Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 21.02.2002, Side 2

Fjarðarpósturinn - 21.02.2002, Side 2
2 Fjarðarpósturinn Fimmtudagur 21. febrúar 2002 rinirnffTr Útgefandi: Keilir ehf. Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason Auglýsingar: 565 4513, auglysingar@fjardarposturinn.is Umbrot: Hönnunarhúsið, umbrot@fjardarposturinn.is Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: íslandspóstur www.fjardarposturinn.is Fjarðarpósturinn er aðili að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Loksins kom snjórinn. Hann hefur verið undarlegur veturinn hér fyrir sunnan og lítið farið fyrir snjó og vetrarveðrum. Ekki var snjórinn mikill og vart nægur til almennilegrar skíðaiðkunar. Snjósleðamenn fara þó fljótt á kreik og ekki þurfti mikill snjó til fyrir jólin til að maður mætti snjósleðum á götum bæjarins og hér í umhverfinu þó svo akstur þessara tækja sé stranglega bönnuð á götum og vegum. Litlu karlamir á stóru jeppunum umtumast líka við snjófölina og engin ástæða lengur að nota akbrautir og innkeyrslur en tún og gangstéttar troðnar undir „möddemnum". Hvað er það í mönnum sem segir þeim að keyra yfir gangstéttar og tún til þess að komast inn á bflastæði þegar sentimetri af snjó liggur ofan á? Er það sama röddin og segir mönnum að hella úr öskubökkum bíla sinna á götuna þar sem stöðvað er? Hér hlýtur að vera hægt að gera betur. Krakkamir í kuldagöllunum hópast út og því nauðsynlegt fyrir bflstjóra að fara varlega þar sem búast má við bömum að leik. Tryggja þarf einnig að böm leiki sér ekki á eða við stórar umferðar- götur. Mikill akstur er framhjá Setbergsskóla og hámarkshraði þar er 50 km/klst. og því fer um mann hrollur þegar sést til skólabama í frímínútum leika sér alveg við götuna og kennara hvergi að sjá. Yfirvöld virðast ákveða snjómokstur og saltaustur miðað við þá sem á lökustu dekkjunum aka og má sæta furðu saltaustur á götu eins og Klukkubergið þar sem hámarkshraði er 30 km/klst. Þar var saltað sl. mánudag ofan á snjóhuluna þrátt fyrir að spáð væri kóln- andi veðri og roki. Ef saltað er á snjó í ffosti verður úr krapi sem erfitt er oft að fóta sig á, hvað þá að aka. Líkja má aðstæðunum við það að stíga á pappaspjald á snjó. Gaman væri að fá skýringu á því af hveiju er verið að salta götu þar sem ekki er leyfður meiri hraði en 30 km/klst. Þessi gata er eflaust mest mokaða gata bæjarins enda skefur þar oft í skafla en ástæðulaust er með öllu að ryðja snjó af akbraut upp á gangstéttir eins og meðfylgjandi mynd sýnir. Guðni Gíslason Margar greinar bíða nú birtingar en sökum plássleysis hefur ekki verið hægt að birta fjölmargar greinar. Vonandi tekst í næsta biaði að birta þessar greinar m.a. um afmæli Þrasta, fyrirhugaða aldarminningu fyrstu rafveitu landsins og fl. Busloðaflutningar Tek að mér alla almenna flutninga Benni Ben. s. 893 2190 Leiklistarnámskeið LH Laugardaginn 23. febrúar mun Leikfélag Hafnarljarðar hefja leiklistamámskeið. Það hefst kl. 18 í Hafnarfjarðarleikhúsinu og er ætlað fyrir alla sem áhuga hafa á leiklist. Stjómandi námskeiðsins er Steinunn Knútsdóttir. Aðgangur er ókeypis. Námskeið fyrir stjómmálakonur Jafnréttisnefnd Hafnarfjarðar verður með námskeið ætlað konum sem hafa gefið kost á sér til setu á framboðslistum stjómmála- flokkanna fyrir sveitarstjómarkosningamar í Hafnarfirði 25. maí nk. og hefst námskeiðið 5. mars. Námskeiðið er í boði jafnréttisnefndar og fræðslu-og starfsmannadeildar og skiptist í 4 hluta. 1. Sannfæringarkraftur stjómmálakvenna. 2. Hafnarfjarðarbær - stjómsýsla, ljármál og starfsmannahald. 3. Stjómsýslulögin. 4. Öflugar konur í sveitarstjómum. Athugið að aðgangur er takmarkaður að 1. og 4. hluta. Skráningarfrestur er til 27. febrúar 2002 á ingibjorg@hafnarljordur.is Matarfíklar! Nýlega var stofnuð OA-deild í Hafnarfirði, en OA-samtökin em byggð á sama gmnni og AA-samtökin og litið er á matarfflcn sem sjúkdóm sem hægt er að halda í skefjum, einn dag í einu, með kerfi OA-samtakanna. I OA em engin þátttökugjöld, engar félagaskrár, engir matarkúrar og engar vigtanir en ALGJÖR TRÚNAÐUR. Allir, sem telja að gætu átt við matarfíkn að stríða, em þar hjartanlega velkomnir. Fundir em laugardaga kl. 11-12 í AA húsinu Kaplahrauni. Á „Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu“ em 8 fundir í viku. Nánari upplýsingar má fá á www.oa.is og í svarhólfi 878 1178. Heimsferðir Söluumboö Bœjarhrauni 14, Haftiarfiröi S:5109500 Bréf til fllmars Heill og sœll Almar Grímsson! Og kærar þakkir fyirr bréfið frá þér sem ég hirti úr póstkassa mínum áttunda dag febrííarmán- aðar. Eftir að hafa lesið bréfið tvisvar varð mér hugsi um stund og ég komst að þeirri niðurstöðu að þama vœri maður að mínu skapi, sem muni vinna að minum þörfum, en þœr eru nokkrar þar sem ég er 87 ára gamall. Vitanlega á ég að láta þennan mann hafa mitt atkvœði i vor, hugsaði ég, en svo áttaði ég mig á því að afian í þér, Almar, myndu hanga þeir menn sem ég síst vildi hafa i meirihluta bœjar- stjómar. Menn sem tilheyra þeim fiokki sem gáfu Bœjarútgerðina og þessa dagana koma því sem bœjarfélaginu tilheyrir i eigu einkaaðila. Min ósk er sú að þeir sem nú sitja í meirihluta bœjar- stjómar glati sínum völdum og að nýr maður komi ( bœjarstjóra- stólinn. Sá sem nú siturþar getur hœglega brosað fyrir framan myndavélamar úr öðrum stól. Að endingu — Þú ert maður- inn sem okkur gamlingjana vant- ar og ég mundi glaður láta þig liafa, mitt atk\’œði, og reyndar reyna að safna atkvœðum fyrir þig — ef þú tilheyrðir Samfylk- ingunni! Með fullri virðingu fyrir þinni persónu. Sofhus Berthelsen eldri. Úr fundargeröum.. 1. Fornubúðir 3 - kauptilboð Lagt fram bréf SÍF hf. ásamt meðfylgjandi kauptilboði í fast- eignina Fomubúðir 3. 2. Heilsugæsla - framtíðaráform Lagt fram minnisblað fulltrúa Húsfélagsins Fjarðar, Fjarðargötu 13-15 varðandi hugmyndir um uppbyggingu heilsugæslunnar í Hafnarfirði í Firði. 3. Iðnskólinn f Hafnarfirði Lagt fram bréf Iðnskólans ( Hafnarfirði, dags. 6. feb. sl., þar sem óskað er eftir fundi með full- trúa Hafnarfjarðarbæjar og rekstraraðila Iðnskólans um hús- næðismál skólans og framtíðar- uppbyggingu hans. Erindinu vísað til bæjarstjóra. 4. íþróttafélagið Fjörður Lagt fram bréf Iþróttafélagsins Fjarðar, dags. 6. feb. sl., þar sem þess er óskað að bæjarstjórinn ásamt bæjarstjómarmönnum eða embættismönnum bæjarins, alls þrír að tölu taki þátt í hinu árlega Þorramóti í boccia sem fer fram 23. febrúar nk. 6. Svar við fyrirspurn úr bæjarstjórn Lagt fram bréf Guðmundar Rúnars Árnasonar, dags. 5. feb. sl. og svar bæjarstjóra við fyrir- spum hans sem lögð var fram í bæjarstjórn 2. okt. sl. Fyrirspumir Guðmundar til formanns bæjar- ráðs eru eftirfarandi: 1. Hefur formaður bæjarráðs mótttekið eftirtalin bréf og erindi um máiefni Straums? Bréf dags. 1. feb. 2000, 7. júlí 2000, 5. sept. 2000,18. feb. 2001,23. mai2001, 7. júlí 2001, Kauptilboð dags. 4. mars 2000 og dags. 9. maí2000? 2. Hefur eitthvað af ofangreind- um eríndum verið tekið til umfjöll- unar í bæjarráði? 3. Er eðlilegt og vanalegt að er- indi bíði 18 mánuði eftir að verða tekin upp i bæjarráði? Þorsteinn Njálsson formaður bæjarráðs óskar að taka fram að svör hans við fyrirspumum fulltrúa Samfylkingar eru þau sömu og hann gaf úr ræðustól í bæjarstjóm þann 2. okt. sl. Þau eru: „Mig rekur ekki minni til þess að hafa séð nein bréf frá forstöðumanni Straums um þetta mál Veistu hvað svona lítil auglýsing getur haft mikil áhrif? Hvernig væri að prófa? Tileinkað núverandi bæjastjórn Ó! Gvö hvað allt er glœsilegt ekkert gerist gassalegt. Einhver munur áður var allt i rugli hér og þar. Þeir sjálfir áttu nokkra sök sem núna hafa undirtök Þá hrópuðu hátt á torginu en hrína nú á orginu. Öll við vitum nú svo skír hvað fram og aftur héma snýr. Upp og niður út og suð alltaf þetta sama tuð. „Leirfinnur".

x

Fjarðarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.