Fjarðarpósturinn - 30.03.1995, Síða 10
10 FJARÐARPÓSTURINN
Fjallahjól árgerð '95 frá :
Glæsilegir nýjir vagnar og kerrur frá :
Skfði og snjóþotur í úrvali, gott verð og góð þjónusta.
^_______Bæjarhrauni 22 S : 652292__________J
KJÖRSKRÁ FYRIR HAFNARFJÖRÐ
Kjörskrá fyrir Hafnarfjörð, vegna alþingiskosninga sem
fram eiga að fara þann 8. apríl n.k., hefur verið lögð
fram á bæjarskrifstofunni í Hafnarfirði að Strandgötu 6,
2 hæð, og mun hún liggja þar frammi almenningi til
sýnis frá kl. 09:30 til 16:30 hvern virkan
dag til kjördags.
Hafnarfirði, 28. mars 1995
Kjörstjórn Hafnarfjarðar.
Ingimundur Einarsson
Jón Auðunn Jónsson Gísli Jónsson
GÆSLUVELLIR HAFNARFJARÐAR
Frá 1. apríl - 30. sept. 1995 verða gæsluvellir
Hafnarfjarðar opnir sem hér segir:
kl. 9:00- 12:00 og 13:30- 16:30.
Frá sama tíma verður tekið gjald fyrir hverja komu á
gæsluvöll kr. 50,-.
Afsláttarkort verður til sölu á gæsluvöllum
kr. 1.000,-fyrir 25 skipti
Félagsmálastjórinn í Hafnarfírði
SLÖKKVILIÐ HAFNARFJARÐAR
SUMARAFLEYSINGAR
Okkur vantar starfsmenn til að leysa af vegna
sumarfría í Slökkviliði Hafnarfjarðar
sumarleyfistímabilið 1995.
Upplýsingar eru gefnar á varðstofu slökkviliðsins
v/Flatahraun, þar liggja frammi umsóknareyðublöð.
Umsóknir berist undirrituðum fyrir 22. apríl.
Slökkviliðsstjóri
Alþýðubandalagið
og óháðir
Opið virka daga kl. 12 - 19, Laugard. 10-18
Sunnudaga 13-18
Verið velkomin að lita við hjá okkur. Heitt á könnunni.
Skrifstofan erað Strandgötu 41,
Símar: 565 1488 og 565 2563, fax 565 2573
Hafnarfjörður sækir um sex reynslusveitarfélagsverkefni
Dregið úr beinum
samskiptum
skjólstæðinga við
Húsnæðisstofnun
Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur
ákveðið að óska eftir við fram-
kvæmdanefnd um reynslusveitar-
félög að sex málaflokkar verði
reynslusveitarfélagsverkefni bæj -
arins. Þetta eru gagngerar stjórn-
sýslubreytingar, félagsleg húsnæð-
ismál, byggingarmál, þjónusta við
atvinnulausa, öldrunarmál og
staðbundin löggæsla. Hvað hús-
næðismálin varðar er ætlunin að
starfsfólki sveitarstjórnar verði
falið eftirlit og úttektir og að dreg-
ið verði úr beinum samskiptum
skjólstæðinga við Húsnæðisstofn-
un ríkisins. Guðmundur Rúnar
Arnason sem verið hefur starfs-
maður bæjarstjórnar í þessu máli
segir að viðkomandi ráðuneyti hafi
nú umsókn Hafnarfjarðar til at-
hugunar og beðið sé svara frá
þeim. Reiknað sé með að funda-
höld með íorsvarsmönnum ráðu-
neytanna verði í byrjun aprfl og að
þeim loknum verði gengið frá mál-
inu.
Hvað varðar gagngerar stjórn-
sýslubreytingar kemur m.a. fram í
greinargerð með umsókn bæjarins að
sótt er um undanþágur frá lögum um
skipan í ýmsar lögbundnar nefndir.
Jafnframt er sótt um undanþágur frá
lögum og reglugerðum þar sem
kveðið er á um tiltekna málsmeðferð
í afmörkuðum malaflokkum.
Síðan segir: “I stjómkerfi Hafnar-
fjarðar eru nú ríflega 30 nefndir og
ráð. Sumar nefndirnar eru lögbundn-
ar, aðrar ekki. Það er yfirlýst stefna
allra flokka í bæjarstjóm að endur-
skoða beri nefndarkerfið og stjórn-
kerfið einkum með það fyrir augum
að þær nefndir sem fáist við sam-
bærileg mál verði sameinaðar til að
draga úr skörun og auka skilvirkni...”
Félagsleg húsnæðismál
Hafnarfjörður sækir um undan-
þágu frá lögum um Húsnæðisstofnun
ríkisins. Um þennan málaflokk er
sótt um í ljósi þess að í bænum er
mikill fjöldi félagslegra íbúða og að
uppbygging þeirra hefur verið mikil
á undanfömum árum.
Grundvallarmarkmiðið yrði að
einfalda samskipti íbúanna við þá að-
ila sem fara með félagsleg húsnæðis-
mái. Aukið samstarf húsnæðisnefnd-
ar, félagsmálaráðs og félagsmála-
stofnunnar miðar að því að koma í
veg fyrir að fólk sé á biðlistum á báð-
um stöðum eftir húsnæði.
Síðan segir: “Hugmyndin á bakvið
yfirtöku málaflokksins byggir á því
að leitast verði við að lækka bygging-
arkostnað og stytta byggingartíma.
Greiðslumati yrði breytt og það fært í
ríkari mæli í hendur húsnæðisnefnd-
ar...Dregið verði úr eftirlitshlutverki
Húsnæðisstofnunnar með þeim hætti
að hún geri aðeins úrtaksathuganir á
meðferð mála hjá húsnæðisnefnd
Hafnarfjarðar...”
Þjónusta við atvinnu-
lausa og öldrunarmál
Sótt er um undanþágu frá lögum
um vinnumiðlun. Meginmarkmiðið
er að einfalda þjónustu við atvinnu-
lausa þannig að ekki þurft að sækja á
fleiri en einn stað um afgreiðslu
mála.
I dag er meðferð atvinnuleysis-
skráningar og umsókna um atvinnu-
leysisbætur flókið ferli og atvinnu-
lausir þurfa að leita úrlausna á fleiri
en einum stað. Ætlunin er að einfalda
þetta ferli og samþætta æskulýðs- og
tómstundastarfi, starfi félagsmála-
stofnunnar og námsflokka enda er
ljóst að oft þurfa atvinnulausir að
ieita viðbótaraðstoðar á þessum stöð-
um.
Hvað öldrunarmálin varðar er ætl-
unin að samþætta alla öldrunarþjón-
ustu í bænum. Hafnarfjörður er til-
tölulega ungur bær þ.e. hlutfall elli-
lífeyrisþega er talsvert lægra en í
flestum öðrum sveitarfélögum.
Öldruðum mun aftur á móti fjölga
verulega á næstu árum. Því er brýnt
að við því verði brugðist með mark-
vissum hætti, m.a. í húsnæðismálum.
Hvað lögreglumálin varðar er ósk-
að eftir því að Hafnarfjarðarbær taki
yfir rekstur staðbundnar löggæslu og
eftirlit með vínveitingahúsum í bæn-
um. Markmiðið að baki þessari hug-
mynd er sá vilji bæjaryfirvalda að
auka samvinnu þeirra sem sinna dag-
legri löggæslu, æskulýðs- og félags-
málayfirvalda og þeirra sem sinna
forvömum.
. NYR SALUR
I HAFNARFIRÐI
Ef þú ert með veislu
þá erum við með sal
sem tekur allt að 100
manns á góðum stað
í bænum og næg
bílastæði
Uppl. í síma 555 4102
Hafnarfj arðarkirkj a V Sunnudag 2. aprfl c . ^ Fermingar kl. 10:30 og 14:00 Báðir prestar þjóna Organisti: Helgi Bragason Séra Gunnþór lngason Séra Þórhildur Olafs
u Víðistaðakirkja Sunnudagur 2.aprfl Fermingarguðsþjónusta kl. 11.00 li j[ Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14.00. Fimm ára börnum sérstaklega boðið til guðsþjónust- unnar og fá þar afhent bókina Kata og Oli fara í kirkju. Séra Sigurður Helgi Guðmundsson
Fríkirkjan
Sunnudagur 2.aprfl
Bamasamkoma kl. 11.00
Ferming kl. 13:30
Séra Einar Eyjólfsson