Fjarðarpósturinn - 22.05.2003, Síða 2
2 www.fjardarposturinn.is
Fimmtudagur 22. maí 2003
Útgefandi: Keilir ehf.
Fjaröarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Umbrot: Hönnunarhúsið, umbrot@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf.
Dreifing: íslandspóstur
www.fjardarposturinn.is
Ábyrgðin er okknr
Krakkarnir í tíundabekk voru að ljúka prófum
og það þykir rétt að skemmta sér í tilefni þess.
Foreldrar fengu bréf frá æskulýðsfulltrúa þar
sem þeir voru hvattir til að vera vakandi yfir
ferðum unglinganna á þessu kvöldi og virða
regjur um útivistartíma.
Ástandið var, þrátt fyrir þessi tilmæli og
sundlaugarpartý í Suðurbæjarlauginni, nokkru verra en í fyrra og
allt of margir unglingar undir lögaldri ölvaðir. Er foreldrum alveg
sama? Eða telja þeir þetta vera vandamál fræðsluyfirvalda?
Hver kaupir vín handa þessum bömum? Hver lætur þau vera
afskiptalaus úti langt fram á nótt? Em það ekki foreldramir?
Hafnaríjörður sker sig úr varðandi unglingadrykkju — nei við
emm ekki bestir, við emm verstir! Krakkar fara í partý þar sem
eftirlit er ekkert. Hvar em foreldramir? Krakkar fá jafnvel að drekka
heima undir því yfirskyni að það sé betra að venja þau við undir
eftirliti!
Unglingar vilja skýrar reglur og þess vegna eigum við að setja
skýrar reglur. Ef við foreldrar viljum að bömin okkar séu úti eftir
miðnætti að skemmta sér á götunum þá verðum við að vera með
þeim og þá gilda sömu reglur og í æfmgaakstrinum!
íbúalýðræði og græn svæði
íbúalýðræði var eitt af kosningaslagorðum á síðast ári. Ekki hefur
verið mótað hvemig það á að virka og seint sé ég alls heijar
kosningar um mál eins og deiliskipulag að hætti Svisslendinga.
íbúar við Óla Runs tún spyrja nú hvað þurfi til þess að þeirra
skoðun fái hljómgmnn og kannski verður þetta fyrsti prófsteinninn
á þessu kosningaloforði Samfylkingarinnar. Græn svæði em jafnan
viðkvæm og það verður ekki aftur snúið þegar búið er að byggja á
þessum svæðum. Það þykir hagkvæmt að þétta byggð en ekki má
gleyma því að við viljum ekki búa á geymslusvæði heldur í
umhverfi þar sem okkur líður vel. Eflaust þarf að kalla eftir vilja
bæjarbúa og mynda einhverja stefnu hvar græn svæði eigi að vera,
til hvers þau eigi að vera þar og hvað eigi að vera hægt að gera á
þessum grænu svæðum. Kannski gætu grænu svæðin í Hafnarfirði
verið hluti af stómm ratleik og á hverju svæði væri eitthvert þema
eða fróðleikur sem gestir gætu gamnað sér við að fræðast um eða
upplifa.
Ákall bæjarbúa til vemdunar grænna svæða þarf að taka alvarlega
og lítil tún era okkar Kárahnjúkar án þess að ég ætli að hætta mér
inn í virkjanamálin nema ef vera skyldi í Hamarkotslæknum í tilefni
100 ára afmælis rafmagns í Hafnarfirði sem vonandi verður minnst
með bravúr.
Guðni Gíslason
Víðistaðakirkja
Sunnudaginn 25. maí kl. 14
Guðsþjónusta 25. maí, kl. 14.00
Kirkjukór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Úlriks Ólasonar
Kyrrðarstundir á miðvikudögum kl. 12.00
sóknarprestur
www.vidistadakirkja.is
Vorsýning Iðnskólans
Árleg vorsýning Iðnskólans í Hafnarfirði verður opnuð í skólanum á
laugardaginn kl. 14 og stendur úl laugardagsins 31. maí. Opið er alla
daga frá kl. 13-17.
Kraftaverk í Mílanó
Kvikmyndasafn Islands sýnir ítölsku perluna „Miracolo a Milano"
eða Kraftaverk í Mflanó í Bæjarbíói á laugardaginn kl. 16. Myndin
er frá árinu 1951 og gerð eftir skáldsögu Cesare Zavattini en
handritið er eftir hann og leikstjóra myndarinnar Vittorio De Sica.
Kvikmyndir De Sica og Zavattini þykja einkennast af dramatísku
innsæi á hversdagsleikann og em fyrir löngu taldar til sígildra
listaverka kvikmyndanna.
Vorhátíð Öldutúnsskóla
Vorhátíð Öidutúnsskóla verður haldin við skólann miðvikudaginn
28. maí kl. 16. Dagskráin hefst með Víðavangshlaupi Öldutúnsskóla,
en því loknu tekur við skemmtidagskrá nemenda skólans. Á svæðinu
verður fjöldi leiktækja, pylsur grillaðar ofl. Allir velkomnir.
Handverkssýning eldri borgara
Handverkssýning félags eldri borgara verður um helgina 24., 25. og
26. maí í Félagsheimilinu Hraunseli, Flatahrauni 3. Sýndir verða
munir sem eldri borgarar hafa unnið í vetur s.s. saumur, útskurður,
glerlist og málverk. Húsið opið frá 13 til 17 alla dagana .
Kaffiveitingar.
Síðasta sýningarhelgi í Hafnarborg
Nú standa yfir þijár sýningar í Hafnarborg, sýning Richards Vaux,
Fmmmyndir ljósheimsins, sýning Aðalheiðar Ólafar
Skarphéðinsdóttur í Sverrissal á akrýlverkumog grafík og sýning
Hjördísar Frímann, Elskaðu mig blítt í Ápótekinu.
Þessum sýningum lýkur á mánudag.
Regnbogabörn
Skráöu þig í síma
575 1550
Fríkirkjan
Kvöldvaka og safnaðarfundur
N.k. sunnudag, 25. maí
verður kvöldvaka kl. 20.
Örn Arnarson og hljómsveit kirkjunnar
flytja fallega sumarsöngva ásamt kór
kirkjunnar.
Að lokinni kvöldvöku hefst svo
aðalfundur Fríkirkjusafnaðarins og verður
haldinn í safnaðarheimilinu.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
íþrótta- og æskulýðsnefnd
3. Styrkumsóknir.
Teknar fyrir eftirfarandi styrkum-
sóknir vegna íþrótta- og tóm-
stundastarfs.
a) íþróttafélagið Fjörður sendir
erindi dagsett 07.04. sl., þar sem
óskað er eftir stuðningi vegna
keppnisferðar íþróttamanna úr
félaginu ásamt aðstoðarmönnum
til Akureyrar á íslandsmót fatlaðra.
íþrótta- og æskulýðsnefnd getur
ekki orðið við erindinu en bendir á
samstarfssamning á milli félagsins
og Hafnarfjarðarbæjar.
b) Erindi frá Hjólreiðafélagi
Reykjavíkur HFR dagsett 3. apríl
sl„ þar sem farið er fram á stuðn-
ing vegna fjallahjólakeppni, sem
hefst við íþróttahúsið v/Strandgötu
í Hafnarfirði og endar í Bláalóninu.
íþrótta- og æskulýðsnefnd
samþykkir að styrkja erindið um
kr. 30.000-, sem takist af liðnum
06-012-4290 og felur íþróttafull-
trúa að afgreiða málið.
c) Erindi frá Kvennahlaupi ÍSÍ
dagsett 08.04. sl, þar sem farið
er fram á styrk til að veita leiðsögn
væntanlegum , þátttakendum í
Kvennahlaups íslands með fyrir-
lestrum og verklegum æfingum.
íþrótta- og æskulýðsnefnd sam-
þykkir að styrkja erindið um kr.
45.000-, sem takist af liðnum 06-
012-4290 og felur íþróttafulltrúa
að afgreiða málið.
d) Erindi frá knattspyrnudeild
FH dagsett 06.05. sl., þar sem
farið er fram á styrk vegna gerðs
umgjarðar um keppnisvöll fyrir
yngri flokka félagsins, sem nýtast
mun meðal annars við 17. júní
hátíðarhöldin.
íþrótta- og æskulýðsnefnd sam-
þykkir að styrkja erindið um kr.
75.000-, sem takist af liðnum 06-
011-9190 og felur æskulýðsfull-
trúa að afgreiða málið.
Samráðsnefnd um framhalds-
og endurmenntun
1. Fjölskylduskólinn.
Guðmundur Rúnar Árnason
kynnti hugmyndina sem liggur að
baki Fjölskylduskóla Hafnarfjarðar
og mögulegar leiðir til að hrinda
henni í framkvæmd. Setja þarf
sem fyrst á laggimar þverfaglegan
og þverpólitískan stýrihóp innan
bæjarkerfisins sem mótar faglega
stefnu Fjölskylduskólans. Leita
þarf eftir samstarfi við Samstarfs-
nefndina og Námsflokkana um
nánari útfærslu og framkvæmd.
Líta ber á Fjölskylduskólann m.a.
út frá sjónarmiði forvamarstarfs og
að hann verði að sem mestu leyti
sjálfbær.
Skipulags- og byggingarráð
23. Hverfisgata 29, skipulags-
skilmálar Mál nr. SB030044
Tekið fyrir að nýju erindi Hita-
veitu Suðurnesja dags. 10.
febrúar 2003 þess efnis að útbúnir
verði skipulagsskilmálar fyrir
lóðina Hverfisgata 29
Skipulags- og byggingarráð
felur bæjarskipulagi að undirbúa
forsögn að deiliskipulagi fyrir
lóðina Hverfisgötu 29 sem felur í
sér að landnotkun sé breytt úr
stofnana/atvinnulóð í íbúðalóð.