Fjarðarpósturinn - 11.01.2007, Síða 5
www.fjardarposturinn.is 5Fimmtudagur 11. janúar 2007
Ég er starfsmaður á stærsta
leikskóla bæjarins, Stekkjarási.
Mér finnst það alltaf jafn und-
arlegt þegar fólk úti í bæ talar um
leikskólann á neikvæðan hátt, að
hér sé ekki gott að vinna. Ég spyr
sjálfa mig hvaðan þetta komi en
hef ekki enn fundið svarið. Þá
velti ég því fyrir mér af hverju
við séum svona fljót að trúa öllu
neikvæðu án þess að það séu
einhverjar staðreyndir á bak við
sögurnar. Ég er mjög ánægð í
minni vinnu, vinn bæði með frá-
bærum börnum og vinnufélag-
arnir upp til hópa fínir. Mór-
allinn er mjög góður hjá okkur
og höfum við haft ýmsar upp-
ákomur á undanförnum vikum
til að hrista hópinn enn betur
saman. Við erum ekkert öðruvísi
en aðrir leikskólar og hjá okkur
er starfsmannaekla og stundum
getur það haft áhrif á starfsemi
leikskólans. Hvaða vinnustaður
finnur ekki fyrir því ef það
vantar fók til að sinna þeim
störfum sem þarf að vinna?
Höfum eitt í huga, þ.e. að við
starfsmenn leikskóla erum með
það dýrmætasta sem foreldrar
eiga, börnin þeirra, og því er
mjög mikilvægt að fá gott fólk til
starfa sem vill og getur unnið
með börnum.
Við búum í litlu samfélagi þar
sem það virðist skemmtilegra að
smjatta á einhverju neikvæðu en
á því jákvæða og góða. Hugsum
okkur aðeins um næst þegar sagt
er: „Sagan segir...“
Hvaðan kemur hún og hvað er
á bak við hana?
Ég vinn á leikskólanum
Stekkjarási. Ég veit að ég vinn á
skemmtilegum vinnustað og mig
langar ekki að breyta til. Ég veit
að þar er fínn mórall og gott að
vinna!
Unnur Henrýsdóttir, deildar-
stjóri á Blásteini á Stekkjarási.
Hugleiðing um Gróu á Leiti
Lionskonur í Kaldá færðu
Fjölgreinanáminu í Lækjarskóla
tvær saumavélar á dögunum,
aðra tölvustýrða en hina iðnað-
arsaumavél til að sauma þykkt
efni. Sveinn Alfreðsson, verk-
efnisstjóri, Kristín María Ind-
riðadóttir og Halla Þórðardóttir,
aðst. skólastj. Lækjataskóla tóku
við gjöfinni. Að sögn Guðrúnar
Júlíusdóttur, ritara Kaldár selja
klúbbfélagar m.a. jólakort og
héldu bingó til að afla fjár og
klúbburinn styrkir árlega góð
málefni með verulegum upp-
hæðum. Í klúbbnum eru 43
konur og formaður klúbbsins er
Elísabet Guðmundsdóttir.
Gáfu saumavélar
Lionskonur styrkja fjölgreinanámið
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Það færist í vöxt að ferðamenn
heimsæki hina nýju miðstöð
Goðafræða sem er að rísa í
Straumi við Straumsvík.
Á síðastliðnu ári heimsóttu um
2.500 erlendir ferðamenn stað-
inn og nýja árið byrjaði með
heimsókn eins af fyrstu ferða-
mannhópunum frá Indonesíu.
„Það er sammerkt með öllum
þjóðum að goðafræði sameinar
og vekur upp umræðu um fornar
hefðir allra þjóða og þjóðarbrota.
Oft má finna sameiginlega arf-
leifð og er það eitt af þeim fjöl-
mörgu verkefnum sem er verið
að vinna í Straumi,“ segir Friðrik
Brekkan leiðsögumaður.
Haukur Halldórsson og Sverrir
Þór Sigurjónsson eru mennirnir á
bak við átakið í Straumi.
Í kringum Straum eru fallegar
gönguleiðir og eru menn hvattir
til að banka uppá í húsakynn-
unum og kynna sér það sem fram
fer eftir góðan göngutúr en þar
kennir ýmissa grasa.
Ferðamenn streyma í Straum
Nýja miðstöð goðafræða vinsæl
Haukur Halldórsson
Haukur Halldórsson með ferðamönnum frá Indónesíu.
Lj
ós
m
.:
F
rið
rik
B
re
kk
an
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n