Fjarðarpósturinn - 18.05.1995, Qupperneq 16
Fraffnköllun á
24 myndum
FILMUJR &
FRAMK#‘LLUN
Miðbæ-s. 565 4120
kr. 1
kr.
kr.
.254,-
990,-
690,-
Samskipti fyrri meirihluta og Hagvirkis Kletts hf
Ríkissaksóknari hef-
ur vfsað kærunni frá
Ríkissaksóknari hefur ritað
Magnúsi Gunnarssyni formanni
bæjarráðs og Magnúsi Jóni Arna-
syni bæjarstjóra bréf þar sem
hann vísar frá kröfu þeirra á opin-
bera rannsókn á fjármálalegum
viðskiptum Hagvirkis Kletts hf og
fyrri meirihluta bæjarstjórnar.
Magnús Gunnarsson og Magnús
Jón Arnason höfðu kært málið til
ríkissaksóknara í framhaldi af því
að settur félagsmálaráðherra vís-
aði málinu frá sér fyrr í vetur. Þeir
segja nú að þeir muni ekki hafa
frekari afskipti af þessu máli en
furða sig jafnframt á því að íslensk
stjórnvöld virðist vanmegnug að
gæta hagsmuna almennings gagn-
vart gjörðum pólitískt kjörinna
fulltrúa við meðferð á almannafé.
I bréfinu kemur m.a. fram að það
sé mat ákæruvaldsins að ekki sé
grundvöllur eða skilyrði til þess að
mæla fyrir um lögreglurannsókn í
máli þessu. Síðan segir: “Af hálfu
ákæruvaids þykir rétt að árétta fyrri
tilvitnun í kærubréf yðar til félags-
málaráðherra þar sem segir: “Ljóst er
að kæruefni málsins lúta að ákvörð-
unum sem meirihluti bæjarstjómar
kjörtímabilið 1990-1994 ber ábyrgð
á en þá fór Alþýðuflokkurinn með
meirihlutavald í bæjarstjórninni
lengst undir stjórn Guðmundar Arna
Stefánssonar varaformanns Alþýðu-
flokksins og fyrrverandi félagsmála-
ráðherra.” I máli þessu er því öðru
fremur um að ræða athafnir sem þér
teljið andstæðar embættisskyldum
2ja pólitískt kjörinna bæjarstjóra og
tiltekins starfsmanns bæjarfélagsins
sem í þessum efnum starfaði á þeirra
ábyrgð.
Með því að ekki er unnt að telja
lögreglurannsókn sem til yrði stofnað
falla að markmiðum slíkra rannsókna
og enn síður vera líklegt til sakfellis í
refsimáli er framkominni beiðni yðar
um lögreglurannsókn...hafnað.”
Húsasmiðjuhlaupið
Húsasmiðjuhlaupið fór fram í Hafnarfirði um síðustu sýnir myndin þegar hlauparar leggja af stað.
helgi en þetta er eitt fjölmennasta víðavangshlaup í Fjarðarpósturinn birtir í dag nöfn þeirra sem urðu hlut-
bænum á þessu ári. skarpastir í hverjum flokki.
Alls tóku á sjöunda hundrað manns þátt í hlaupinu og -SJA NÁNAR Á BLS. 14-15
SANDTAK
Hjólbarðaviðgerðir - Sandblástur
Opnunartilboð
20 % afsláttur á dekkjum + felgum
10 % stgr. afsl. af öðru
Dalshrauni 1
s: 565 5636 - 565 5631—
11 tekn-
ir ölvaö-
ir við
akstur
Lögreglan í Hafnarfirði þurfti
að liafa afskipti af óvenjumörgum
ökumönnum sem grunaðir voru
um ölvun við akstur um helgina.
Alls voru 11 ökumenn teknir
grunaðir um ölvun frá föstudegi
til sunnudags.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu er þetta svipaður fjöldi og
venjulega er tekinn á einum mánuði
grunaður um ölvun við akstur. Það
var því mánaðarskammtur af blóð-
sýnum sem fór til rannsóknar á
mánudaginn.
Yfirlýsing
Við undirritaðir bæjarfulltrúar
í Hafnarfirði, Magnús Gunnars-
son formaður bæjarráðs og
Magnús Jón Árnason bæjar-
stjóri, sendum erindi til félags-
málaráðherra í janúar s.l. þar
sem kærð voru fjármálaleg við-
skipti Hafnarfjarðarbæjar við
fyrirtækið Hagvirki Klett hf árin
1992-1994. Tilefnið voru upp-
lýsingar sem við höfðum fengið í
hendur í störfum okkar við stjóm
bæjarins, þess efnis að fyrir-
svarsmenn hans á þessum tíma
hefðu ekki rækt embættisskyldur
sínar með þeim hætti sem mælt
er fyrir um í sveitarstjómarlög-
um nr. 8/1986 við meðferð á fjár-
munum bæjarins. Hafði niður-
staðan orðið sú að bæjarsjóður
tapaði verulegum fjárhæðum
vegna þessarar vanrækslu. Sýnd-
ist okkur þetta geta verið brot
gegn 139. gr. almennra hegning-
arlaga þar sem lögð er refsing
við því ef opinber starfsmaður
misnotar stöðu sína til þess m.a.
að halla réttindum hins opinbera
í þessu tilviki bæjarsjóðs Hafnar-
fjarðar.
Settur félagsmálaráðherra vís-
aði erindi okkar frá sér með úr-
skurði 11. mars s.l. I úrskurði
sagði að efnisatriði vísuðu öll til
liðinna athafna sem augljóslega
yrði ekki bætt úr. Þetta gerir fé-
Iagsmálaráðherra þrátt fyrir að í
sveitarstjórnarlögum séu skýr
ákvæði um skyldu ltans til að
hafa eftirlit með því að sveitar-
stjómarmenn gegni skyldum sín-
urn samkvæmt lögum. Hinsveg-
ar taldi ráðherrann að ávirðingar
gætu varðað við refsilög ef réttar
væru og væri rannsókn slíkra
mála í höndum lögreglu.
Þrátt fyrir að við telduni að
ráðherrann gæti fráleitt vísað
máiinu frá sér á þessari forsendu
förum við eftir þessari ábend-
ingu og sendum embætti ríkis-
saksóknara erindi 20. mars s.l.
þar sem málinu var vísað til op-
inberrar rannsóknar. Með bréft 9.
maí s.l. hefur svo ríkissaksóknari
hafnað erindinu. Virðist synjunin
byggjast á því að pólitískt kjöm-
um embættismönnum beri ekki
skylda til að gæta þeirra al-
mannahagsmuna sem vikið er að
í 139. gr. almennra hegningar-
laga, svo furðulegt sem það kann
að virðast. Þá má álykta með vís-
an til bréfs saksóknara að hann
telji að félagsmálaráðherra hefði
átt að úrskurða í málinu þó hann
ltafi ekki gert það.
Ljóst er að hvomgt þessara
stjómvalda tekur á málinu. Þar
vísar hvor á annan. íslenskt
stjómvald virðist því vanmegn-
ugt að gæta hagsmuna almenn-
ings gagnvart gjörðunt pólitískt
kjörinna fulltrúa við meðferð á
almannafé.
Við undirritaðir höfum gert
það sem við töldum okkur rétt og
skylt að gera í þessu máli. Frek-
ar munum við ekki aðhafast og
málinu því lokið af okkar háifu.