Fjarðarpósturinn - 01.03.2007, Blaðsíða 1
„Okkur er harmur í huga en
við viljum ekki berja höfðinu við
steininn; bærinn mun ekki finna
gott húsnæði í tíma, við eigum
ekki fyrir byggingu - og síst af
öllu viljum við standa að starfi
sem tryggir ekki gæði á öllum
sviðum!“ Þetta var meðal þess
sem Margrét Pála Ólafsdóttir,
framkvæmdastjóri Hjalla stefn -
unnar ehf. segir í bréfi sem sent
var til foreldra skóla barn anna 60
í vikunni.
Málið var tekið upp á bæjar -
stjórnarfundi og þar upplýsti Ellý
Erlingsdóttir að viðræður hafi
verið í gangi við Hjallastefnuna
um húsnæðismál við Hjallabraut
og hafi tillögur verið lagðar
fram. Því kom henni á óvart sú
ákvörðun Hjallastefnunnar að
hætta skólastarfi í Hafnarfirði og
taldi að málið væri í ferli.
Ástæða lokunarinnar segir
Margrét Pála í bréfinu að sú eina
stofa sem Hafnarfjarðarbær hafi
boðið hafi ekki dugað auk þess
sem Hjallastefnan hafnaði því að
fyrirtækið bæri að hluta eða í
heild kostnað við uppbyggingu
grunn skólaeiningar. Ellý sagði
hins vegar að aðeins hafi verið
spurt um það hvort Hjallastefnan
vildi taka þátt í slíkum kostnaði
eins og fyrirtækið gerði í Garða -
bæ.
Í máli Ellýar kom fram að hún
harmaði mjög þessa ákvörðun
Hjallastefnunnar og vonaðist til
þess að þetta yrði ekki endanleg
ákvörðun.
Einn viðmælandi Fjarðar -
póstsins sagði málið lykta af því
að áhuginn fyrir skólarekstrinum
við Hjallabraut væri ekki fyrir
hendi núna og taldi óábyrgt að
hefja og slíta skólastarfi með
þessum hætti.
Skólastjóri Barnaskóla Hjalla -
stefnunnar er Þorgerður Anna
Arnar dóttir.
ISSN 1670-4169w w w. f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
9. tbl. 25. árg. 2007
Fimmtudagur 1. mars
Upplag 9.800 eintök. Dreift frítt í Hafnarfirði og á Álftanesi
www.66north.is
Miðhraun 11 - Sími 535 6600
www.as.is
Sími 520 2600
Fjör færist í
álversum -
ræðuna
Hagur Hafnarfjarðar, ný
samtök stuðningsmanna ál -
vers stækk unar hafa hellt sér í
kosningabaráttuna. Héldu sam -
tökin blaðamannafund á
sunnu dag og fengu strax við -
brögð andstæðinga stækkunar.
Hafa fulltrúar Hags Hafnar -
fjarð ar og Sólar í Straumi mæst
í umræðuþáttum og hefur
fullyrðing verið á móti full -
yrðingu.
Starfsemi leikskólans við Hjallabraut verður óbreytt.
Skóli Hjallastefnunnar hættir
Bæjarfulltrúum kom ákvörðunin á óvart
L
j
ó
s
m
.
:
S
m
á
r
i
G
u
ð
n
a
s
o
n
Hagur Hafnarfjarðar boðar til opins fundar í Hafnarborg Hafnarfirði
fimmtudaginn 1. mars kl. 20.00.
Frummælendur á fundinum eru:
• Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri SI
• Örn Friðriksson, vélvirki
• Ingi B. Rútsson, formaður Hags Hafnarfjarðar
9 ára fékk silfur