Fjarðarpósturinn - 04.10.1990, Síða 3
Útíbússtjóraskipti í íslandsbanka:
Jóhann kveður
Jóhanni Egilssyni, útibússtjóra Islandsbanka í Hafnarfirði og Garða-
bæ, hefur verið falið það verkefni að koma á stofn nýju útibúi íslands-
banka við Gullinbrú í Grafarvogi. Hann kveður því Hafnfirðinga eftir
13 og hálft ár í starfi hér, fyrst við Iðnaðarbankann og síðar Islands-
banka. Settur útibússtjóri í hans stað er Albert Sveinsson.
Tíðindamaður Fjarðarpóstsins
heimsótti Jóhann sl. föstudag, en
það var síðasti vinnudagur hans í
Firðinum. Jóhann sagðist áreið-
anlega eiga eftir að sakna Fiafn-
arfjarðar og Hafnfirðinga, en
hann gæti ekki skorast undan því
trausti að byggja upp nýtt og stórt
útibú.
Jóhann hóf störf í Firðinum
árið 1977 og átti því stóran þátt í
að byggja upp það atvinnulíf sem
nú er hvað öflugast í bænum. A
þeim tíma, sem Jóhann kom
hingað, versluðu flestir við Spari-
sjóðinn. I tíð Jóhanns hafa innlán
í Iðnaðarbankanum, síðar ís-
landsbanka, stóraukist.
Ásamt tíðindamanni Fjarðar-
póstsins voru þeir Grétar Þorleifs-
son og Sigurður Sigurjónsson,
sem þekkja uppbyggingu iðnaðar-
ins í bænum hvað best, mættir á
staðnum til að kveðja Jóhann og
votta honum virðingu sína og
þakklæti. Þeir báðu Fjarðarpóst-
inn að koma því á framfæri, að
það hefði verið iðnaðarmönnum
og iðnfyrirtækjum í bænum mikil
gæfa að fá Jóhann til starfa. „Það
þekktist ekki á þeim tíma, þegar
hann kom í bæinn, að bankastjór-
ar væru á hlaupum úti í bæ til að
ráðleggja mönnum og benda þeim
á bestu leiðir til að treysta fjárhag-
inn“, sagði Sigurður. „En þetta
gerði Jóhann með þeim árangri
sem sjá má í Firðinum í dag.“
Fjarðarpósturinn sendir Jó-
hanni bestu kveðjur og óskir um
velfarnað í nýju starfi. Með góð-
fúslegu leyfi vinar hans, Kristjáns
Oddssonar, framkvæmdastjóra
íslandsbanka í Kringlunni, látum
við fylgja með í lokin kveðju til
hans, er hann tók áskorun bank-
ans um að taka að sér Gullin-
brúna:
„Mér finnst fara vel á því
að frækinn bankakarlinn
göfgu nafni gegni sí
sem Gullinbrúar-jarlinn"
IIHBTLISHUSALOÐIR
OG RADHUSALOOIR
Til sölu í opnu útboði
glæsilegar útsýnislóðir í
íbúðabyggðinni
SETBERGSHLÍD á Fjárhúsholfi.
Útboðsgögn afhent á skrifstofu
SH verktaka Stapahrauni 4.
Tilboðum skal skila fyrir kl. 16.00
15. október 1990
SH VERKTAKAR
Stapahrauni 4, Hafnarfirði, sími 652221
Hjalti Gunnlaugsson spilar Ijúfa
tónlist fyrir matargesti
fimmtudagskvöld, föstudagskvöld,
og laugardagskvöld
FÖSTUDAGSKVÖLD:
Miðnæturgestur: Siggi Björns
LAUGARDAGSKVÖLD:
Miðnæturgestir: tveir hressir Gaflarar með gítara
SUNNUDAGSKVÖLD:
Jón Möller og félagar leika jass.
Gestur þeirra: Rúnar Georgsson
STRANDGÖTU 55 - HAFNARFIRÐI • SÍMI 651213
Ekki spyrja
„Hvað tókstu marga
ökutíma?“
Ekki segja
„Ég tók ekki... nema.
1
+
1
= 2
HEILBRIGD
SKYNSEMI!
Segjum frekar
„Það þurfa allir að
gefa sér góðan tíma
í ökunámi!“
HELGARMATSEÐILL 4.-7. OKT.
Léttsteikt kjúklingaliftir
eða
Reykt laxarós með ChantiIIysósu
*
Sorbet
*
Léttsteikt gæsabringa með trönuberjasósu
eða
Sjávarréttagratin A. Hansen
*
Mandarínuostakaka með rjóma
eða
Ferskur ananas með hindberjasósu
★
Samtals verð 2.990,-
MEIRIHÁTTAR STEMMNING Á LOFTINU ALLA DAGA
651130
A. Hansen
s
651130
3