Fjarðarpósturinn - 30.11.1988, Page 7
Guðmundur Jónsson. Ragnar Jónsson.
Guðmundur og Ragnar lentu í stórum hópi landsmanna, sem mátti
sjá af hlutdeild í 15 milljón króna lottóvinningnum um síðustu helgi.
Þeir geta ekki einu sinni státað af aukavinningi, því hvorugur hafði
nokkra tölu rétta. Væntanlega eru þeir heppnari í einhverju öðru.
Ragnar taldi þetta þó ekki mikið mál, virtist vanur því að sjá af stóru
vinningunum. Hann kvaðst ætla að koma með nýjar tölur, „allar
stakar" sagði hann. Þær eru: 3-6-17-19-20-31-33
Guðmundur gaf sér tíma til að hugsa nýjar tölur, þvf hann taldi þær
gömlu handónýtar. Þegar hringt var heim til hans til að grennslast fyrir
um nýju tölurnar, svaraði Ásgeir sonur hans og hafði tölur föður síns
á blaði. Þær eru: 3-6-10-14-22-25-31.
Ásgeir sagði aðspurður, að tölurnar væru flestar út í loftið, reyndar
væri ein þeirra happtalan sín og önnur föður hans. Happatala Ásgeirs
er 3, en Guðmundar 6.
Tilviljanirnar í talnasamsetningu geta verið einkennilegar, því
Ragnar er einmitt með þessar sömu tölur, þ.e. 3 og 6, reyndar einnig
31. Þrjár tölur eins og þó potturinn verði kannski ekki eins stór um
næstu helgi og þá síðustu, dregur það ekki úr spennunni hjá okkur í
„happ“-firðingaleiknum.
Kvennaathvarfiö styrkt
Það var samþykkt á síðasta
bæjarstjórnarfundi, að veita
Kvennaathvarfinu í Reykjavík nú
þegar 200 þúsund krónur sem
styrk frá bæjarfélaginu.
Það voru fulltrúar meirihlut-
e
UUMFEROAR ~
F
>RÁD
9
ans, sem lögðu fram tillögu þessa
efnis. Til nokkurra orðaskipta
kom vegna máls þessa. Fulltrúar
minnihlutans lýstu yfir stuðningi
við málið, en kvörtuðuyfir því, að
málið hafði ekki verið lagt fyrir
bæjarráðsfund þá fyrr um daginn.
Sögðu minnihlutafulltrúarnir,
sem tjáðu sig um málið, að þeir
hefðu með glöðu geði gerst með-
flutningsmenn, ef þeim hefði gef-
ist kostur á því.
Tillagan var síðan samþykkt
með 11 samhljóða atkvæðum allra
bæjarfulltrúa.
DEKKIÐ
Reykjavíkurvegi 56
Sími 51538
Nú er tími
vetrardekkjanna
Bjóóum úrval af nýjum dekkj-
um
ásamt sóluðum Noródekk
Vanir menn.
Ó, ÞÚ HÝRIHAFNARFJÖRÐUR:______________________________
„Hafnfirðingar lifa hátf
Ekki var ætlunin, að hagyrðingaþátturinn okkar dagaði uppi. Þann- Þættinum barst einmitt ein slík
igfórþó,aðþegargrípaáttiínæstufyrrípartaáritstjórninni,hafðiein- frá hagyrðingi, sem kýs að nota
hver tekið sig til og komið þeim fyrir kattarnef. Ekki var það þó vegna skáldanafnið Granni. Hún ber
þess, að fyrripartarnir væru taldir illa nothæfir, heldur urðu örlög yfirskriftina „Kreppuvísa" og er
skáldskaparins að víkja í hreinsunarátaki á staðnum. svohljóðandi:
Við biðjum sendendur velvirð- vísur, eftir hentisemi og því sem
ingar og hvetjum þá til að senda hugur stendur til. Gaman væri að
okkur línu á ný. Éinnig hvetjum þær fjölluðu um líðandi stund og
við alla hagyrðinga til að senda það sem efst er á baugi í Firðin-
okkur fullskapaðar stökur og um.
Aðrir landsmenn eiga bágt
og fara bara á „fittið“.
En Hafnfirðingar lifa hátt
og far‘ í Rafha í „hittið“.
Verðlaunasamkeppni um ritgerð:
ísland og Nato, fríður og frelsi
í tilefni af fjörtíu ára afmæli
Atlantshafsbandalagsins hinn 4.
aprfl n.k. hafa Varðberg, Félag
ungra áhugamanna um vestræna
samvinnu og SVS, Samtök um
vestræna samvinnu, ákveðið að
efna til samkeppni meðal ungs
fólks um rítgerð, sem fjalli um
efnið „ísland og Nato, friður og
frelsi.“
Reglur samkeppninnar eru
eftirfarandi:
1. Höfundarséuáaldrinum 16-25
ára.
2. Ritgerðin sé ekki styttri en sem
svarar þremur venjulegum vél-
rituðum síðum, (hún þarf ekki
að vera vélrituð).
3. Ritgerðir séu merktar dulnefni
eða númeri og sendist í um-
slagi, þannig árituðu: Ritgerð-
arsamkeppni, Varðberg, póst-
hólf 28, 121 Reykjavík. Inni í
umslaginu sé auk ritgerðarinn-
ar annað umslag, lokað, og í
því upplýsingar um höfund,
heimilisfang hans og símanúm-
er.
4. Ritgerðir í samkeppninni þarf
að póstleggja fyrir 1. febrúar
1989.
5. Þriggja manna dómnefnd,
skipuð af stjórnum Varðbergs
og SVS, veitir þrenn verðlaun
fyrir bestu ritgerðir, að áliti
hennar.
6. Verðlaunin eru fjögurra til
fimm daga ferð til höfuðstöðva
Atlantshafsbandalagsins í
Brússel. Verðlaunahafarnir
þrír munu fara saman í fylgd
fararstjóra vorið 1989.
7. Nánari upplýsingar eru veittar
í síma 10015.
(Fréttatilkynning)
Nýr húsvörður í Flensborg
Þá er aö greina frá kjörí bæjarstjórnar á síðasta fundi hennar um
nýjan húsvörð í Flensborgarskóla. Það var samhljóða tillaga skóla-
mcistara og skólanefndar sem hlaut samþykki bæjarstjórnar.
Ragnar Sigurðsson, Krókahrauni 8, Hafnarfirði, var því kjörinn
með 11 samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa. Um stöðuna sóttu níu
aðilar.
Teppahreinsun
Leigjum út léttar og kraftmiklar teppa-
hreinsivélar. Pantið tímanlega íyrir jól.
Upplýsingar í síma 54979.
7