Fjarðarpósturinn - 23.08.2007, Side 2
Heuwinkel í Hafnarborg
Í dag, fimmtudag kl. 17 verður opnuð
í Hafnarborg sýning á verkum þýska
listamannsins Wolfgang Heuwinkel.
Wolfgang hefur þróað með sér mjög
sérstaka nálgun við pappír og vatnsliti.
Hann vinnur með hrápappír og
pappírs kvoðu og rannsakar og nýtir
lífræna byggingu efnisins, sogkraft
sellúlósans og frumanna í pappírnum,
hráa áferð og næmi pappírsins fyrir
utanaðkomandi áhrifum, raka og
veðri.
Opnun skógar í Undirhlíðum
Á laugardaginn kl. 14 er bæjarbúum
boðið að koma í Stóra-Skógarhvamm
í Undirhlíðum þar sem afhjúpað verður
nýtt upplýsingaskilti á svæði sem
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar kallar
eitt best varðvetta leyndarmál hafn -
firskrar skógræktarsögu.
Hægt er að komast að svæðinu frá
námunum í Vatnsskarði en þaðan er
um 2 km gangur eftir merktum slóða.
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 23. ágúst 2007
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 681175-0329
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Við Hafnfirðingar tölum mikið um miðbæinn
okkar núna þegar áform eru um að víkja veru -
lega frá gildandi deiliskipulagi fyrir miðbæinn
og leyfa 5 hæðir umfram gildandi skipulag á
afmörkuðu svæði. Fjölmennur kynningarfundur
var haldinn um tillöguna sem var auglýst fyrr í
sumar og var þétt skipaður bekkurinn í Hafn -
arborg þó enn væri vinnutími margra. Allir
fundar gestir sem tóku til máls voru á móti þess -
um aukahæðum en um hvað er verið að deila? Af
hverju er ekki sjálfsagt að leyfa 9 hæða hús í stað 4 hæða? Í raun
eru allir sáttir við að byggja upp í miðbænum. Enginn vill 4 hæða
kumbalda en varla vill nokkur arkitekt með sjálfsvirðingu gera slíkt.
Hann vill teikna hús sem fellur vel að götumyndinni og verði stolt
hönnuðar og verktaka. Þannig hefur vel tekist til með fyrstu 3 hæðir
hússins sem eiga að rýma verslanir á 1. hæð og skrifstofur á 2.-3.
hæð. En ofan á þetta koma tveir 6 hæða turnar. Menn spyrja sig því:
Af hverju má ekki byggja vel heppnaðar 4 hæðir eins og gildandi
deiliskipulag segir til um. Ef hagsmunir verktakans eru svona miklir
að mati bæjarfulltrúa væri sennilega heppilegra að veita þeim lóð á
hagstæðu verði undir 5 hæða hús annars staðar í bænum svo
arðsemin geti orðið jafn mikil. Það mun fjölga mikið í miðbæ
Hafnarfjarðar og ef bæjarstjórnin telur þörf á turnum til að fjölga
enn frekar, af hverju á þá ekki að byggja fleiri turna í miðbænum,
af hverju ekki að leyfa hærri byggingar í öllum miðbænum. Hvað
er sérstakt við þessa lóð? Auðvitað vilja menn losna við þennan
ljóta blett í miðbænum og byggja þarna til prýðis fyrir miðbæinn.
Verslanir eiga að koma á 1. hæðina með tengingu í Fjörð en
skrifstofur á næstu 2 hæðir. Bjarga skrifstofur miðbænum?
Guðni Gíslason
www.hafnarf jardark i rkja. is
5. Golfklúbburinn Keilir,
akstursleið að æfingasvæði.
Erindi vegna akstursleiðar að
æfingasvæði Keilis vísað úr fram -
kvæmdaráði til bæjarráðs til af -
greiðslu. Bæjarráð samþykkir að vísa
erindinu til endurskoðunar fjár hags -
áætlunar með fyrirvara um endanlega
samþykkt deili skipulag. Bæjar ráðs -
fulltrúar Sjálf stæðis flokks óska bókað:
„Bæjar ráðs fulltrúar Sjálfstæðis flokks -
ins eru sammála því að leysa þurfi að -
komuvandamál að æfinga svæði golf -
klúbbsins Keilis. Hins vegar hefði
verið æskilegra að þessi fram kvæmd
hefði verið séð fyrir og kostnaður
vegna hennar, þeg ar til kostnaðar upp -
gjörs vegna æfinga svæðisins kom til
fyrr á árinu. Þá lagði Hafnarfjarðarbær
til um 40 milljóna króna við bótar fram -
lag til Keilis vegna aukins kostnaðar
við uppbyggingu æf inga svæðins frá
því sem upp hafleg fjárhagsáætlun
hafði gert ráð fyrir. Enn bætist við 12
milljóna króna kostnaður nú vegna
vega framkvæmda við æfingasvæðið,
og hefði sú framkvæmd og kostn aður
átt að liggja fyrir mun fyrr í fram -
kvæmda ferlinu.“ Áheyrnar full trúi Vinstri
grænna óskar bók að: „Fulltrúi Vinstri
grænna ítrekar þá afstöðu sem fram
hefur komið í skipulags- og bygg -
ingarráði.“
8.Hraunvangur 7, Hrafnista
Hafnarfirði, lóðarleiga
Lagt fram að nýju erindi um nið -
urfellingu á lóðarleigu við Hraun -
vang 7 [Hrafnista]. Bæjar lögmaður
mætti til fundarins og gerði grein
fyrir áliti sínu á erindinu. Bæjarráð
tekur undir álit bæjar lögmanns og
synjar erind inu.
14. L 94 ehf, umsókn um lóð
undir verslunarmiðstöð.
Lagt fram bréf, dags. 9. ágúst
sl., frá L 94 ehf., kt. 640205-1720,
með ósk um lóð undir húsnæði
sem mun hýsa verslunarmiðstöð,
svokallaða „outlet-verslun“.
Bæjarráð samþykkir að vísa
erindinu til umsagnar á skipulags-
og byggingarsviði.
15. Norðurflug ehf., umsókn
um lóð.
Lagt fram bréf, dags. 2. ágúst sl.,
frá Norðurflugi ehf., þar sem óskað
er eftir fundi með for svars mönn um
Hafnarfjarðarbæjar vegna fram -
tíðarstaðsetningar Norð ur flugs ehf.
Bæjarráð samþykkir að vísa
erindinu til frekari vinnslu á
skipulags- og byggingarsviði.
25. Söngur á elliheimilum,
styrkbeiðni.
Lagður fram tölvupóstur, dags.
18. júlí sl., frá Ingibjörgu Aldísi
Ólafsdóttur, þar sem óskað er eftir
styrk vegna söngflutnings á
elliheimilum í Hafnarfirði. Bæjar -
ráð samþykkir styrk að fjárhæð kr.
72.000, takist af lið 21-815.
26. Íslensk ættleiðing,
styrkbeiðni.
Lögð fram styrkbeiðni, dags. 28.
júní sl., frá Íslenskri ættleiðingu
vegna fyrirhugaðrar ráðstefnu um
ættleiðiningar í tilefni af 30 ára
afmæli félagsins. Guðmundur
Rúnar Árnason, formaður bæjar -
ráðs, vék af fundi við afgreiðslu
máls ins.
Bæjarráð samþykkir styrk að
fjárhæð kr. 100.000 kr., takist af lið
21-815.
Víðistaðakirkja
Helgihald fellur niður í ágúst
vegna sumarleyfa.
www.vidistadakirkja.is
Sunnudaginn 26. ágúst
Guðsþjónusta í Hásölum
Strandbergs kl. 11
Prestar: Prestar Hafnarfjarðarkirkju
Kantor og organisti: Guðmundur Sigurðsson
Félagar úr Barbörukór Hafnarfjarðar leiða söng.
Vænst er sérstaklega þátttöku
fermingarbarna og fjölskyldna þeirra
Allir velkomnir
Óskum eftir starfsfólki í allar deildir, eldhús,
þjónustu og dyravörslu. Dagvinna í boði
og einnig kvöld- og helgarvinna.
Upplýsingar gefur Unnur í síma 691 1422.
Einnig er hægt að leggja inn umsókn á
ahansen@ahansen.is
ATVINNA
Vesturgötu 4 • www.ahansen.is