er svo afmörkuð við þennan hóp. Ég held að þú finnir hvergi á Íslandi mengi af fólki sem er svipað inn- stillt og þetta litla mengi í þinginu. Samt breiðist þetta yfir allt þjóðlíf- ið – þetta er nú einusinni fólkið sem við höfum kosið til að standa vakt- ina og koma þjóðarskútunni í heila höfn. En það sem okkur er boðið upp á jaðrar við að vera óbærilegt á köflum.“ Pétur segist þó ekki hafa skrif- að bókina með neinn meðvitaðan boðskap í huga, hann komi meira ósjálfrátt. „Þegar maður stendur upp frá verki lokast það á vissan hátt fyrir manni, maður stendur fyrir utan það. Þetta er svolítið svipað og með drauma. Þegar þú vaknar manstu óljóst eftir draumnum en svo gufar hann upp á meðan þú ert að klæða þig í. Skáldskapur er smíðaður að verulegu leyti úr dulvitund og fyrir bragðið hefur verkið tilhneigingu til að fjarlægjast mann um leið og punktur er settur. Fyrir vikið á ég oft erfitt með að tilgreina hvað er hvaðan og hvað er hvað.“ Lýtur járnhörðum lögmálum Sem stílisti er Pétur upp á sitt allra besta í Íslendingablokk; textinn meitlaður og drekk hlaðinn merk- ingu en um leið svo lipur og flæð- andi að það er engu líkara en hann hafi verið skrifaður áreynslulaust. „Ég held að það sé alltaf blekk- ing,“ segir Pétur. „Áreynsluleysið er búið til með mikilli áreynslu. Þótt ég hafi ekki verið tuttugu ár að skrifa bókina þá var hún mjög lengi í gerjun. Ég get verið mjög lengi að vinna með texta sem stafar af því að hann virðist lúta einhverjum lög- málum sem eru járnhörð; ég reyni kannski að koma með viðbætur og textinn hrindir þeim jafnharð- an frá sér. Það er einhver músík í textanum sem ég verð að hlíta. Á meðan ég er að vinna textann er ég samrunninn honum – hann er svo að segja runninn mér í merg og blóð. En svo kemur að því stigi að hann er tilbúinn og hafnar öllu sem kemur nýtt í viðbót og þá skil- ar maður af sér.“ Að gleðjast yfir ómögulegum texta Textinn í Íslendingabók afspyrnu- skemmtilegur aflestrar. Var skemmtilegra að skrifa þessa bók en aðrar? „Ég man ekki til þess. Yfirleitt finnst mér mjög gaman að kljást við texta. Mín kenning um muninn á rithöfundi og ekki rithöfundi er sú að sá sem er ekki rithöfundur brotnar saman yfir vangetu sinni. Hann les það sem hann skrifaði í miklu stuði daginn áður, sér að það er ekki boðlegt og missir móðinn. Rithöfundur hins vegar gleðst yfir því hvað afraksturinn frá því í gær er ómögulegur því þá eygir hann möguleika til að betrumbæta. Þetta er það sem drífur mann áfram. Maður skrifar á hverjum degi í nokkra klukkutíma á meðan frjómagn er í hugsuninni og sköp- un í gangi. Að því búnu er brýnt að hætta, að ætla að halda áfram eftir að maður er orðinn tómur er dæmt til að mistakast. Síðan gerist eitthvað stórkostlegt um nóttina, í svefninum. Undirvitundin held- ur áfram að vinna – maður vakn- ar endurnýjaður og kemur nýr að verkinu. Ég hef nú verið nokkuð lengi að verki, í 40 ár, en ég nýt þess alltaf jafn mikið að vakna og uppgötva lífið í textanum.“ ÁREYNSLULEYSIÐ KEMUR MEÐ MIKILLI ÁREYNSLU Pétur Gunnarsson er í essinu sínu í Íslendingablokk, fyrstu skáldsögu sinni í átta ár, þar sem hann fl éttar saman sögur nokkurra íbúa í blokk við Lönguhlíð. Hann segir að eft ir 40 ára rithöfundarferil njóti hann þess enn að vakna og koma nýr að textanum. PÉTUR GUNNARSSON Persónurnar í Íslendingablokk fæddust fyrir tuttugu árum og Pétur ákvað að skrifa um þær sögu sem átti að gerast á rauntíma líðandi stundar. Tuttugu árum síðar og nokkrum uppfærslum er sagan komin út. „Það er dálítið skondið að sjálf uppfærslan varð síðan eitt af yrkisefnum bókarinnar.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Mín kenning um muninn á rithöfundi og ekki rithöfundi er sú að sá sem er ekki rithöf- undur brotnar saman yfir vangetu sinni. Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.