Fjarðarpósturinn - 01.03.2007, Qupperneq 7
www.fjardarposturinn.is 7Fimmtudagur 1. mars 2007
Allir almennir flutningar og
kranavinna, mótahíf,
krabbavinna, efniskeyrsla,
vatnstankur og mannkarfa 30 m
Gjafavörur
í miklu úrvali
Nonni GULL
Strandgötu 37 • sími 565 4040
Opið til kl. 21
í
kvöld, fimmtu
dag!
www.lovedsign.is • www.nonnigull.is
F
j
a
r
ð
a
r
p
ó
s
t
u
r
i
n
n
0
7
0
2
–
©
H
ö
n
n
u
n
a
r
h
ú
s
i
ð
e
h
f
.
Eftir yfirlýsingu Sólar í
Straumi um rangfærslur í upp -
lýsingum samtakanna Hagur
Hafnarfjarðar virðast for svars -
menn Alcan hafa endurskoðað
upplýsingar sínar því á mánu -
daginn stóð þetta á heimasíðu
fyrirtækisins:
„Um helmingur allrar inn -
lendrar þjónustu og rekstrarvöru
er keyptur af fyrirtækjum í
Hafnarfirði. Árið 2006 námu
viðskipti álversins við hafnfirska
þjónustuaðila um tveimur
milljörðum króna. Ljóst er að
þessi viðskipti myndu aukast
verulega ef stækkun álversins
yrði að veruleika.
Hafnfirsk fyrirtæki sem
þjónusta álverið eru eins ólík og
þau eru mörg. Sum eru mjög
sérhæfð og hafa beinlínis orðið
til vegna starfsemi Alcan, en
önnur eru almennari og starfa á
stærri markaði.
... Ef allir hafn firskir birgjar
eru taldir með (blómabúðir, ljós -
mynda fram köll un og ýmis legt
fleira tilf allandi) eru þeir líklega
um 50 talsins.“
Á þriðjudaginn stóð hins vegar
á sömu heimasíðu:
„Á árinu 2006 námu viðskipti
Alcan við fyrirtæki í Hafnarfirði
tæpum 2 milljörðum króna.
Hafnfirsk fyrirtæki sem þjónusta
álverið eru eins ólík og þau eru
mörg. Sum eru mjög sérhæfð og
hafa beinlínis orðið til vegna
starfsemi Alcan, en önnur eru
almennari og starfa á stærri
markaði.
... Ef allir hafnfirskir birgjar
eru taldir með (blómabúðir, ljós -
myndaframköllun og ýmis legt
fleira tilfallandi) var heildarfjöldi
þeirra árið 2006 á annað hundrað
talsins, eða nákvæmlega 104
virkir birgjar.
Upplýsingum um fjölda birgja
breytt á heimasíðu Alcan
50 fyrirtæki á mánudegi – 104 fyrirtæki á þriðjudegi
Verslum í Hafnarfirði!
... það er dýrt að fara langt eftir hlutunum!
Það er oft fróðlegt að fylgjast
með umræðunni um hvað má og
hvað má ekki. Sérstaklega á
þetta við þegar um er að ræða
hækkun á kostnaði heimilanna.
Nú þegar við erum að fá inn um
bréfalúguna „Álagningu fast -
eignagjalda 2007“, þá
trúi ég að það séu
marg ir sem sjá hvað
þessi kostnaðarliður
hefur hækkað mikið. Í
það minnsta á það við
hjá okkur í Hafnar -
firði. Fróðlegt væri að
fá að heyra um þró -
unina í fleirri sveitar -
félögum.
Því miður hef ég
ekki haldið því til haga hvað við
höfum þurft að greiða til
bæjarins í formi fast eigna gjalda
árlega í þau 45 ár sem við hjón in
höfum búið á sama stað. En við
skoðun fasteignaseðla síð ustu
ára kom í ljós að þessi kostn -
aðarliður hefur næstum tvö -
faldast á nokkrum árum. Fast -
eignagjöldin sem við þurft um að
greiða fyrir árið 2000 voru kr.
109.243, en í ár er þessi upp hæð
kr. 216.071. Þarna er um að ræða
aukin útgjöld vegna sömu eignar
þar sem ekkert hefur breyst,
aðeins hækkað fast eigna mat.
Þetta gerir tæp 98% hækk un.
Er einhver annar kostnaður
heimilanna með meiri hækkun?
Fasteignagjöld hækka en hiti
og rafmagn lækka..
Í þau rúmu 45 ár sem við
höfum búið hér á sama stað hef
ég haldið til haga upplýsingum
um kostnað, ásamt magni af
olíu/heitu vatni og kw. raf -
magns. Árið 1962,
sem var fyrsta heila ár
okk ar í húsinu, var
kostn aður vegna h + r
rúm 8% af brúttó -
tekjum okkar. Þar af
var olían 85 % og raf -
magnið 15%. Þá var
raf magnsnotkunin í
kwst. aðeins 60% af
því sem var á síðasta
ári.
Á þessu tímabili hef ur
kostnaður h + r verið að lækka
mikið. Þar var hitaveitan mikil
búbót, en þar á móti kemur að
húsnæðið hefur stækkað. Það er
kominn bílskúr og sólstofa,
hvort veggja er með hita og raf -
magni og þar fyrir utan er kom -
inn hiti í innkeyrslunana. Í dag
er þetta 30% stærra húsnæði, en
kostnaðurinn aðeins lítill hluti af
upphaflegu verði.
Ásíðustu árum hafa fast eigna -
gjöldin verið á mikilli siglingu
uppá við eins og meðfylgjandi
samanburður ber með sér. Hér er
samanburður þar sem notaðar
eru rauntölur hvers árs. Þar rokk -
ar h + r aðeins til eftir því
hvern ig aflestur er, sem tekinn er
einu sinni á ári.
Sveitafélögin hafa á undan -
förnum árum verið að kvarta og
kveina vegna þess að Ríkið hafi
hlunnfarið þau með yfirtöku
grunnskólans og því sé það
réttlætanlegt að hækka fast eigna -
gjöldin eins og raunin er. En nú
er nóg komið. Ég tala nú ekki
um fyrir okkur ellilífeyriþega.
Höfundur er formaður félags
eldri borgara í Hafnarfirði.
Hverjir mega hækka álögur á almenning?
Sigurður
Hallgrímsson
Dýfingar
bannaðar
Það liggur í hlutarins eðli að
krakkarnir sem stunda æfingar
hjá Sundfélagi Hafnarfjarðar
þurfa að stinga sér til að ná
góðum árangri. Skiltið á mynd -
inni hér til vinstri verður nokkuð
broslegt þegar horft er til sund -
mannsins sem stingur sér af
stökkpalli við enda laugarinnar.
Sundmenn bíða nú spenntir
eftir nýrri sundlaug sem verður
með tvískiptri flotbrú. Getur
laugin því bæði verið 50 m og 25
m á sama tíma. Slíkt kostaði að
vísu 16 millj. kr. aukalega en var
samþykkt hljóðalaust - næstum.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
m
u
n
d
u
r
A
r
i
A
r
a
s
o
n