Fjarðarpósturinn - 18.05.1995, Blaðsíða 1
Heppnir
áskrif-
endur
-sjá bls.3
Áfengis
salan
á HM
-sjá bls. 6
Böðvar
bóksali
áttræður
-Sjá bls. 7
Aðalbjörg styður sig við Jóhann G. Reynisson blaðamann sem skrifað hefur sögu hennar í Vikuna og Fjarð-
arpóstinn. Með þeim er Mogens Markússon starfsmaður Fálkans. Myndina tók Hreinn Hreinsson.
Aðalbjörg
fékk hjól
Greinar um Aðalbjörgu Gunn-
ardóttur, ellefu ára fatlaða stúlku í
Vikunni og Fjarðarpóstinum
vöktu mikla athygli. Meðal þeirra
sem heilluðust af Aðalbjörgu og
lífsgleði hennar þrátt fyrir mikla
fötlun voru forráðamenn Fálkans.
Brugðu þeir skjótt við eftir að
hafa lesið hina athyglisverðu sögu
þessarar ungu stúlku og gáfu Að-
albjörgu splunkunýtt reiðhjól af
gerðinni Wheeler. Kostagrip mik-
inn með fána og drykkjarbrúsa og
svo mætti áfram telja fylgihluti en
auk þess fylgdi skærgul derhúfa.
Af Aðalbjörgu er það að frétta að
hún hefur nú gengist undir aðgerð á
bogna fætinum til þess að rétta úr
honum. Aðgerðin tókst mjög vel og
vonandi verður lóðið sem var á vin-
stri fótstigum eldri hjóla Aðalbjargar
óþarft í framtíðinni. Vikan, Fjarðar-
pósturinn og Fálkinn óska Aðal-
björgu og fjölskyldu hennar alls
góðs og velfamaðar í framtíðinni.
Stjórn St Jósefsspítala gengur á fund heilbrigðisráðherra
Sérgrein lögð niður
ef úrbætur fást ekki
Stjórn St Jósefsspítala mun
ganga á fund heilbrigðisráðherra á
mánudaginn til að ræða mjög erf'-
iða rekstrarstöðu spítalans. Arni
Sverrisson framkvæmdastjóri
spítalans segir alveg klárt mál að ef
úrbætur fáist ekki þurfí að leggja
niður einhverja af sérgreinum spít-
lans og draga þannig úr þjónustu
hans við bæjarbúa. Hinsvegar hafi
ekki verið teknar neinar ákvarð-
anir um hvaða sérgrein verði lögð
niður.
í máli Áma kemur fram að um er
að ræða uppsafnaðan rekstrarvanda
upp á um 40 milljónir króna á síðustu
fjórum árum. Þar að auki þurfi að
leiðrétta árlegan rekstrargrundvöll
um 10-15 milljónir króna.
“Það er of snemmt að tjá sig um til
hvaða aðgerða stjómin muni grípa ef
lausn frnnst ekki á þessu vandamáli,”
segir Ámi. “Við höfum haldið uppi
víðtækri þjónustu og fyrir liggur að
öllu óbreyttu að við verðum að
þrengja þessa þjónustu og skera nið-
ur. Það á svo eftir að leggja mat á
hvaða sérgrein verður fyrir valinu og
hvort við leggjum niður tvær ódýrar
sérgreinar en ekki eina dýra. Við
munum forgangsraða þáttum í starf-
semi okkar miðað við hve mikill
fjöldi fólks nýtir sér einstaka þætti
og taka ákvarðanir í samræmi við
það.”
Hluti af stærri vanda
Vandi St Jósefsspítala er hluti af
rekstrarvanda sjúkrahúsa almennt en
hann er talinn á bilinu 6-700 milljón-
ir kr. Það er Ijóst að ef St Jósefsspít-
ali þarf að skera niður sinn rekstur
geta önnur sjúkrahús ekki mætt þeim
niðurskurði með því að auka sína
þjónustu eins og staðan er í dag.
I máli Áma kemur fram hvað
niðurskurð á St Jósefsspítala varðar
að hann komi ekki til framkvæmda
fyrr en í fyrsta lagi næsta haust. Fram
að þeim tíma verði leitað allra lausna
og reynt að koma í veg fyrir að draga
þurfi úr þjónustunni.
Mikið úrval af hinum vinsælu Itölsku XAMPOX skóm
Mikið
úrval af
fatnaði a
s ann a
Herramenn I I 'IttttttMíNN
Hafnarfjarðar