Fjarðarpósturinn - 01.03.2007, Blaðsíða 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 1. mars 2007
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 681175-0329
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar vilja stækk -
un álversins í Straumsvík. Mér er alveg sama þó
þeir vilji ekki gefa upp afstöðu sína þá sam -
þykktu þeir í bæjarstjórn að senda deili skipu -
lagstillöguna í auglýsingu. Hún var sam þykkt
með fyrirvara um samþykki í íbúa kosn ingu. Þeir
túlka kosninguna um hvort auglýsa eigi deili -
skipulagstillöguna, kosningu um hvort byggja
eigi álver og því hafa bæjarfulltrúar Sam fylk ing -
ar innar samþykkt stækkun álversins í Straums -
vík. Það er ekki flóknara en svo.
Það er ótrúlegt hvað sparisjóðsmálið kemur oft upp í huga manns.
Góðverk stjórnenda Sparisjóðs Svarfdælinga fær mann auðvitað til
þess að hugsa hvað hefði gerst í Hafnarfirði ef „bankaræningjarnir“,
eins og ég hef heyrt stofnfjáreigendurna nefnda, hefðu haft sama
hugsunarhátt og þeir fyrir norðan? Nei, henni er misskipt gæsku
mannanna.
Enn bólar ekkert á lausn fjárhagsvanda Haukanna og engar
tillögur hafa enn verið lagðar fram. Meirihluti bæjarstjórnar er
sagður ásaka minnihlutann um að draga lappirnar en hvenær fór að
þurfa á minnihlutanum að halda? Meirihlutinn væri búinn að leggja
fram tillögu í málinu ef þeir hefðu kjark til þess. Kannski á að kjósa
um þetta. Kannski á að bjóða þjónustuna við Haukana út skv.
útboðsstefnu bæjarins? Ekkert hefur heldur heyrst um kröfur um að
bærinn borgi 80% í boltatínsluvél fyrir golfklúbbinn eftir að læða
átti málinu í gegnum kerfið en var stoppað af oddvita Sjálf -
stæðisflokksins sem ku vera illa liðinn af golfforystunni fyrir vikið.
Það er líklega erfitt að vera í pólitík og vera vinsæll á sama tíma.
Guðni Gíslason
www.hafnarf jardark i rkja. is
Víðistaðakirkja
Sunnudagurinn 4. mars
Fjölskylduhátíð kl. 11.00
Sunnudagaskólinn og fjölskylduguðsþjónustan
saman í einni stórri fjölskylduhátíð.
Barnakórinn og Unglingakórinn syngja
undir stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttur
Samvera með fermingarbörnum og foreldrum
Í safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni.
Kyrrðarstundir
á miðvikudögum kl. 12.00
Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
Opið hús fyrir eldri borgara á
miðvikudögum kl. 13.00
Spil, spjall og kaffiveitingar
Foreldrastundir
á fimmtudögum kl. 13.00
Gefandi samvera fyrir heimavinnandi foreldra.
www.vidistadakirkja.is
Verið velkomin
Bragi J. Ingibergsson,
sóknarprestur
Æskulýðshelgi Hafnarfjarðarkirkju 1.-4. mars
Laugardagur 3. mars
kl. 16: Kaffihúsaguðsþjónustu í safnaðarheimilinu.
Kaffimessukór frá Vestmannaeyjum annast kaffihúsaguðs þjón -
ust una, sr.Kristján Björnsson sóknarprestur í Vestmannaeyjum
leiðir samtalspredikun með prestum Hafnarfjarðarkirkju. Til sölu
kaffi og vöfflur í umsjón foreldrafélags barna og unglingakórsins.
Sunnudagurinn 4. mars, Æskulýðsdagurinn
Kl. 11: Fjölskylduhátíð.
Hljómsveitin Gleðigjafar leikur, barnakórinn syngur, glærusaga,
góðgæti í safnaðarheimilinu eftir stundina.
Kl. 20: Æskulýðsmessa í umsjá Æskó,
Æskulýðsfélags Hafnarfjarðarkirkju.
Hinn landsþekkti Friðrik Ómar syngur,
hljómsveitin Gleðigjafar leikur.
Eftir æskulýðsmessuna bjóða
fermingarbörn fjölskyldum sínum til
veglegrar veislu í Hásölum Strandbergs.
Sýningar Kvikmyndasafnsins
Á laugardaginn kl. 16 verður sýnd
myndin Spegillinn (1975) eftir Andrei
Tarkovsky.
Á þriðjudaginn kl. 20 verður sýnd
myndin Professione: reporter eftir
ítalska kvikmyndaskáldið Michel -
angelo Antonioni. Sjónvarps frétta -
maður kemur á hótel í Norður Afríku til
þess að gera fréttamynd um skæru -
liða. Þegar hann uppgötvar að mað -
urinn í næsta herbergi er látinn og auk
þess nauðalíkur honum sjálfum tekur
hann ákvörðun um að skipta á skil -
ríkjum við líkið og breiða þar með yfir
vissa hluti í eigin fortíð. Hann tekur að
sinna stefnumótum og áætlunum hins
látna, í þeirri von að þetta nýja líf verði
áhugaverðara en hans eigið.
Sýningar Kvikmyndasafnsins eru í
Bæjarbíói, Strandgötu 6.
Aðalfundur Félagsráðs Hauka
Aðalfundur Félagsráðs Hauka verður
haldinn mánudaginn 5. mars kl. 20 í
Samkomusalnum. Í tillögum á nýju
skipu riti félagsins er gert ráð fyrir
auknu vægi Félagsráðs. Dagskrá aðal -
fundarins er samkvæmt lögum félags -
ins.
Kvenfélagið Hringurinn
Hafnarfirði 95 ára
Stjórn Kvenfélagsins Hringurinn vill
minna félagskonur á miðasölu vegna
95 ára afmælisins, verður hún í
Versunar miðstöðinni Firði, fyrir fram -
an Dalakofann, fimmtudaginn 1. mars
kl.16-18.
Afmælisveislan í Fjöru garðinum á
afmælisdegi félagsins 7. mars og
hefst hún kl.19.
Aðalfundurinn verður haldinn í
Hringshúsi fimmtudaginn 15. mars og
hefst hann kl. 20.30, en ekki kl.19.30
eins og fram kom í fréttabréfi.
Súpufundur Vorboðans
Súpufundur Vorboðans verður í dag
kl. 18 í Sjálfstæðishúsinu. Gestir fund -
ar ins eru Rósa Guðbjartsdóttir og Kol -
brún Jónsdóttir.
6. Víðistaðaskóli og
Setbergsskóli, launamál
kennara.
Lögð fram ályktun kennara í
Víðistaðaskóla og Setbergsskóla
vegna stöðu mála í viðræðum
kennara og launanefndar sveit -
arfélaga. Lagt fram minnisblað
launanefndar sveitarfélaga, dags.
18. janúar ´07 ásamt samanburði
á launum leikskólakennara og
grunnskólakennara.
Bæjarráð Hafnarfjarðar hvatti
Samband ísl. sveitarfélaga, á
fundi sínum 7. des. sl. í framhaldi
af erindi frá Félagi grunn skóla -
kennara í Hafnarfirði og trún aðar -
mönnum kennara í Hafnarfirði, að
efna til skólamálaráðstefnu þar
sem m.a. yrði fjallað um kjaramál
grunnskólakennara með við -
komandi aðilum.
Í grein 16.1. í samningi Félags
grunnskólakennara og Launa -
nefndar sveitarfélaga segir að ef
„almenn efnahags- og kjaraþróun
gefi tilefni til viðbragða“ beri að
„ákveða þær ráðstafanir sem þeir
verða sammála um“.
Ljóst er að samninganefnd
grunn skólakennara og launanefnd
sveitarfélaga hafa ekki náð fram
tillögu að lausn sem aðilar geta
orðið sammála um. Að þeim sök -
um óskar bæjarráð Hafnarfjarðar
eftir því að stjórn Sambands ísl.
sveitarfélaga haldi fund um launa -
mál grunnskólakennara, þannig
að sveitarstjórnarmenn geti fjallað
um launamálin á breiðum grunni
og leitað leiða sem gera það að
verkum að samninganefndirnar
nái samkomulagi um ásættan leg -
ar ráðstafanir m.t.t. greinar 16.1.
12. Austurgata 38,
kaupsamningur og afsal.
Lögð fram drög að kaup samn -
ingi og afsali vegna kaupa Hafn -
arfjarðarbæjar á hluta úr lóð við
húsið nr. 38 við Austurgötu í
Hafnarfirði. Bæjarráð samþykkir
drögin fyrir sitt leyti.
19. Flensborgarskóli, styrk -
beiðni vegna 125 ára afmælis.
Lagt fram bréf, dags. 7. febrúar
sl., formanni afmælisnefndar og
skólameistara Flens borgar skól -
ans þar sem óskað er eftir stuðn -
ingi bæjarins vegna 125 ára
afmælis hans.
Bæjarráð samþykkir að fela
bæjarstjóra að vinna frekar að
tillögum vegna málsins.
3. Nýbúaútvarp.
Lagt fram bréf frá félags mála -
ráðuneytinu, dags. 15. febrúar sl.,
þar sem fram kemur að félags -
málaráðherra hefur ákveðið að
veita styrk til verkefnisins að fjár -
hæð 500.000 kr.
Fer að snjóa á morgun?
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Þrestir á góðri stund.
L
j
ó
s
m
.
:
K
r
i
s
t
j
a
n
a
Þ
.
Á
s
g
e
i
r
s
d
ó
t
t
i
r