Fjarðarpósturinn - 30.11.1988, Page 4
HflRDflB
pöstunnn
RITSTJÓRI OG ÁBM.: FRÍÐA PROPPÉ
AUGLÝSINGAR: HJÖRDÍS ÞORSTEINSDÓTTIR
DREIFING: HALLDÓRA GYÐA MATTHÍASDÓTTIR
LJÓSMYNDIR: FJARÐARPÓSTURINN OG RÓBERT ÁGÚSTSSON
SETNING, UMBROT, FILMUVINNA OG PRENTUN: BORGARPRENT
ÚTLIT: FJARÐARPÓSTURINN
SKRIFSTOFA FJARÐARPÓSTSINS ER AÐ REYKJAVIKURVEGI 72 OG ER OPIN ALLA VIRKA
DAGA FRÁ KL. 10-17. SÍMAR 651745 OG 651945 (SÍMSVARI EFTIR LOKUN SKRIFSTOFU).
Aö taka ábyrgð á eigin lífi
Þaö getur reynst erfitt að vera uppalandi unglings, sérstak-
lega vegna þess hversu margt í okkar þjóöfélagi viröist ekki
standast yfirlýsingar okkar sjálfra um hvað rétt sé og rangt.
Greinarhöfundur átti í meiriháttar erfiðleikum meö svör í vik-
unni, þegar ungur maður spurðist fyrir um tilgang æðri
menntunar. Hann hafði fylgst með fréttum af áfengiskaupum
forseta Hæstaréttar og lék forvitni á að vita til hvers sá maður
hefði verið að læra lög og eyða áratugum, eins og hann orðaði
það, í að nema þau fræði. „Hann lætur síðan hanka sig í
svona vitleysu. - Lærði hann ekkert um hvað rétt er og rangt
í öll þessi ár?“
Það verður oft lítið um svör, þegar stórt er spurt, en stáksi er
ekki einn um að spyrja þessarar spurningar. Þjóðin spyr einnig
og við hverju er að búast í siðferði lítillar þjóðar, þegar viðhlít-
andi svörgefast ekki.
Talandi um unglinga og siðferði, þá hefur það tímabil í lífi
einstaklingsins reynst mörgum uppalandanum erfitt og oftar
en ekki erfiðara en vera þyrfti. Þettatímabil í lífi einstaklingsins
ræður oft úrslitum um hvernig til tekst með framhaidið, - hvað
verður úr hverjum og einum. Það hlýtur að skipta miklu máli
hvernig forskriftin er, hvernig fordæmi þjóðfélagið og fyrir-
myndirnar gefa.
Greinarhöfundur sat frumsýningu unglingaleikhúss Leikfé-
lags Hafnarfjarðar á leikverkinu „Þetta er allt vitleysa,
Snjólfur", sl. sunnudagskvöld. Leikverkið er unnið að stórum
hluta af unglingunum sjálfum og gefur góða innsýn inn í hugs-
unarhátt þeirra og samskipti við foreldrana og umhverfið. - Þar
fæst góð lexía í tilfinningaróti unglingsáranna, þegar ekkert
kemur heim og saman. Enginn virðist skilja krakkana, foreld-
rarnir hafa steingleymt hvernig er að vera unglingur, sýndar-
mennskan og töffheitin eru allsráðandi.
Boðskapur verksins að mati undirritaðrar er að unglingar
eru einfaldlega manneskjur eins og hinir eldri, með sömu
langanir og væntingar. Meginmunurinn er að þau hafa ekki
fundið sér farveg, ekki tekið ákvörðun um hvernig þau ætla að
verja framtíðinni, - og það reynist mörgum erfitt að taka svo
afdrifaríka ákvörðun. Skilningur hinna eldri á þeirri stöðu virð-
ist vera allt sem þau fara fram á.
Sýning krakkanna er hressileg, skemmtileg og umfram allt
fróðleg. - Framtak leikfélagsins, að gefa krökkunum tækifæri
á að tjá sig á þennan hátt er lofsvert, og ætti að vera okkur hin-
um til eftirbreytni.
Það er ekki nóg að hvetja til heilbrigðs og göfugs lífernis,
þegar fyrirmyndirnar bregðast. - Auðvitað er enginn fullkom-
inn og öllum getur skjátlast. Dæmið um áfengiskaup forseta
Hæstaréttar hlýtur að verða dæmisaga um þann þátt tilver-
unnar, þegar spurt er. - Það getur einnig reynst gott tækifæri
til þess að útskýra, hvernig hver og einn einstaklingur verður
sjálfur að taka ábyrgð á eigin lífi og athöfnum. - Langskóla-
nám og æðstu metorð breyta ekki þeirri staðreynd.
Útvarp Hafnarfjöröur eins árs:
Hlustun fer sívaxandi
Útvarp Hafnarfjörður er eins
árs í dag, 30. nóvember. Útvapið
státar ekki af langri sögu, en það
hefur vissulega náð fótfestu. Má
m.a. marka það af vaxandi hlust-
un og þeim gífurlega áhuga, sem
nemendur grunnskólanna og
Flensborgarskóla hafa á þeim
tímum, sem þeim bjóðast til
frjálsrar afnota hjá útvarpinu.
Halldór Árni Sveinsson eigandi
Útvarps Hafnarfjarðar og útvarps-
stjóri sagði í viðtali við Fjarðar-
póstinn í tilefni af afmælinu, að
útvarpið væri að vissu marki á
tímamótum. Starfsemin yrði
stokkuð upp um áramótin. Þáyrði
lagt í skipulega söfnun heimilda,
hljóðritun tónlistarviðburða og
meiri áhersla lögð á talsmálsefni.
Vikulegir umræðuþættir og erindi
um málefni bæjarins væru efst á
óskalistanum hvað varðar nýjung-
ar á komandi ári.
Halldór sagði nánar aðspurður
um hvers konar heimildasöfnun
hann hefði í huga: „Eftir eins árs
starf við rekstur útvarpsins, geri
ég mér grein fyrir hversu gífurlegt
heimildargildi er fólgið í öllu því
efni, sem ein útvarpsstöð hljóðrit-
ar. Hér er um að ræða hvers kyns
fundi, samkomur, tónleika og
tímamótaviðburði í bæjarlífinu.
Þessu þarf að mínu mati að halda
til haga.“
Varðandi dagskrá á komandi
mánuðum sagði Halldór, að
útsendingartími útvarpsins yrði
áfram á milli kl. 18 og 19 virka
daga. Einnig sagði hann, að aukið
og gott samstarf væri nú við
æskulýðs- og tómstundaráð og
myndi það vonandi leiða til aukins
útsendingartíma á kvöldin, m.a.
væri í undirbúningi að hefja bein-
ar útsendingar frá Vitanum. - Til
hamingju Halldór Árni.
Halldór Arni við útsendingu í Útvarpi Hafnarfjarðar við Kaplahraun.
Útsendingarborðið hannaði og smíði hann sjálfur, sem ogflestar inn-
réttingar.
Skrifstofuhúsnæði
óskast
Óskum eftir ca. hundrað fermetra leiguhúsnæði
fyrir starfsemi okkar í Hafnarfirði, frá 1. janúar n.k.
■.—— ...............
Flóamarkaður
Áreiðanlegt par óskar eftir
tveggja herbergja lítilli íbúö.
Reyklaus. Öruggar
mánaðargreiöslur og góöri
umgengni heitiö. Uppl. í
vinnusíma 54780.
E.S.: Á sama stað fæst
gefins fimm mánaöa faliegur
og vel vaninn kettlingur
Flugleiðir
og Urval í
nýtthúsnæði
Skrifstofa Flugleiða og Ferða-
skrifstofunnar Urval er flutt að
Strandgötu 19. Hefur orðið meira
en lítil andlitsupplyfting á hús-
næðinu og þess virði að ganga þar
við, þó ekki sé nema til að sjá þá
hlið mála.
Skrifstofuna reka systurnar
Elín og Bryndís, dætur Jóhanns
Pedersen. Þær sögðu, að þar væri
að fá alla þá þjónustu sem veitt
væri hjá þessum fyrirtækjum í
Reykjavík. Þar má einnig kaupa
flugmiða með öllum öðrum
flugfélögum en Flugleiðum, bæði
innlendum og erlendum.
Þá má benda Hafnfirðingum
sérstaklega á, að hjá þeim Elínu
og Bryndísi má stytta biðina á
Reykjavíkurflugvelli eftir kaup-
um á miðum með innanlandsflugi,
því þær afgreiða þá einnig. Fæstir
virðast vita um þá þjónustu.
ESSOog/
eðaOUS
Esso, Olís. - Esso stendur fyrir
Olíufélagið h.f., en Olís fyrir
Olíuverslun Islands h.f. - Til skil-
greiningar fyrir þá sem fletta upp
olíufélögunum í símaskrá.
Engar afsakanir, en Fjarðar-
póstinum varð það á í síðasta tölu-
blaði, meira að segja á forsíðu, að
rugla saman OLÍS og ESSÓ, þ.e.
hinni góðu þjónustumiðstöð á
mótum Lækjargötu og Reykja-
nesbrautar. Biður Fjarðarpóstur-
inn alla viðeigandi velvirðingar á
þessum mistökum.
Páll V. Bjarnason
arkitekt og
Halldór Hannesson
verkfræðingur
Sími54355
lír 05 skartqripir
STRANDGÖTU 27,
Sími50590
OPIÐ VIRKA DAGA 9-18
FÖSTUDAGA 9-18
LAUGARDAGA 10-16
Strandgötu 32 * S2615
Opið: virka daga
föstudaga
laugardaga
9-18
9-19
9-16
ERUMFLUTT
f
A
STRANDGÖTU 30
0PIÐMÁN-FIM 10.00-18.00
FÖSTUDAGA 10.00-19.00
LAUGARDAGA 10.00-16.00
Trönuhrauni 6, Hafnarfirði
Sími 651147
Vorum að
taka upp
nýjar vörur
Bmiarion
verslun fyrir þig
Bryndís til vinstri og Elín á nýju skrifstofunni við Strandgötu 19.
TRYGGVIÓLAFSSON
URSMIÐUR
STRÁNDGÖTU 17 - S. 53530
AA -i
OPíP:ýirka£laða 9-18
íauqardiqa 10-16
Jóíapíixttamir komnir
BING Q<3 GRÖNDAHL
KQNUNGLEGA
DESIRÉE
BLÓMABÚÐIN
BURKNI
LINNETSTIG 3 - SÍMI 50971
OPIÐ
ALLA
DAGA
KL. 9-21
LIST ASMIÐ J AN
NORÐURBRAUT41 -SÍMI 53170
ATHUGIÐ: Breyttur opnunartími
Mánudagatil föstudaga kl. 14-19
Laugardaga kl. 13-16
Einnig mánudags- og fimmtudags-
kvöld kl. 20-22
Orðsending
frá
Rafveitu Hafnarfjarðar
Greiðiö í tíma
Forðist óþægindi
^ Bestu kveðjur,
m RAFVEITA
HAFNARFJARÐAR
A DOFINNIHJA HAFNARBORG:
Yfirlitssýning á verkum frú Hönnu Davíðsson verður opnuð n.k.
laugardag, 3. desember kl. 14 í litla salnum. Sýningin er haldin í tilefni
af því, að hundrað ár eru nú liðin frá fæðingu hennar.
Sýningin er einstæð að því leyti, að verk frú Hönnu hafa aldrei kom-
ið fyrir almenningssjónir fyrr, utan örfárra mynda, sem voru sýndar í
glugga Morgunblaðshússins á síðari hluta sjötta áratugarins. Það eru
afkomendur frú Hönnu, sem standa að þessari sýningu, en verkin eru
öll f einkaeign. Af verkum, sem Hafnfirðingum eru kunn eftir frú
Hönnu, má nefna skírnarfontinn og altaristöfluna f Fríkirkjunni, eins
og greint var frá í síðasta blaði.
Frú Hanna Davíðsson stundaði myndlistarnám í Kaupmannahöfn á
fyrsta tug aldarinnar og var hún meðal fyrstu kvenna af íslenskum upp-
runa, sem lögðu slíkt nám fyrir sig. Sýningin verður opin frá 3. til 11.
desember frá kl. 14 til 19 alla daga nema þriðjudaga.
Áframhaldandi er sýning á listaverkum i eigu Hafnarborgar í stóra
salnum. Sýningartími er hinn sami og á sýningu frú Hönnu.
^ Nýtt á íslandi:
Mjög sérstakir útskornir spegla-vasar.
Klukkur og skreytingar frá V. Þýskalandi.
Jólaskreytingar-Jólastjörnur ákr. 695,-
Styttur frá Rustica. Margs konar gjafa-
og jólavörur.
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 10 til 21
Garðablóm
Garðatorgi 3
Sími656722
Við erum flutt á Strandgötu 19.
Farseðlar um allan heim.
Innanlandsfarseðlar
GREIÐSLUKORT
FLUGLEIDIR
Ferðaskrifstofan URVAL
UMBOÐSSKRIFSTOFA, STRANDGÖTU 19,
SÍMAR: 54930 OG 651330
Frá
Vatnsveitu
Hafnarfjarðar
Nú stendur yfir mjög ítarleg leit að leka á vatnslögnum
í bænum. Viljum við því beina því til húsráðenda, að
þeir fylgist með því að hvergi sé óþarfa rennsli á vatni.
Einnig eru húsráðendur beðnir að hafa samband við
Áhaldahús, ef þeir heyra suð í vatnslögnum. (Suð heyr-
ist í flestum tilfellum vegna leka).
Hafnfirðingar. Stöndum saman í að uppræta bruðl á
vatninu okkar.
STARFSMENN VATNSVEITUNNAR
4
5