Fjarðarpósturinn - 04.10.1990, Síða 1
BONUS
býéuý betuy
Fjöldauppsagnir hjá Hagviifci:
FJflRDnR
22. TBL. 1990-8. ÁRG.
FIMMTUDAGINN 4. OKT.
VERÐ KR. 70,-
BONUS
ÓQ bctíiÝ
Framkvæmdir við
Blönduvirkjun langt
á undan áætlun
Fjöldauppsagnir hafa staðið yfir hjá Hagvirki h.f. Að sögn Gísla
Friðjónssonar, aðstoðarforstjóra, verða starfsmenn fyrirtækisins að
óbreyttu orðnir 150 um áramótin frá því að vera 500, en það er fækkun
um 350 manns. Ekki voru handbærar tölur hjá fyrirtækinu í gær varð-
andi það hversu margir Hafnfirðingar eru í hópnum sem sagt hefur ver-
ið upp.
Af þessum fjölda eru uppsagnir
flestar við Blönduvirkjun, eða um
200 manns að sögn Gísla. Hann
sagði uppsagnirnar allar stafa af
verkefnaskorti, sem ekki væri
óeðlilegt á þessum árstíma.
Framkvæmdum Hagvirkis við
Blöndu hefur miðað mjög vel.
Þegar þeim verður hætt yfir
vetrarmánuðina þann 1. nóvem-
ber n.k. lætur nærri að aðeins sé
unt 10% eftir af heildarfram-
kvæmdunum. Umsamin verklok
eru ekki fyrr en að ári, þannig að
Gísli sagði að létt verk yrði að
ljúka þeim næsta vor.
Aðspurður um hvort hann teldi
að vænta mætti fleiri verkefna,
sagði hann, að álverssamningur
myndi áreiðanlega þýða að t.d.
Reykjavíkurborg vildi hraða
framkvæmdum við uppbyggingu
byggðar t.d. í Grafarvogi, til að
vera betur undirbúin í vor, eða
þegar þenslan hæfist í tengslum
við slíkar stórframkvæmdir. Að
öðru leyti væri erfitt að sjá ný
verkefni fyrir.
Uppsagnirnar hjá Hagvirki ná
yfir alla starfsemina, einnigstarfs-
menn á skrifstofum. Gísli sagði að
t.d. hefði fyrirtækið sagt upp svo
til öllum verkstæðismönnum,
þannig að tæki og vélbúnaður yrði
ekki endurnýjaður í vetur.
Öllum starfsmönnum fyrir-
tækisins, bæði þeim sem sagt hef-
ur verið upp sem öðrum, hefur
verið boðið til töðugjalda þann
26. októbern.k. aðHótel íslandi.
Stangaveiði og „sjóræningjanet“
Það hefur verið nokkuð lífleg
stangaveiði í smábátahöfninni
síðustu daga. Þar hafa menn
dregið margan vænan silunginn á
land og einnig hafa sést þar
laxar. Eins og sjá má á myndinni
voru áhugamenn um stangaveiði
nokkrir á bryggjunni, en hún var
tekin um miðjan dag í gær.
Ef myndin er vel skoðuð, má
einnig sá að einhverjir viðhafa
þarna aðra tegund veiði. Frá
bryggj uendanum, þar sem strák-
arnir standa og yfir að grjót-
hleðslunni sem Ijósmyndarinn
stendur á, er strengt fiskinet.
Á meðan ljósmyndari stóð
þarna við í gær festist myndar-
legur fiskur, að sjá u.þ.b. 5-6
punda, í netinu, líklega lax. Ekki
kom nokkur maður að vitja um
netið á meðan Ijósmyndarinn
stóð þarna, vopnaður myndavél.
Stákarnir toguðu nokkrum sinn-
um í netið og urðu til þess að
hjálpa fisknum úr prísundinni. -
Net sem þessi hafa, skv. heimild-
um Fjarðarpóstsins, gengið und-
ir nafninu sjóræningjanet.
Heilbrigðisfulltrúi Hafnar-
fjarðar sagði, er tíðindamaður
leitaði upplýsinga hjá honum, að
enginn hætta væri af því að borða
fisk veiddan í höfninni. Hann
sagði að þó væri vissara að gæta
vel að því sem fiskurinn gæti bor-
ið með sér heim á eldhúsborð,
þ.e. á hreistrinu.
Grétar Þorleífsson um kjör Jónu Óskar í stöðu forstöiumanns og ummæli bæjarfuHtma
Alþýöuflokksins:
Skítkast og staðhæfinqar sem eiga
ekki við nein rök að styðjast
Grétar Þorleifsson verkalýðs-
foringi, formaður húsnæðisnefnd-
ar og Alþýðuflokksmaður, „svo
lengi sem elstu menn muna“, svo
notuð séu hans eigin orð, er
ómyrkur í máli í garð meirihluta
bæjarstjómar, ■ viðtali við Fjarð-
arpóstinn sem birt er í miðopnu
blaðsins í dag. Hann segir m.a. að
Alþýðuflokkurinn sé að slitna úr
tengslum við uppruna sinn og tel-
ur bæjarstjóra og ráðherra félags-
mála rangtúlka og hagræða mál-
um að eigin hentisemi og án allrar
skynsemi.
Grétar segir m.a. ráðningu
Jónu Óskar hreina hefndarráð-
stöfun vegna þess að meirihluti
nefndarinnar gat ekki sætt sig við
þá einhliða kröfu kratanna að
Eyjólfur Sæmundsson yrði for-
maður. Engin leið hefði verið,
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
hans, að ná sáttum við bæjar-
stjórnarmeirihlutann í því máli.
Það kemur og fram í viðtalinu,
að málefni húsnæðisnefndar hafi
verið mjög svo rangtúlkuð af Al-
þýðuflokksmönnum í bæjar-
stjórn, svo varla stendur einn bók-
stafur eftir réttur. Grétar vísar
einnig á bug öllum aðdróttunum
um „hræðslubandalag" sitt, Sig-
urðar T. og fulltrúa Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðubandalags í
nefndinni.
Bæjarstjórinn, ummæli hans og
afgreiðsla á málefnum Grétars
sem almenns flokksmanns fær
einnig umfjöllun og segir hann þar
m.a. að persónuleg afstaða bæjar-
stjórans til hans sé líklegust
ástæða þess að brunamálanefnd
hefur enn ekki verið kölluð saman
á kjörtímabilinu og sé óstarfhæf.
- Sjá miðopnu
Gegn
ýldupest
Bæjaryfirvöldum hafa
verið afhentir undirskrift-
arlistar frá íbúum Herjólfs-
götu og nágrennis þar sem
ítrekaðar eru kvartanir sem
Fjarðarpósturin hefur
greint frá vegna ýldupestar
frá fiskvinnslustöð við
götuna. Krafist er þess að
bæjaryfirvöld sitji ekki að-
gerðarlaus í málinu.