Fjarðarpósturinn - 23.08.2007, Side 3
www.fjardarposturinn.is 3Fimmtudagur 23. ágúst 2007
Fríkirkjan
Sunnudagur 26. ágúst
Sálmar og gítar
á sunnudagskvöldið kl. 20
Örn Arnarson
syngur og spilar á gítar.
Allir velkomnir til notalegrar stundar í
kirkjunni á síðsumarkvöldi.
Kaffi og spjall í safnaðarheimilinu á eftir.
www.frikirkja.is
Frumraun
dreift í hús
Nýverið dreifði fjölmiðla -
hópur Vinnuskóla Hafnar -
fjarðar blaði sínu Frumraun í
öll hús í Hafnarfirði. Blaðið er
unnið af 14-16 ára ungmenn -
um sem höfðu það að sumar -
starfi að vera í fjölmiðla hópi. Í
blaðinu er fjölbreytt og vandað
efni. Einnig er hægt að sjá
blaðið á www.frumraun.is
Selur hlut sinn
í Saltkaupum
Jón Rúnar Halldórsson
fram kvæmdastjóri og aðal -
eigandi Saltkaupa hefur selt
hlut sinn í félaginu til hóps
fjár festa undir forystu Ólafs
Stein arssonar og Péturs
Björns sonar.
Saltkaup er fremsti söluaðili
landsins bæði á salti til
saltfiskverkunar og götusalti.
Þá rekur félagið umfangsmikla
umbúðadeild sem flytur inn og
endurselur umbúðir fyrir
sjávarútveg, umtalsvert magn
af kryddum og öðrum íbæti -
efnum fyrir matvælavinnslu
sem og efni til rykbindingar
gatna.
Í tilkynningu segir, að nýir
eigendur hyggist fylgja eftir
uppbyggingu félagsins með
sambærilegum hætti og hingað
ti, en leita um leið leiða til að
efla félagið enn frekar. Jón
Rúnar mun starfa áfram hjá
félaginu sem fram kvæmda -
stjóri.
Guðmundur Ásgeirsson sem
verið hefur hluthafi í félaginu
með Jóni Rúnari verður áfram
aðili að félaginu.
mbl.is greinir frá þessu
Númeraplötum
stolið
Númeraplötum var stolið af
stórum hvítum flutningabíl
sem stóð á bíla stæði við Set -
bergs skóla að farar nótt þriðju -
dags. Lögreglu var tilkynnt um
málið en þjófarnir eru ófundn -
ir. Sjónarvottar eru beðnir að
láta lögreglu vita.
Þann 15. ágúst tóku gildi nýjar
regl ur um hámarkshraða á
nokkrum íbúðargötum í Hafnar -
firði, frá Austurgötu og upp á
Álfa skeið. Er hámarkshraði á
þessum götum lækkkaður úr 50
km/klst. í 30 km/klst.
Viðeigandi umferðarmerki
hafa verið sett upp og eru göt -
urnar eftirfarandi.
Álfaskeið, Mávahraun, Svölu -
hraun, Þrastarhraun, Erluhraun,
Sólvangsvegur, Tjarnarbraut,
Mána stígur, Arnarhraun, Smyrla -
hraun, Krókahraun, Slétta hraun,
Haukahraun, Fálka hraun, Kjóa -
hraun, Lóuhraun, Kletta hraun,
Vitastígur, Urðar stígur, Hraun -
stígur, Mjósund, Sunnu vegur,
Hverfisgata, Gunn ars sund,
Skóla braut og Austur gata.
Lögreglan hvetur ökumenn til
að hafa í huga að í íbúð -
arhverfum í bænum er almennt
30 km hámarkshraði.
Hámarkshraði
lækkar í 30 km/klst.
30 km hraði almennt í íbúarhverfum
Nú má aðeins aka á 30 km hraða á Álfaskeiðinu!
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Bjarni Ár manns -
son kaupir
Gasfélagið
Eignarhaldsfélagið Sjávarsýn
ehf., sem er félag í eigu Bjarna
Ár manns sonar, fyrrverandi for -
stjóra Glitnis, hefur að því er
kem ur fram í Viðskiptablaðinu
keypt Gasfélagið ehf. í Straums -
vík sem er helsti innflytjandi á
fljótandi gasi og gashylkjum til
landsins. Seljandi var félagið
Krossá ehf. sem er í eigu Hjálm -
ars Blöndals, fyrrverandi fram -
kvæmdastjóra DV.
Hjálmar keypti Gasfélagið í
apríl sl. af félaginu Ísmyndir ehf.,
sem er í eigu Jóns Þorsteins
Jóns sonar, stjórnarformanns
Sax hóls ehf. og Byrs og Arnar
Arnar sonar fyrrverandi fram -
kvæmdastjóra Gasfélagsins.
Ísm yndir keyptu félagið af olíu -
félögunum; Olíufélaginu ehf.,
Olíuverzlun Íslands hf. og
Skeljungi hf. árið 2005, í kjölfar
þess að þeim var af sam -
keppnisástæðum gert að selja.
Nýr eigandi er því fjórði eigandi
félags ins á tveimur árum. Gas -
félagið ehf. var stofnað í nú -
verandi mynd árið 1995.
Fjármálastjóri
til starfa 1. sept.
Ekki var tekin fyrir í bæjarráði
sl. fimmtudag tillaga bæjarstjóra
um nýjan fjármálastjóra. Að sögn
bæjarstjóra mun nýr fjármála -
stjóri taka til starfa 1. september
nk. en þó aðeins í hálfu starfi
fyrsta mánuðinn. Ekki er hægt að
birta nafn nýja fjármálastjórans
þar sem form legu ferli í bæjar -
ráði er ólokið og væntanlegur
fjár málastjóri, sem er Hafn -
firðingur, á eftir að ljúka nokkr -
um málum á sín um vinnustað
áð ur en nafnið verður gefið upp.
Bergur Ingi Pétursson FH
kastaði sleggjunni 68,29 m og
bætti Íslandsmetið um 1,33 m á
móti í Kaplakrika á þriðjudag.
Það met setti hann í Bikarkeppni
FRÍ í júlí og hefur hann þá
fjórbætt Íslandsmetið á árinu. Er
Bergur Ingi í 17. sæti yfir bestu
kastara í Evrópu, 22 ára og yngri
og á raunhæfan mögu leika að ná
Olympíu lágmarki á næsta ári. Kristbjörg Helga Ingv ars dóttir
FH, setti unglingamet í flokki
21-22 ára þegar hún kast aði
sleggj unni 49,40 m og bætti
ungl ingamet Guðleifar Harð ar -
dóttur ÍR um 1,14 m. Er Helga
með næstbesta árangur í sleggju -
kasti kvenna aðeins Íslandsmet
Aðalheiðar Maríu Vigfúsdóttur
Breiðablik er betra, 49,69 m.
Þá náði Kristján Sigurðsson
FH lágmarki fyrir NM unglinga,
þegar hann kastaði 6 kg sleggju
54,42 m.
Bergur setti Íslandsmet í sleggjukasti