Fjarðarpósturinn - 11.02.1988, Síða 6
6
FJARÐARPÓSTURINN
„Mér finnst rosalega
gaman að syngja“
- segir ívar Helgason, sem fer með
titilhlutverkið í „Litla sótaranum“
Fyrir skömmu hóf íslenska óper-
an sýningar á barnaóperunni „Litli
sótarinn" eftir Benjamin Britten. í
aðalhlutverkunum eru bæði börn
og fullorðnir, en í titilhlutverkinu er
11 ára gamall hafnfirskur drengur,
ívar Helgason. ívar brást vel við
þegar hann var beðinn um viðtal í
Fjarðarpóstinn, og einn góðan veð-
urdag í síðustu viku var hann kró-
aður af í frímínútum í Öldutúns-
skóla, þar sem hann stundar nám i
5. bekk.
Hvað réði því að þú varst valinrt
í þetta hlutverk, ívar?
Söngstjórinn minn í Öldutúns-
skólakórnum, Egill Friðleifsson,
benti á mig, og eftir margar prufur
var ég vaiinn í hlutverk litla sótar-
ans ásamt Þorleifi Arnarssyni, en
við skiptumst á um að syngja hlut-
verkið. I fyrstu prufunni voru
margir reyndir, en smátt og smátt
minnkaði hópurinn, og loks vorum
við Þorleifur einir eftir.
Hvað koma margir söngvarar
þarna fram?
Við krakkarnir erum 12 samtals,
en skiptumst á, þannig að í hverri
sýningu eru 6 krakkar. Hlutverk
fullorðinna eru 5, og í þeim eru
þekktir óperusöngvarar, m.a.
Hrönn Hafliðadóttir, Elísabet
Erlingsdóttir og John Speight. Jón
Stefánsson er söngstjóri og Þór-
hildur Þorleifsdóttir leikstjóri.
Er ekki hlutverkið feiknalega
erfitt?
Jú, það er mjög erfitt, enda er ég
mestallan tímann á sviðinu. Við
æfðum i marga mánuði og þurftum
strax að læra lögin og textana til að
geta einbeitt okkur við leikinn. En
þetta er svo skemmtilegt að erfiðið
gleymist.
Um hvað fjallar „Litli sótarinn“?
Sýningin skiptist í tvo hluta.
Fyrri hlutinn er nokkurs konar
kennsla í sviðsetningu á óperu og
þá fá áhorfendur að læra nokkur
lög sem þeir syngja með í sýning-
unni. Síðari hlutinn er svo óperan
sjálf, um litla sótarann Bjart, sem
er neyddur til að fara að vinna fyrir
sér og pabba sínum, sem er bláfá-
tækur og hefur auk þess orðið fyrir
slysi. Sótararnir sem ráða yfir hon-
um eru vondir við hann og láta
hann vinna erfiðustu verkin. Einu
sinni festist hann í strompi, en
krakkarnir á heimilinu og barn-
fóstran þeirra hjálpa honum og
halda honum svo leyndum fyrir
vondu sóturunum. Þetta fer svo allt
vel að lokum.
Hefur þátttakan í óperunni ekk-
ert truflað þig við skólanámið?
Ég heid að þetta hafi ekkert trufl-
að námið. Söngurinn er mitt áhuga-
mál og ég eyði í hann tómstundun-
um í staðinn fyrir íþróttir eða eitt-
hvað annað.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að syngja?
Mér finnst rosalega gaman að
syngja, og mér er næstum alveg
__________ •' jt..
Félagarnir Þorleifur Arnarson og ívar Helgason skiptast á í hlutverki
Litla sótarans.
sama hvað ég syng ef lögin eru fall-
eg og skemmtileg. Lögin í „Litla
sótaranum“ eru t.d. mjög skemmti-
leg og líka þau sem við syngjum í
Öldutúnsskólakórnum. Mest er
gaman þegar margir syngja saman
og ólíkar raddir blandast í söngn-
um.
Stundum raula ég líka popplög,
þótt ég hlusti ekki mikið á svoleiðis
tónlist.
Ætlarðu að verða óperusöngvari
þegar þú verður stór?
Ég gæti vel hugsað mér það, en ég
veit að það kostar mjög mikla vinnu
og vilja, auk hæfileikanna. Það var
mjög gaman að vara valinn í svona
stórt hlutverk núna og kannski fæ
ég fleiri tækifæri eftir þetta. Ég
ætla að minnsta kosti að halda
áfram að syngja og læra meira.