Fjarðarpósturinn - 23.08.2007, Síða 6
Rauður Ólafur
FH þjálfari
Metþátttaka var á Hauka -
mótinu í golfi, sem haldið var
fyrir skömmu, 113 keppendur.
Leikar fóru svo að Ólafur
Jóhannesson, þjálfri FH vann
rauða jakkann á 38 punktum.
Baddaskjöldinn hlaut Snorri
Páll Ólafsson fyrir besta skorið
en hann fór hringinn á 70
höggum. Í 2.- 5. sæti urðu þau
Lúðvík Geirsson, Sigurgeir
Marteinn Sigurgeirsson, Björk
Hauksdóttir og Reynir
Kristjáns son með 37 punkta.-
Við verðlaunaafhendinguna
lét Óli Jó þess getið að hann
myndi mæta í rauða jakkanum
ef Haukar og FH drægjust
sam an í 4ra liða úrslitum bik -
arsins en af því varð ekki því
Haukar heltust úr lestinni í
bikarkeppni eftir frábæran
árangur.
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 23. ágúst 2007
Skrifstofustóll til sölu, mjög lítið
notaður. Verð 10 þús. kr.
Uppl. í s. 565 4541.
Sex mánaða gamall páfagaukur í
búri fæst gefins.
Uppl. í s. 695 1758.
Þú getur sent
smáauglýsingar á:
a u g l y s i n g a r @ f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
e ð a h r i n g t í s í m a 565 3066
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a , e k k i
r e k s t r a r a ð i l a . V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r .
Ta p a ð - f u n d i ð o g f æ s t g e f i n s : F R Í T T
R e k s t r a r a ð i l a r :
F á i ð t i l b o ð í r a m m a a u g l ý s i n g a r !
Gefins
Til sölu
Eldsneytisverð
22. ágúst 2007 í Hafnarfirði:
Sölustaður 95 okt. dísil
Atlantsolía, Kaplakr. 125,4 124,4
Atlantsolía, Suðurhö. 125,4 124,4
Orkan, Óseyrarbraut 124,8 123,8
ÓB, Fjarðarkaup 124,9 123,9
ÓB, Melabraut 125,4 124,4
Skeljungur, Rvk.vegi 127,0 126,0
Öll verð miðast við sjálfs af greiðslu og
eru fundin á vef síð u olíufélaganna.
Að auki getur verið í boði sérafsláttur.
Ertu stíf(ur)?
Heilsunudd og verkjameðferð
Upplýsingar og pantanir í síma 699 0858
Erlendur M. Magnússon, heilsunuddari
Bæjarhrauni 2, 2.h
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir HarðarsonSverrir Einarsson
Rakel 869 7090 • Sindri 861 7080 • www.kolbrunrakel.is
Næring + Hreyfing + Fræðsla = Árangur
Sjálfstæðir dreifingaraðilarFrábær árangur með Herbalife
Ráðgjöf og eftirfylgni. Fríar prufur
Þyngdarstjórnun - Aukin orka
Gerður Hannesdóttir sjálfst. dreifingaraðili.
865 4052 • 565 1045 ghmg@simnet.is
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar
afhjúpar nýtt upplýsingaskilti við
Stóra-Skógarhvamm í Undir -
hlíðum kl. 14 á laugardaginn um
leið og skógurinn verður opnað -
ur almenningi.
Stóri-Skógarhvammur er eitt
best varðveitta leyndarmál hafn -
firskrar skógræktarsögu að sögn
for svarsmanna Skógræktar fé -
lags ins. Þangað liggur enginn
akfær vegur, aðeins göngu slóði
sem er hluti Reykjavegar.
Hvamm urinn er í norð anverðum
Undir hlíðum milli Bláfjallavegar
og Krýsu víkur vegar og var áður
vinsæll áninga staður þeirra sem
fóru Undir hlíðaleið, gömlu þjóð -
leið ina milli Hafnarfjarðar og
Krýsu víkur.
Auð velt er að komast í Stóra-
Skógar hvamm með því leggja
bílnum á afleggjara af Krýsu -
víkur vegi norðan við Vatnsskarð.
Þar eru stikur sem vísa á Undir -
hlíðaleið og Reykjaveg en leiðin
að Stóra-Skógarhvammi er tæp -
lega 2 km löng.
Eins og nafnið gefur til kynna
var Stóri-Skógarhvammur vax -
inn gömlum birki- og víðiskógi
þegar Skógræktarfélag Hafnar -
fjarðar fékk svæðið til umsjónar
og ræktunar 1958. Byrjað var á
að girða 56 ha spildu sumarið
1958 en árið eftir hófst plöntun
trjágróðurs af fullum krafti.
Samið var við Hafnarfjarðarbæ
um að piltar í vinnuskólanum í
Krýsu vík önnuðust ræktunar -
starfið undir stjórn Hauks Helga -
sonar forstöðumanns vinnu -
skólans. Þegar vinnuskólinn í
Krýsuvík var lagður niður haust -
ið 1964 var formlegu rækt unar -
starfi lokið í Stóra-Skógar -
hvammi. Skógurinn hefur fengið
að aðlagast landsháttum undan -
farna fjóra áratugi og hefur
nánast verið sjálfbær þennan
tíma.
Undanfarnar vikur hafa félags -
menn og starfsmenn Skóg -
ræktarfélags Hafnarfjarðar tekið
niður gömlu girðingarnar og
fjarlægt þær til að opna skóginn.
Næstu sumur verður út plöntun
haldið áfram til að auka
tegundavalið auk þess sem unnið
verður að grisjun og stígagerð til
að auðvelda aðgengi að þessum
merka ræktunarreit.
Tilvalið er fyrir þátttakendur í
Ratleik Hafnarfjarðar 2007 að
finna punkt 12 og jafnvel 23 sem
eru þarna rétt hjá.
Opnun skógar í Stóra-
Skógarhvammi
Bæjarbúum boðið í skóginn á laugardaginn kl. 14
Skógur í Stóra-Skógarhvammsgili baðaður í kvöldsólinni.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Undirrituð eru íbúar við Lækj -
ar götu 12 í Hafnarfirði og því er
húseign okkar hjóna ekki ein
þeirra er bókstaflega myndu falla
í skugga fyrirhugaðra há hýsa.
Samt sem áður áskiljum við okk -
ur rétt til að mótmæla harðlega
þessum áformum sem íbúar í
Hafnarfirði og tíðir vegfarendur í
miðbænum. Ástæðurnar eru fyrst
og fremst eftirfarandi:
1. Sjónmengun yrði víðtæk af
þessum yfirþyrmandi íbúða turn -
um. Enginn sem sat kynn ing ar -
fundinn í Hafnarborg nú fyrir
skemmstu gat látið viðbrögð fólks -
ins sem þar sat fram hjá sér fara
þegar myndirnar af turnunum
birtust. Þetta er einfaldlega ljótt.
Þessi sjónmengun myndi bitna á
öllum sem leið eiga um mið bæinn.
2. Byggingin yrði gjörsamlega á
skjön við markmið ríkjandi skipu -
lags. Þar er talað um að hlúa að sér -
kennum miðbæjarins, en það sem
öðru fremur einkennir miðbæ
Hafn arfjarðar er fínleg og lágreist
byggð. Það er öllum augljóst að
fyrir hugaðar framkvæmdir yrðu í
hróplegri mótsögn við yfirlýst
mark mið. Það er hætt við að stór -
lega dragi úr tiltrú íbúa á yfirvöld
sem ekki standa við orð sín.
3. Sól og skjól eru ómetanleg
verð mæti í okkar kalda og vinda -
sama landi. Allt sem rýrir þessi
gæði minnkar aðdráttarafl um -
hverf isins. Fólk mun ekki streyma
í miðbæ Hafnarfjarðar til að norpa
í skugga háhýsanna eða láta
vindhviður feykja sér um koll.
4. Framkvæmdaaðilar í bygg -
inga iðnaði eiga ekki að hafa mót -
andi áhrif á skipulag bæja og borga.
Þeirra sjónarmið einkennast af
fjárhagslegum hagsmunum.
Skipu lagsyfirvöld bæjarins hljóta
að hafa hagsmuni bæjarbúa í fyrir -
rúmi. Framkvæmdaðilar keyptu
lóðina með þeim skipulag skil -
málum sem á henni hvíldi. Þeim
ber að fara eftir því, ekki treysta á
að velvilji bæjaryfirvalda opni
þeim gróðavænlegri leið.
5. Engin þörf er á við bótar íbúð -
um fyrir aldraða í miðju bæjarins.
Þessi tegund íbúða hefur á undan -
förnum árum reynst harla arðbær
fyrir framkvæmdaðila, enda slagar
verð á „þjónustuíbúðum“ oft upp í
verð á einbýlishúsi. Slíkar bygg -
ingar hafa risið eins og gorkúlur og
framboð er yfrið nóg. Turn í mið -
bænum er heldur ekki besti kost -
urinn fyrir aldrað fólk, sér staklega
ef vindhviður umhverfis hann gera
því erfitt um vik að fara út fyrir dyr.
Að lokum viljum við taka fram
að okkur leist ekki illa á tillögur
að neðstu hæðum fyrirhugaðra
bygginga, þ.e. þeim 4 hæðum
sem falla að núgildandi deili -
skipulagi. Þær voru hannaðar af
tals verðri alúð. Turnunum tveim -
ur virtist svo hafa verið skellt
þarna ofan á í flýti, væntanlega til
að tryggja hagstæðari útkomu
reikningsdæmisins. Bæjar yfir -
völdum í Hafnarfirði ber að fara
að óskum bæjarbúa og hafa hag
þeirra að leiðarljósi en ekki auk -
inn gróða framkvæmdaðila.
Ragnheiður Gestsdóttir,
Björn Þór Sigurbjörnsson.
Mótmæla byggingu turna
Ólafur Jóhannesson, Snorri
Páll Ólafsson og Lúðvík
Geirs son bæjarstjóri.
Skeljungur vill
byggja
bensínstöð
Skeljungur hefur sótt um lóð
sunnan Reykjanesbrautar undir
nýja bensínstöð. Hvernig stöð
þarna yrði sagði Ólafur Jónsson,
verkefnastjóri hjá Skeljungi, að
færi eftir hvernig lóð fengist en
fyrirtækið vilji styrkja stöðu sína
í Hafnarfirði. Sagðist hann
ánægður að málið væri komið í
ferli hjá Hafnarfjarðarbæ.
Ferðamálin og
menningin til
fjölskylduráðs
Ferðamálin heyra nú undir
fjölskylduráð í stað bæjarráðs og
sviðsstjóri niðurlagðs þjónustu-
og þróunarsviðs, Anna Sigurborg
Ólafsdóttir, verður þjón ustu- og
þróunar stjóri og fer með mark -
aðsmál, miðbæjarmál, er lend
sam skipti og fl. Óska eftir 2ja herbergja
íbúð fyrir starfsmann okkar.
Upplýsingar hjá Unni
í síma 691 1422.
Húsnæði óskast
Vesturgötu 4 • www.ahansen.is