Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 28.11.1991, Side 4

Fjarðarpósturinn - 28.11.1991, Side 4
FMRÐflR pftsfttww RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: FRÍÐA PROPPÉ AUGLÝSINGASTJÓRI: HANNA FRIÐJÓNSDÓTTIR ÍÞRÓTTIR: ÞÓRÐUR BJÖRNSSON OG SVEINBJÖRN BERENTSSON DREIFINGARSTJÓRI: HALLDÓRA GYÐA MATTHÍASDÓTTIR LJÓSMYNDIR OG ÚTLIT: FJARÐARPÓSTURINN INNHEIMTUSTJÓRI: SIGURÐUR GÍSLI BJÖRNSSON PRENTVINNSLA: FJARÐARPÓSTURINN OG BORGARPRENT SKRIFSTOFA FJARÐARPÓSTSINS ER AÐ BÆJARHRAUNI 16, 3. HÆÐ, PÓSTFANG 220 HAFNARFIRÐI. OPIÐ ER ALLA VITRKA DAGA FRÁ KL. 10-17, SÍMAR 651945 (SÍMSVARI EFTIR LOKUN) 651745.FJARÐARPÓSTURINN ER AÐILI AÐ SAMTÖKUM BÆJAR- OG H^BaBSEHÉUABkÁÐÆ Eins og óþekkir skólakrakkar Sú von, aö breytingarnar á starfsháttum alþingis, þ.e. fækkun þingdeilda í eina málstofu og þar meö fækkun þingnefnda, virðist ekki ætla að leiða til markvissari vinnubragða þingheims. Það er hálfsorglegt að fylgjast með störfum alþingis þessa dagana. í gær voru t.d. utandagskrárumræður um þrjú málefni og samkvæmtfréttum Ijósvakamiðlanna var hálfgerð óstjórn á þingheimi. Forseti þingsins þurfti að áminna þingmenn ítrekað. Hljómuðu áminningarnar á rás 2 í Ríkisútvarpinu eins og að kennari væri að skamma óþekkan bekk í grunnskóla. Ekki er enn komin mikil reynsla á, hvort störf þing- nefnda verða skilvirkari, en það hlýtur að skýrast á síðustu vikum fyrir jól, enda oftast þá og að vori, sem flöskuhálsinn í nefndarstörfum bitnaði á þingstörfunum í gamla kerfinu. - Það verður fróðlegt að sjá, hvort löggjafarsamkoman verður skilvirkari í nýja kerfinu, þegaruppverðurstaðiðívor. Þvímiðurbendirfátttilþess, miðað við fréttir af löggjafarsamkomunni. Jólin snemma á ferðinni Eins og sjá má af fréttum í Fjarðarpóstinum í dag, virðist jólaundirbúningurinn óvenjulega snemma á ferðinni. Menn hafa leitað skýringa á þessu og hefur hver sitt svar. Sumir vilja meina að þetta sé afleiðing af snemmbúnum jólainnkaupaferðum landans til Evrópu- borga. Þar eru jólaskreytingar settar upp í verslunar- hverfum strax í nóvember og allt er gert til þess að auka jólaverslunina. Hugsum um það Jólin stytta svartasta skammdegið. Börnin eru full tilhlökkunar og velflestir fullorðnir hlakka einnig til hvíldar og samveru með ættingjunum. Jólin eru því í hugum velflestra sannkölluð fjölskylduhátíð. í gær var „bindindisdagur fjölskyldunnar". - Sumum finnst léttur leikur, að sleppa því að hafa áfengi um hönd í miðri viku, en því miður er það ekki alls staðar sjálfgefið. Öðrum finnst sjálfsagt að hafa vín um hönd um helgar og á stórhátíðum. Margir kunna að fara með áfengi, en því miður ekki allir. Þau börn eru til, sem fá hnút í magann, þegar vinirnir tala um jólin. Verður allt í lagi heima á jólunum í ár? flýgur í gegnum huga þeirra - Þetta er dapurleg staðreynd, en sönn. Hugsum um það. Jólaundirbúningurinn óvenjusnemma á ferðinni: Jólapappírssala Lions um helgina Lionsklúbbur Hafnarfjarð- ar verður með sína árlegu jólapappírssölu um helgina. Allur ágóði rennur óskiptur til líknarmála hér í Hafnarfirði, að sögn Baldvins E. Alberts- sonar, kynningarfulltrúa klúbbsins. Lionsmenn hafa ár hvert staðið sjálfir við pökkun ájólapappír,eníhverjum poka eru ennfremur merkimiðar og skrautband. Lionskúbbur Hafnarfjarðar hefur látið til sín taka í líknar- málum í bænum á 35 ára starfs- ferli sínum, en klúbburinn var stofnaður 14. aprfl 1956. Þeirhafa m.a. styrkt heimili fyrir þroska- hefta í Norðubænum, einnig sambýlið að Klettahrauni 17. Þá hafa þeir gefið búnað til St. Jós- efsspítala og Hrafnistu, DAS, að ógleymdum stuðningi við Kisu- deildina á dagheimilinu Víði- völlum. Félagar í Lionsklúbbi Hafnarfjarðar pakka inn jólapappírnum. utf iæáúM GLER-, POSTULIN- OG SILFURSKÁRTGRIPIR Urval af kopar- og messingvörum Utprjónaðir sokkar og vettlingar Töskur - Vesti - Dúkar - Slæður o.m.fl. Saumastofa og verslun með fatnað, íslenska og tyrkneska listmuni TILVALDAR GJAFIR VIÐ OLL TÆKIFÆRI Opið mánudaga til föstudaga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-14 LÆKJARGÖTU 34, - 220 HAFNARFIRÐI - S: 650021 Hrings- konur baka laufa- brauð 4

x

Fjarðarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.