Fjarðarpósturinn - 14.12.1995, Síða 3
FJARÐARPÓSTURINN 3
Stjórn Bandalags kvenna í Hafnarfirði
Miklar áhyggjur af
St. Jósefsspítala
Stjórn Bandalags kvenna í
Hafnarfirði hefur sent heilbrigðis-
og fjármálaráðherra álvktun þar
sem lýst er miklum áhyggjum af
framtíð St. Jósefsspítala. Alvktun-
in er gerð vegna þeirrar óvissu sem
nó ríkir um spítalann vegna fyrir-
hugaðra breytinga á þjónustuiilut-
verki lians.
I heild hljóðar ályktunin svo:
"Stjórn Bandalags kvenna í Hafnar-
ftrði lýsir miklum áhyggjum vegna
fyrirhugaðra breytinga á þjónustu-
hlutverki St. Jósefsspítala í Hafnar-
firði.
Bandalagið hefur alla tíð staðið
heilshugar að baki spítalanum og
borið hag hans mjög fyrir brjósti.
Bandalagið stóð m.a. fyrir söfnun
vegna kaupa á röntgentækjum fyrir
spítglann á árunum 1985 og 1986.
A haustdögum 1991 var gerð til-
raun til þess að leggja niður starfsemi
spítalans að verulegu leyti og breyta
rekstri hans. Bandalagið stóð þá fyr-
ir undirskriftasöfnun þar sem hvorki
meira né minna en 10.322 einstak-
lingar undirrituðu á einni helgi
áskorun til þáverandi heilbrigðisráð-
herra um að spítalanum yrði gert
kleyft að viðhalda áfram óbreyttri
þjónustu. Var orðið við þeirri beiðni.
Stjóm Bandalags kvenna ítrekar
hér með þá áskorun og væntir þess
að háttvirtur heilbrigðisráðherra sýni
málinu þann skilning og velvilja sem
þarf til þess að St. Jósefsspítaii í
Hafnarfirði verði hér eftir sem hing-
að til gert kleyft að sinna þeim mann-
úðar- og líknarstörfum sem hann hef-
ur nú gert í 69 ár.”
Jóla-
stemm-
ing í
bæinn
MffÆ o M'JfS mm -
L W im ■ s VH \ pp i
Jólaleikur Hjálparsveitar
skáta og Fjarðarpóstsins.
Veglegir vinningar í boði: Ferðavinningur að
eigin vali að upphæð 30.000 kr. frá
Samvinnuferðum og níu flugeldapakkar frá
slysavarnarsveitinni Fiskakletti. Klippið út þátt-
tökuseðilinn og komið með hann í jólatrésölu
H.S.FI. í húsnæði Hvals við Reykjavíkurveg.
TÆKNI - TORG
Tölvumarkaður - Notað og nýtt
Bæjarhrauni 20 s. 896-9466
VIÐGERÐARÞJÓNUSTA-RÁÐGJÖF
Símkerfi, öryggiskerfi,
lagnir og fleira
Forrit fyrir heimili og fyrirtæki.
Og Karlakórinn Þrestir söng líka jólalög á Thorsplani við jólatréð sem
Fredriksberg sendi Hafnfirðingum.
Strandgata 21, sími 565 5138 - Opið 11-22
Jóhann (í. Bergþórsson, sést hér
að árita bók sína við verslunina
Leikbær/Ritbær í verslunarmið-
stöðinni Miðbæ.
Ellert Borgar Þorvaldsson, forseti
bæjarstjórnar flutti ávarp og þakk-
aði íbúum Fredriksberg gjöfina.
Um síðust helgi var ljósmyndari
Fjarðarpóstsins á ferð um bæinn og
tók þá þessar myndir.
Síðast liðinn föstudag kom Olína Þorvarðardóttir til Hafnarfjarðar og af-
henti Ingvari Viktorssyni, bæjarstjóra, bókina Álfar og tröll, sem hún hef-
ur tekið saman. Olafur M. Jóhannesson hefur myndskreytt bókina. Með
þeim á myndinni er Huldukona sem sagt er að búi í nágrenni veitinga-
staðarins A. Hansen.
TÆKNI - TORG. TORG HflTÆKNINNAR.
Eins og sagt var frá í síðasta Fjarðarpósti, þá er ákveðið að halda mikla
Skophátíð næsta sumar hér í Firðinum. Ljósmyndari Fjarðarpóstsins
rakst á þessa frægu hafnfirsku grínista (grínspaugara) í kaffi á Súfistan-
um þar sem þeir voru að ræða undirbúning Skophátíðarinnar.
DUNDUR
DESEMBERHLBOB
4 stk hamborgarar
4 skmt. franskar
kr. 799,-
Tilboðið gildir kl. 18-22
MIKIÐ ÚRVAL
AF BÁTUM
Borðið á staðnum
eða takið heim