Fjarðarpósturinn - 22.05.2003, Side 6
6 www.fjardarposturinn.is
Fimmtudagur 22. maí 2003
lindreginn írilji fundargesta
Vilja ekki að byggt verði á Óla Runs túni!
Gömul
refagildra
Um 40 manns sóttu kynning-
arfund um endurskoðað deili-
skipulag austur-Hvaleyrarholts
sem haldinn var í Hvaleyrarskóla
sl. mánudag.
Friðrik Friðriksson arkitekt er
höfundur skipulagsins sem unn-
ið er í nánu samstarfi við skipu-
lagsdeild bæjarins.
A Þorlákstúni sem liggur næst
Reykjanesbrautinni, efst á Holt-
inu er m.a. gert ráð fyrir gróður-
húsum og skólagörðum og voru
nær engar umræður um það
svæði.
Hins vegar urðu miklar um-
ræður um breytingar á núgild-
andi deiliskipulagi Óla Runs
túns og voru fundarmenn á einu
máli um að ekki ætti að byggja á
túninu heldur gera það að úti-
vistarsvæði.
M.a. var spurt hvað þyrfti til
svo bæjaryfirvöld breyttu af-
stöðu sinn, hversu margar undir-
skriftir þyrfti og var vitnað til
undirskriftasafnana í tengslum
við byggingu Fjarðar og Lækjar-
skóla. Var stefnuskrá Samfylk-
ingarinnar m.a veifað og minnt á
loforð um gott samstarf við
bæjarbúa.
Fram koma vilji að fá gott úti-
vistarsvæði í Suðurbæinn en
ekki einhverja óskilgreinda
græna skika. Var undrast á þeim
vilja að byggja þama og kom
fram í svari Önnu Margrétar
Tómasdóttur á bæjarskipulaginu
að verið væri að þétta byggð
með rökum Staðardagskrár 21.
Sjöfit Magnúsdóttir hefur búið
um 45 ár á Lindahvamminum
og var ómyrk í máli
Gunnar Svavarsson, formaður
í skipulags- og byggingarráði
sagði í samtali við Fjarðarpóst-
inn „að fundurinn hafi verið
góður og ibúar á svæðinu hafi
tekið virkan og málefnanlegan
þátt í honum. Almenn ánægja
var með fyrirhugað skipulag á
Þorlákstúni en margar ábend-
ingar komu varðandi Óla Runs
túnið, sérstaklega m.t.t. skerð-
ingar á útvistarsvæðinu. Fundur
sem þessi er einn af homsteinum
í löngu ferli sem hófst við
endurskipulagninu á öllu Hval-
FLENSBORGARSKÓLINN
í HAFNARFIRÐI
Innritun
í Flensborgarskólann
fyrir haustið 2003
Nemendur fæddir 1986 eða fyrr, nemendur sem eru
að flytja sig milli framhaldsskóla og nemendur sem
vilja nefja nóm að nýju eftir hlé geta komið umsóknum
um skólavist til skrifstofu skólans eigi síðar en 30. maí
2003.
Allir umsækjendur verða að skila inn skriflegri
umsókn og henni verða að fylgja gögn um nám
annars staðar ef um slíkt er að ræða
Nemendur sem eru að Ijúka 10. bekk geta komið
skriflegri umsókn til skólans en almenn innritun þeirra
fer fram 10. og 11. júní á skrifstofu skólans. Þeir þurfa
að leggja fram gögn um grunnskólanám sitt.
Allar nánari upplýsingar er að finna á vef skólans
www.flensborg.is
Upplýsingar eru einnig veittar á netfanginu
flensborg@flensborg.is, í síma 565 0400
eða á skrifstofu skólans.
Umsóknareyðublað má finna á
www.flensborg.is/forsida/ums_um_skolavist.htm
Skólameistari
eyrarholtshverfinu árið 2000 til
að styrkja formgerð hverfisins.
Það sé vissulega ákveðin þver-
sögn fólgin í skipulagsforsend-
um þegar rætt er um að þétta
byggð og á sama tíma skuli slíkt
gert í sátt og samráði við hags-
munaaðila, því oftar en ekki vilja
menn halda skipulagi óbreyttu.
Það komu þó fram á fundinum
góðar hugmyndir t.d. um sögu-
minjasafn, jafnvel húsdýragarð
eða skrúðgarð í stað þessara 7
lágreistu einbýlishúsa á túninu.
Skipulags- og byggingarráð mun
fjalla um málið næst eftir 2
vikur, en lögformlegum athuga-
semdartíma lýklur 26. maí nk. og
það voru þó nokkrir sem ætluðu
að skila inn ábendingum. Eftir
það sér fyrir endann á þessu
deiliskipulagsverkefni sem búið
er að taka yfir rúm 3 ár, en enn
eru nokkur af eldri hverfum
Hafnarfjarðar ódeiliskipulögð."
Refagildrur voru fyrr á árum
hlaðnar úr grjóti og á Reykja-
nesinu voru hraunhellur mjög
góðar til að byggja úr refa-
gildrur. Refurinn var tældur inn
í gildruna með einhverri ætu
og er hann koma að ætunni
felldi hann niður hellu sem
lokaði gildrunni.
Þessi gildra sem fannst
skammt frá Fjallinu eina var
staðsett við greni en var greini-
lega orðin mjög gömul.
Jónifannst þetta spennandi
Fjölmargar refagildrur hafa
fundist víða um Reykjanesið
en merki um mannvist er mjög
víða þar að finna og með
ólíkindum hvað fólk hefur lagt
á sig við búskap fyrr á öldum.
Hringtorgum fjölgar í dænum
Umferð um Hjallabraut gerð öruggari
Nýtt hringtorg var tekið í
notkun á mótum Hjallabrautar
og Skjólvangs en unnið hefur
verið að því að fækka akreinum
úr tveimur í eina í hvora átt ffá
Breiðvangi og niður fyrir skáta-
miðstöðina Hraunbyrgi.
Það er ekki laust við að margir
Hafnfirðingar séu famir að
skammast sín fyrir öll
hringtorgin í bænum en það er
ekki nokkur ástæða að sögn þar
sem hringtorg séu með ömgg-
ustu gatnamótum sem um getur
og árekstrar sem á þeim verða
séu að jafnaði minniháttar. Ekki
er þó ávallt nægilegt pláss fyrir
gott hringtorg og því verða þau
nokkuð þröng. Vegfarendi sem
ljósmyndari hitti við umrætt
skattpeningar í að lagfæra það og
af þeim er víst ekki mikill
afgangur þessa dagana.
I
hringtorg brosti breytt og fannst
torgið með ólíkindum.
Vonandi verður ánægja með
torgið því annars fara enn meiri
Bresk
lausn
Ýmislegt má gera ef
rýmið er nægilegt!
Þessi mynd barst Fjarðarpóst-
inum frá áhugamanni um hring-
torg sem sagði reyndar að nógu
slœmt vœri að aka öfugu megin
í Bretlandi!