Fréttablaðið - 18.12.2012, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 18. desember 2012 | SKOÐUN | 19
Um hátíðir minnumst við hinna
látnu, ástvina og maka, fjöl-
skyldumeðlima og vina. Heim-
sókn í kirkjugarðinn tilheyrir
hátíðunum og það eru tregafull
spor á stundum að ganga að leiði
ástvinar. Það að missa einhvern
náinn er sár sem aldrei grær að
fullu, sérstaklega þegar sá sem
frá hverfur er í blóma lífsins.
Hvert okkar tekst á við slíkt á
sinn eigin hátt, minningarnar
eru margar og tilfinning arnar
geta verið miklar, sveiflast
mikið og varað lengi. Því þykir
okkur flestum ákveðin huggun
í því að votta hinum látnu virð-
ingu okkar með heimsókn til
þeirra og jafnvel kveikja á kerti
og leggja niður skreytingu til
marks um það að viðkomandi
var hluti af lífi okkar sem við
munum ekki gleyma.
Stolið af leiðinu
Ég fór í blómabúð um helgina
með konunni til að kaupa skreyt-
ingu á leiði látins ættingja. Það
sem ég heyrði þar fékk á mig og
gerði mig leiðan og í raun líka
reiðan. Þar var eldri maður sem
var að koma annan daginn í röð
til að kaupa skreytingu á leiði
fyrrverandi eiginkonu sinnar,
en þeirri sem hann hafði keypt
daginn áður hafði verið stolið af
leiðinu af einhverjum óprúttnum
aðilanum. Ég var steinhissa og
fann til með honum enda sárt að
missa ástvini og þykir tilhlýði-
legt að skreyta og hugsa vel um
leiði sinna nánustu.
Um leið og hann gengur hnar-
reistur út með pokann á leið í
kirkjugarðinn og lokar á eftir
sér segir afgreiðslukonan að
þetta sé ekki sá fyrsti né heldur
sá síðasti sem muni þurfa að
koma til að endurnýja skreyt-
ingar sem hefur verið hnuplað.
Þetta er rakalaus ósvífni og
eiginlega alveg ótrúlegt að ein-
hver skuli leggjast svo lágt að
stela af hinum látnu og þar með
vanvirða minningu þeirra. Ég
kannaði hvort slík háttsemi væri
algeng og var mér tjáð að því
miður kæmi þetta fyrir og væri
afar sorgleg hegðun. Einn sagð-
ist hafa fundið ráð svo það væri
erfiðara að fjarlægja skreyting-
ar, en það væri gert með því að
berja niður festingar einhvers
konar ofan í jörðina, helst hella
vatni meðfram svo þar frjósi og
nota slíkt sem „akkeri“ nokkurs
konar og festu til að þær fjúki
ekki eða sé hreinlega stolið.
Ættu að skammast sín
Nú kann svo að vera að þessi
hegðun hafi eitthvað breyst frá
því sem áður var, mögulega
hefur fólk minna fé milli hand-
anna sökum hinnar margum-
töluðu kreppu og því komi til
þessa. Það er hins vegar léleg
skýring og ónothæf um athæfi
sem þetta og tek ég ekkert mark
á henni. Þá ætlast ég hreinlega
til þess að það sem ég ákveð að
leggja á leiði fái að vera þar í
friði. Nú er auðvitað mikilvægt
að kirkjugarðar séu vel hirtir og
er skiljanlegt að blóm sem eru
farin að fölna séu tekin niður
af starfsmönnum garðanna eða
aðstandendum sjálfum, en það
er ekki það sem ég er að tala um.
Þeir sem hafa stolið af leiðum
annarra, og gildir þá einu hver
ástæðan er, ættu vitaskuld að
skammast sín og gera slíkt
aldrei framar. Það er harð-
neskjulegt og er vond framkoma
við tilfinningar og ást þeirra
sem leggja sig fram um að sinna
leiði þeirra sem þeir hafa misst.
Það er ekkert sem réttlætir þá
hegðun og eflaust hægt að við-
hafa mörg orð um þann sem
slíkt framkvæmir, en að mínu
viti ber það vott um fyrirlitn-
ingu og dómgreindarleysi við-
komandi. Það er í mínum huga
eiginlega ekki hægt að kalla
slíkan aðila annað en liðleskju
og aumingja, afsakið orðbragðið.
Liðleskjur og aumingjar!
Þetta er rakalaus
ósvífni og eiginlega
alveg ótrúlegt að einhver
skuli leggjast svo lágt að
stela af hinum látnu og þar
með vanvirða minningu
þeirra. Ég kannaði hvort slík
háttsemi væri algeng og var
mér tjáð að því miður kæmi
þetta fyrir og væri afar
sorgleg hegðun.
HEILSA
Teitur
Guðmundsson
læknir
„Ja, mikið óskaplega ertu
nú góð að vera að vinna
með þessu fólki,“ sagði
eldra fólk stundum við
mig þegar ég byrjaði að
vinna fyrir 15 árum. Ekki
fannst mér það, ég hafði
valið mér eitt skemmti-
legasta, fjölbreyttasta og
mest spennandi starf að
loknu sérnámi við Háskóla
Íslands, starf sem krefst
þess að ég komi víðar við
í samfélaginu en flestir, ef ekki
allir, aðrir gera í sínum störfum.
Ég hef verið við störf inni á
leikskólum, grunnskólum, fram-
haldsskólum, háskólum, einnig á
fæðingardeild og við jarðarfarir.
Sömuleiðis hef ég sinnt mínum
störfum á fasteignasölum og hjá
lögfræðingum, lögreglunni og
bráðamóttökunni, í áttræðisaf-
mælum og brúðkaupsveislum, hjá
spákonu og í hjónabandsráðgjöf.
Ekki má gleyma ungbarnaeftir-
liti og stofugangi á sjúkrahúsi eða
stjórnar- og húsfundum, atvinnu-
viðtölum og fermingum, gay pride
og framboðsfundum, ráðuneytum
og Alþingi. Varla er hægt að nefna
þann atburð þar sem við höfum
ekki verið að störfum. Ég er tákn-
málstúlkur.
Sammála gömlum frænkum
Undanfarin ár hefur mér þó fund-
ist að mínir æðstu yfirmenn hjá
mennta- og menningarmálaráðu-
neytinu séu sammála gömlum
frænkum um að við séum góðar
– já, við erum kvennastétt. Því
ekki virðist þeim finnast þörf á
því að greiða mér mannsæmandi
laun fyrir mína vinnu. Að
loknu háskólanámi fær
táknmálstúlkur rétt rúmar
280 þúsund krónur á mán-
uði. Á mínum vinnustað, Sam-
skiptamiðstöð heyrnarlausra og
heyrnarskertra, vinna 18 KONUR
sem táknmálstúlkar með yfir sjö
ára starfsreynslu að meðaltali.
Starfsreynslan gerir okkur kleift
að sinna öllum þessum fjölbreyttu
störfum sem við komum að og er
okkur nauðsynleg. Við vinnum
ekki á vöktum og meðal dagvinnu-
launin okkar eru 349.611 kr. á mán-
uði. Ekkert vaktaálag, en við erum
jafnvel kallaðar út á nóttunni og
vinnum oft á kvöldin og um helgar.
Ef við segjum upp
Ef við segjum upp getum við ekki
fengið vinnu í Noregi; þar er talað
norskt táknmál.
Ef við segjum upp fær fólk sem
fékk móðurmál sitt nýverið viður-
kennt í lögum sem jafnrétthátt
íslenskri tungu ekki lengur þjón-
ustu á því.
Ef við segjum upp fer þjóðfé-
lagið ekki á hliðina, en heill hópur
fólks fær ekki að sinna sínum dag-
legu skyldum á eigin móðurmáli,
nokkuð sem sem okkur finnst
sjálfsagt að gera.
Ef við segjum upp …
Ja, mikið óskaplega
ertu nú góð
KJARAMÁL
Árný
Guðmundsdóttir
táknmálstúlkur
➜ Ef við segjum upp
getum við ekki fengið
vinnu í Noregi; þar er
talað norskt táknmál.
Opið fram að jólum 11-21
Aðfangadagur 10-13
Höfðatorgi | S 577-5570
Erum á facebook
Verið velkomin
2ja
ÁRA
FYLGIHLUTIR SEM
TEKIÐ ER EFTIR
Plomo o PlataVera Design
Plomo o PlataFeldur Triwa Monica Boxley
S´nob