Fjarðarpósturinn - 08.02.2007, Qupperneq 3
www.fjardarposturinn.is 3Fimmtudagur 8. febrúar 2007
Vodafone
styrkir
foreldraröltið
Nýlega styrkti Vodafone
foreldraröltið í Hafnarfirði um
6 nýja síma en þeir verða
notaðar sem öryggistæki og til
að auðvelda foreldrum í röltinu
samskipti sín á milli og við
aðra samstarfsaðila.
Í flestum skólum bæjarins er
virkt foreldrarölt og verið er að
hrinda því í fram kvæmd í
Hraunvallaskóla. Styrkurinn
kemur sé vel sem aukin
þjónusta við verkefnið og
eykur öryggi starfsins að sögn
Geirs Bjarnasonar, for varn -
arfulltrúa hjá Hafnar fjarðarbæ.
Taekwondo
Gull og silfur í
Svíþjóð
Trelleborg open mótinu í
sparring - Taekwondo lauk nú
um helgina. Fimm keppendur
voru frá Íslandi en 27 þjóðir
sendu keppendur á þetta sterka
A mót. Allir íslensku kepp -
endurnir voru úr Taekwondo
deild Bjarkar.
Björn Þor leifsson náði gulli
á mótinu og er hann því komin
á feikna skrið á þessu ári.
Auður Anna Jónsdóttir náði
silfri eftir bardaga við þýska
stúlku sem hafði betur í úrslita -
bardaganum.
Þrír af keppendunum Bjark -
ar, Björn, Gauti
og Hauk ur
voru í æf inga -
búðum viku
fyrir keppn ina í
Sví þjóð hjá
Mast er Paul
Voigt, lands -
liðs þjálf ara
Íslands.
www.frikirkja.is
Fríkirkjan
Sunnudaginn 11. febrúar
Sunnudagaskóli kl. 11
Kvöldvaka kl. 20
Góðir gestir líta við - kaffi á könnunni.
Allir velkomnir
Hraunseli, Flatahrauni 3
og hefst kl. 20.30
Félagsmiðstöðin Hraunsel • 555 0142, 555 6142
Munið vef félagsins: www.febh.is
Dansinn dunar frá kl. 20.30-23.30
Capri tríó leikur
Hjartanlega velkomin!
Dansleikur eldri borgara
föstudaginn 9. febrúar
Þann 16. febrúar næstkomandi
lýkur sýningum á hinu bráð -
fyndna verki Ráðskonu Bakka -
bræðra hjá Leikfélagi Hafnar -
fjarðar. Verkið hefur nú verið
sýnt síðan fyrir jól við góðar
undir tektir bæjarbúa og lýkur nú
fyr ir fullu húsi vegna anna leik -
ara. Verkið var sett upp í desem -
ber til að minnast 70 ára afmælis
leik félagins en Ráðskona Bakka -
bræðra er vinsælasta verk félags -
ins frá upphafi og var sýnt 84
sinnum á árunum 1943-44.
Leikfélag Hafnarfjarðar hefur
starfað að krafti síðustu ára -
tugina og ekki síst eftir að hafa
feng ið samastað í Gamla
Lækjar skóla fyrir þremur árum.
Á síð asta ári setti félagið upp
þrjú verk í fullri lengd og var eitt
þeirra nýtt íslenskt verk eftir
Hafn firðinginn Lárus Húnfjörð
og eitt ný leikgerð eftir sögu Ole
Lund Kirkegaard. Það er stefna
leikfélagsins að bjóða bæjar -
búum upp á það ferskasta sem er
að gerast í íslenskum leikhús -
heimi bæði með framsæknum
tilraunum í leiklist og eins með
vönduðum og skemmtilegum
sýningum fyrir alla aldurshópa.
Á haustdögum vonast félagið til
að hefja aftur með stuðningi
bæjar yfirvalda starf fyrir ungl -
inga á aldrinum 13-16 ára en
veru leg þörf er fyrir aðra tóm -
stundaiðju en íþróttir fyrir þenn -
an aldurshóp að sögn Lárusar
Vilhjálmssonar hjá leikfélaginu.
Síðustu sýningar á Ráðskonu
Bakkabræðra eru laugardaginn
10. febrúar, sunnudaginn 11.
febrúar (uppselt) og föstudaginn
16. febrúar. Sýningar byrja kl. 20
og eru í Gamla Lækjarskóla.
Miðapantanir eru í síma 5511850
og í leikfelagid@simnet.is.
Gróska hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar
Síðustu sýningar á Ráðskonu Bakkabræðra
Kristín Rós Birgisdóttir, sem leikur ráðskonuna með Huldu
Runólfsdóttur sem lék ráðskonuna 1943 og aftur 1952.
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
0
2
3
9
Hafnarfjarðarbær fékk Capa -
cent til að gera tillögu að
spurningu fyrir íbúakosningarnar
31. mars nk. Tillagan er svo -
hljóð andi:
Fyrir liggur tillaga að deili -
skipu lagi sem gerir ráð fyrir
stækk un álversins í Straumsvík.
Til lagan hefur verið kynnt íbúum
Hafnarfjarðar.
Ertu fylgjandi eða andvígur
stækk un álversins samkvæmt
fyrirliggjandi deiliskipulags til -
lögu?
Hægt var að senda athuga -
semd ir um orðalagið til 7. febrúar.
Um hvað verður spurt?