Fjarðarpósturinn - 07.12.1995, Blaðsíða 1
)
FRÉTTABLAÐ HAFNFIRÐINGA
43. tbl. 13. árg. 1995
Fimmtudagur 7. desember
Upplag 6.000 eintök
Dreift frítt í Hafnarfirði
5-650-666
Lögfræðiálit vegna tryggingarvíxils Jóhanns G. Bergþórssonar
Hefur lokið hlutverki sínu
og verður eigi innheimtur
„Það er skoðun undirritaðra að
tryggingarvíxill sá sem óskað er
álits á, liafi lokið hlutverki sínu
sem trygging að baki þeim Iög-
skiptum sem hann var afhentur
vegna, og verði því eigi nú fylltur
út og innheimtur sem slíkur," segir
í lögfræðiáliti tveggja lögfræðinga
um 16 milljón kr. tryggingarvíxil
sem Jóhann G. Bergþórsson gaf út
á sínum tíma, en álitið var lagt var
fram á síðasta fundi bæjarráðs.
Sem kunnugt er af fréttum lét
minnihlutinn í bæjarstjórn bóka
nýlega að ganga ætti að trygging-
um að baki víxilsins.
Bæjarlögmaður úrskurðaði sig
vanhæfan til að fjalla um málið en
fékk lögfræðingana Inga H. Sigurðs-
sonar hdl og Olafs Rafnssonar hdl til
að semja álitsgerðina. I framan-
greindu áliti kemur m.a. fram gagn-
rýni á hvemig samskiptum bæjaryfir-
valda og Hagvirkis-Kletts hf var
háttað. Um þetta segir m.a. í niður-
stöðum fyrrgreindra lögfræðinga:
„Lögskipti Hagvirkis-Kletts hf við
bæjarsjóð... á árunum 1992-1994
virðast hafa verið nokkuð flókin sem
vart telst óeðlilegt þegar í hlut á jafn
umsvifamikill byggingaraðili í verk-
töku fyrir sveitarfélagið. I þessu sam-
bandi hljóta á hinn bóginn að vakna
spurningar um skipulag sveitarfé-
lagsins á aðgreiningu verkefna slíks
fyrirtækis í þágu þess, einkum með
tilliti til atriða á borð við fyrirfram-
greiðslur, uppgjör og verkábyrgðir
vegna einstakra verka. Telja undirrit-
aðir að skortur hafi verið á aðgrein-
ingu einstakra lögskipta...og skortur
á heildarsamræmi við gerð einstakra
löggeminga í tengslum við uppgjör
gagnvart fyrirtækinu."
A álitinu er einnig vakin athygli á
erfiðri stöðu bæjarsjóðs ef til sönn-
unarfærslu kæmi fyrir dómi í máli
sem rekið yrði til að rukka víxilinn.
Ljóst væri að málaferli gætu orðið
afar umfangsmikil og báðum aðilum
kostnaðarsöm. Tómlæti bæjarins við
að fylgja meintum körfum sínum eft-
ir hingað til myndu gera sönnunar-
stöðu erfiðari.
Rætt er um að meðferð og inn-
heimta trygginga af hálfu bæjarsjóðs
hafi verið ábótavant og segir: „Er
meðferð hins umrædda tryggingar-
víxils dæmi um slíkt, hafi á annað
borð verið litið svo á að hann stæði
enn til tryggingar nokkrum skuld-
um.“
Eld-
varnar-
dagur
L.S.
Slökkviliðsmenn í Hafnarfirði
heimsóttu aila grunnskóia
bæjarins á mánudag en þá var
Eldvarnardagur Landssam-
bands slökkviliðsmanna. Nem-
endurnir voru fræddir um eld-
varnir og fvrirbyggjandi að-
gerðir á heimilunum og dreift
var bæklingnum „Ert þú eld-
klár?“ Myndin er tekin í Lækj-
arskóla er tveir slökkviliðs-
menn heimsóttu einn bekkinn
þar.
öV/-’"'
llli m
FASTEIGNASALA
Sími 565 2790
Fax 565 0790
Vesturvangur
Fallegt og vandað 153 fm, einbýli á
einni hæð, ásamt 40 fm. bflskúr við
hraunjaðarinn. Falleg hraunlóð.
Möguleg 5 svefnherb. SKIPTI
MÖGULEG. VERÐ 15,5 millj.
Uthlíð
SÍÐASTA HÚSIÐ. Fallegt vel skipu-
lagt 143 frn. ENDARAÐHÚS, ásamt
37 fm. bflskúr. Húsið skilast fullbúið
að utan, fokhelt eða lengra komið að
innan. Verð 8,2 millj.
Hraunkambur e.h.
Talsvert endumýjuð EFRI SÉRHÆÐ
OG RIS í virðulegu steinhúsi. 4
SVEFNHERBERGI, góð staðsetn-
ing, falleg HRAUNLÖÐ. Áhvflandi
góð lán 4,3 nrillj. Verð 9,5 millj.
■ ■ íb- t'l N
■
Suðurhvammur n.h.
Björt og rúmgóð 107 fm. neðri SÉR-
HÆÐ í endaraðhúsi. Góðar innrétt-
ingar. ÁHVÍLANDI BYGGSJ.RÍK-
IS. 4,8 nrillj. Verð 8,3 millj.
INGVAR GUÐMUNDSSON, LÖGGILTUR FASTEIGNARSALI - JÓNAS HÓLMGEIRSSON -KÁRI HALLDÓRSSON