Fjarðarpósturinn - 11.10.2007, Blaðsíða 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 11. október 2007
Víðistaðakirkja
Sunnudagurinn 14. október
Sunnudagskóli kl. 11.00
Skemmtileg stund fyrir börn á öllum aldri
8-9 ára starf á mánudögum kl. 15.30
10-12 ára starf (TTT) á mánudögum kl. 17.00
Unglingastarf á mánudögum kl. 19.30
Kyrrðarstundir
á miðvikudögum kl. 12.00
Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
Opið hús fyrir eldri borgara
á miðvikudögum kl. 13.00
Spil, spjall og kaffiveitingar
Foreldrastundir
á fimmtudögum kl. 13.00
Gefandi samvera fyrir heimavinnandi foreldra.
Samverustundir
10 laugardagsmorgna kl. 10.30 - 12
Kynning á ýmsum bókum.
Efni laugardagsins 13. okt.:
Í fjölþjóðasamfélagi
Rætt um Jesse Owens og Toyohiko Kagawa
Leibeinandi: María Eiríksdóttir
www.vidistadakirkja.is
Verið velkomin
Bragi J. Ingibergsson,
sóknarprestur
Aðalfundur
Aðalfundur foreldrafélags Lækjarskóla
verður haldinn
mánudaginn 15. október 2007 kl. 20.
Fundurinn verður í fyrirlestrarsal Lækjarskóla
Dagskrá:
Skýrsla formanns, reikningar kynntir,
kosning stjórnar, önnur mál
Ljóst er að talsverðar breytingar verða í stjórninni, margir sem
ganga út. Því hvetjum við alla sem áhuga hafa á að starfa í
foreldrafélaginu að nota tækifærið og láta gott af sér leiða.
Stjórnin
Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir er
ein þeirra sem hefur tekið þátt í
foreldrastarfi skólann hér í bæ. Hún
var í foreldra ráði Lækjar skóla
veturinn 2001-2002 en flutti þá til
Danmerkur. Hún byrjaði aftur
veturinn 2005-2006 og hefur verið
í stjórn foreldrafélagsins síðan,
síðasta vetur líka í foreldraráði.
Hvað kom til að þú tókst að þér
starf í félaginu?
„Sennilega var það einhver
blanda af stjórnsemi, forvitni og
skyldurækni. Ég er dálítið þannig
gerð að sogast að félagsmálum og
ansi oft „lent“ í árshátíðarnefnd eða
skemmtinefnd svo þetta kom fáum
á óvart í kring um mig. Eftir að ég
byrjaði hef ég tekið eftir því hvað
dætur mínar eru áhugasamar um
hvað ég er að gera og finnst merki -
legt að ég viti stundum eitthvað
meira um skólann þeirra og starfið
í honum en þær. Það er mér mikils
virði að þær finni að ég sé þátt -
takandi í þeirra lífi og sýni því
áhuga. Þó að þetta taki tíma frá
fjölskyldunni þá gefur það líka
mikið til baka.“
Hvaða hugmyndir hafðir þú gert
þér um starf ?
„Eldri dóttir mín var búin að vera
í Lækjar skóla í 2 ár þegar ég byrj -
aði þannig ég var búin að mæta í
jóla fönd ur og á vorhátíðina sem
allt af er haldin í maí. Mér óx það
svo lítið í augum að taka þátt í
skipulagningu svona stórra við -
burða en sá fljótlega að marg ar
hendur vinna létt verk. Þetta hefur
gengið ótrúlega vel og verið virki -
lega gaman að taka þátt í þessu.“
Í hverju felst starfið? Er það
tímafrekt?
Á hverju ári höfum við jóla fönd -
ur, við tökum þátt í hátíðarhöldum
skól ans á öskudegi og höldum vor -
hátíð í maí eins og ég sagði áðan.
Foreldraröltið hefur einnig verið
mikilvægur þáttur af okkar starfi.
Við höfum verið í góðu samstarfi
með stjórnendur skólans sem og
forvarnafulltrúa Hafnarfjarðar og
lög reglu. Stjórn foreldrafélagsins
get ur haft heilmikið um það að
segja hversu mikið eða lítið hún
gerir á hverju ári. Hver stjórnar -
með limur getur líka tekið eins
mikinn þátt í þessu og viðkomandi
getur og vill. Ég hef aldrei upplifað
það að þurfa að verja tíma í þetta
þegar illa hefur staðið á. Það hefur
verið góð verkaskipting milli okkar
og þegar einn getur ekki, þá taka
aðrir við.“
Gengur vel að fá foreldra til að
taka þátt?
„Við höfum verið heppin síðustu
2 ár með frábæran hóp af foreldr -
um sem hefur verið duglegur og
samhentur í því að láta þetta ganga
sem best. Það vill samt brenna við
að það þurfi að ganga dálítið á eftir
foreldrum til að gefa kost á sér. Við
höfum haft bekkjarfulltrúakerfi
sem snýst um að tveir foreldrar í
bekk taki sig saman á hverri önn og
standi fyrir einhverju sem eflir
bekkinn sem hóp. Þetta getur verið
haldið í skólanum eða utan hans og
höfum við heyrt um ýmsar frá -
bærar hugmyndir, stórar og smáar
sem foreldrar hafa verið að fram -
kvæma. Í ár ætla reyndar margir úr
stjórn foreldrafélagsins að draga
sig í hlé og því mikil þörf á að gott
fólk gefi sig fram við okkur.“
Hvaða ráð getur þú gefið þeim
sem langar til að taka þátt í
foreldrastarfi?
„Bara setja sig í samband við
okkur og bjóðast til að vera með.
Það er alltaf þörf á fólki til að taka
þátt í því sem við erum að gera.
Foreldrafélagið í Lækjarskóla setur
upplýsingar á heimasíðu skólans
auk þess sem starfsfólk skólans veit
hverjir eru í foreldrafélaginu og
geta gefið upplýsingar um hvernig
er best að ná í okkur. Best væri ef
allir foreldrar gæfu kost á sér
einhvern tímann á skólagöngu
hvers barns, þá dreifist álagið jafnt
milli foreldra og gefur öllum
tækifæri til að kynnast og vera
með.“
Allir foreldrar ættu að prófa að
vera í stjórn foreldrafélags
Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir.
Hinn geysivinsæli einleikur
Bjark ar Jakobsdóttur Sellófón
var frumsýndur á finnsku í Alex -
ander leikhúsinu í Helsinki 27.
september sl. í leikstjórn Bjarkar.
Sýningin í Finnlandi hlaut lof -
samlega dóma í finnsku blöð -
unum.
Leikritið var upphaflega frum -
sýnt á Íslandi árið 2002 með
Björk sjálfa í aðalhlutverki og
hlaut fádæma góða viðtökur en
hér gekk það í þrjú ár samfleytt
og var sýnt yfir 200 sinnum.
Síðan þá hefur það verið sýnt í
tíu öðrum Evrópulöndum og er
þetta í annað sinn sem það fer á
fjalirnar í Helsinki en áður var
það sýnt þar á sænsku við mjög
góðar undirtektir.
Gert hefur verið samkomulag
um uppsetningu verksins í Rúss -
landi snemma á næsta ári og kom
tíu manna sendinefnd þaðan til
að fylgjast með lokaæfingum og
frumsýningu í Finnlandi en það
sýnir fram á hversu mikið Rússar
leggja í undirbúninginn.
Það er þekkt finnsk leikkona
sem fer með aðalhlutverkið, Sari
Siikander.
Hafnfirsk leiklistarútrás
Sellófón sýnt í Helsinki og verður sýnt í Rússlandi!
Sari Siikander.
Sterar í
iðnaðarhúsnæði –
lögreglumenn
óvelkomnir á ball
Í sl. viku gerðu lögreglu menn
á svæðisstöðinni í Hafn ar firði
húsleit í iðnaðarhúsi, að undan -
gengnum úrskurði hér aðs dóms.
Í leitinni var lagt hald á um tals -
vert magn stera lyfja sem grunað
var að væru ætluð til sölu.
Þá var um nýliðna helgi mik -
ill erill hjá lögreglunni. Ítrekað
voru útköll á sama veitinga stað -
inn vegna ölvunar, óláta og
áfloga. Þá voru einnig nokkur
út köll á stórdansleik sem hald -
inn var í Kaplakrika á laugar -
dags kvöldið. Þar braut kona
rúðu, tilkynnt var um slagsmál
og höfð afskipti af aðila með
fíkniefni í fórum sínum. Lög -
reglu menn, sem fóru til eftirlits
á staðinn og hugð ust kanna með
leyfa mál og aldur gesta, voru
ekki boðn ir velkomnir af for -
svars mönn um dansleiksins.
Þá hefur að undanförnu verið
nokkuð um útköll í versl unar -
miðstöðina Fjörð vegna óláta í
unglingum. Þarna hafa ungl ing -
ar verið að leika sér á hjóla -
brettum innandyra og hefur
öryggis vörður verslunar mið -
stöðvarinnar ítrekað þurft að
kalla eftir aðstoð lögreglu. Auglýsing í Fjarðarpóstinum borgar sig! Auglýsingasími: 565 3066