Fjarðarpósturinn - 11.05.1995, Qupperneq 9
FJARÐARPÓSTURINN 9
Nýr rekstraraðili að Bergi
Nýlega tóku hjónin Bessi H. Þor-
steinsson og Agnes Jóhannsdóttir
við rekstri Gistiheimilisins Berg.
Bessi sem er Gaflari í húð og hár er
ekki neinn nýgræðingur í þessum
rekstri. Eftir að hafa lokið hefð-
bundnu námi í Flensborg fór hann
að læra matreiðslu á Hótel Loft-
leiðum og settist jafnframt í Hótel
og veitingaskóla Islands.
Að námi loknu vann Bessi á hinum
ýmsu hótelum og veitingastöðum, en
þegar bamaheimilið á Víðvöllum var
opnað var Bessi ráðinn sem mat-
reiðslumaður þar. Hann var ráðgjafi
um hvaða og hvemig tæki voru keypt
í eldhúsið og veit hann ekki betur en
þau séu enn í notkun og þjóni staðn-
um vel, þó víðast annars staðar á
bamaheimilum frá svipuðum tíma,
séu þau úr sér gengin og búið að end-
urnýja. “Þetta sýnir okkur að það
borgar sig oftast að kaupa góð tæki,
þó þau séu eitthvað dýrari í byrjun”
segir Bpssi okkur í stuttu viðtali við
hann. Arið 1981 fer Bessi sem mat-
reiðslumaður á Hótel Blöndós og eft-
ir eitt og hálft ár er honum falin hót-
elstjórastörf hótelsins og þar var hann
hótelstjóri í fimm og hálft ár, en flut-
ti sig þá um set og var hótelstjóri á
Hótel Borgames í 3 ár. Þá söðlaði
hann nokkuð um og gerðist sölustjóri
hjá ísberg, sem selur aðallega tæki til
hótel og veitingastaða. Síðast liðið
sumar var Bessi síðan Hótelstjóri á
Hótel Eddu á Núpi við Dýrafjörð.
Það er því enginn viðvaningur sem
tekur við rekstri Gistiheimilisins
Berg. Þegar blaðamaður Fjarðar-
póstsins leit inn til hans s.l. sunnu-
dagskvöld var hann ásamt konu sinni
Agnesi og dótturinni Tinnu að þrífa
og ganga frá herbergjunum eftir rúss-
neska landsliðið, sem hafði gist þar í
nokkra daga. Allt var tandurhreint og
snyrtilegt, enda Bessi annálaður í
ferðageiranum fyrir snyrtimennsku.
ar og vonandi verður
þessu fylgt eftir. Hér er
búið að gera marga já-
kvæða hluti, eins og t.d.
Jóhannes í Fjörukránni
og fleira mætti upp
telja. En það er harka í
markaðsmálum í ferða-
þjónustunni, það eru
margir um hvem ferða-
mann, þannig að það
þýðir ekkert að sofna á
verðinum. Það verður
sífellt að vera að láta
Hér eru þau hjóninn Bessi H. Þorsteinsson og vita af sér.” Það er auð-
Agnes Jóhannsdóttir með dóttirina Tinnu í mót- heyrt að þarna talar
töku Gistiheimilisins Berg.
Við settumst svo niður morguninn
eftir og spjölluðum. Þegar ég spyr
Bessa hvemig það leggist í hann að
fara að reka gistheimili í Hafnarfirði
svarar hann. “Það er að mörgu leiti
draumastaða að fá tækifæri til að
komast inn í þennan rekstur hér í
mínum heimabæ. Það er búið að gera
mikið í að kynna Hafnarfjörð sem
ferðamannabæ og það er nú þegar
farið að skila árangri. Tekjur af ferða-
mönnum hér er að verða umtalsverð-
maður með reynslu og
ég spyr hann hvemig sé
útlitið með bókanir í sumar? “Bókan-
ir eru alveg sæmilegar, að vísu hef ég
eins og flestir aðrir orðið fyrir von-
brigðum með aðsóknina að HM '95,
en bókanir yfir sumarið eru nokkuð
góðar. Héma hafa ákveðnir erlendir
og innlendir aðilar haft föst viðskipti
í gegnum árin og ég mun að njóta
þess. Nú, svo er ég ekki alveg ókunn-
ugur fólki í ferðaþjónustunni og hef
trú á að það muni nýtast mér á næstu
árum, þó það haft væntanlega ekki
HELLULAGNIR ■ VEGGHLEÐSLUR
SNJÓBRÆÐSLA - STOÐVEGGIR
JARÐVEGSSKIPTI - GIRÐINGAR
ÞÖKULAGNIR - UPPS. LEIKTÆKJA
STEYPTAR STÉTTAR - SKJÓLVEGGIR
mikil áhrif á þessu ári. Ég rnun reka
gistiheimilið í sumar og með reynslu
sumarsins fer ég svo af stað í haust,
því í ferðaþjónustunni er það á
haustin sem “kaupin á eyrinni” yfir-
leitt gerast fyrir næsta ár á eftir,” seg-
ir Bessi og hann bætir við “hingað
koma mikið af íþróttahópum og fjöl-
skyldum utan af landi, enda emm við
með stór og góð fjölskylduherbergi
og flugrútan stoppar hér á leið sinni
til á frá Keflavíkurvelli og notar fólk
utan af landsbyggðinni það í auknum
mæli að sofa hér síðustu nóttina fyrir
utanlandsferð og fyrstu nóttina á leið-
inni heim.”
Bessi er ekkert hræddur við að hér
í Firðinum eru að rísa upp fleiri gisti-
heimili. “Nei samkeppnin er bara af
því góða og fólk sem er í samkeppni
getur og á að vinna saman. Aðalatrið-
ið er að ná ferðafólki til Hafnarfjarð-
ar og ef vel tekst til í því, þá verður
nóg að gera hjá öllum,” segir Bessi
H. Þorsteinsson að lokum.
MUNIÐ SUMARDEKKIN !
10 % staðgreiðsluafsláttur
Bjóöum úrval af nýjum dekkjum,
ásamt sóluðum NORDEKK
DEKKIÐ
Reykj avíkurvegur 56 Sími 555 1538
s
I maí afgreiðum við bensín á planinu gegnt smur-
stöðinni en í lok mánaðarins opnum við betri og
fullkomnari bensínstöð á staðnum.
Um leið og við biðjum Hafnfirðinga að sýna okkur
biðlund meðan unnið er að endurbótunum, þökkum
við viðskiptin á gömlu bensínstöðinni og bjóðum þá
velkomna á nýju stöðina. Þar verða allar aðstæður til
afgreiðslu eldsneytis betri en áður auk þess sem
verslunin verður stærri og vöruúrval meira.
Með sumarkveðju f
Starfsmenn ESSO við Reykjavíkurveg J
•3Í.
3
<
i <01
Olíufélagiðhf