Fjarðarpósturinn - 01.03.2007, Side 13
Fjölskylduráð staðfesti ný -
lega nýja gjaldkrá sundstaða í
Hafnarfirði. Athyglisverðasta
breytingin er að nú er greitt
barnagjald til 17 ára aldurs og
lækkar það úr 110 í 100 kr. Að
sögn Almars Grímssonar sem
lagði þessa breytingu til í
fjölskylduráði var þetta gert
m.a. í því augnamiði að hvetja
ung menni innan 18 ára ald urs
og námsmanna til aukinnar
sund iðkunar.
Hins vegar hækka einstök
skipti fullorðinna um heil
36%, verður 300 kr. og gjald í
bað stofu hækkar um 14%. Sex
mánaða kort fullorðinna
hækka hins vegar aðeins um
4% og kosta nú 8.300 og verð
á 6 mánaða fjölskyldukortum
er óbreytt, 13.000 kr.
www.fjardarposturinn.is 13Fimmtudagur 1. mars 2007
Úrvinnslusjóður hefur hrint af
stað kynningarátaki vegna söfn -
unar á ónýtum rafhlöðum til
úrvinnslu. Markmið átaksins er
að fá fleiri til að safna og skila
notuðum rafhlöðum, auka vitund
almennings um mikilvægi þess
að rafhlöðum sé skilað og vekja
athygli á að einfalt sé að losna
við þær. Þátttakendur í átakinu
ásamt Úr vinnslusjóði eru Olís,
Efnamóttakan, Gámaþjónustan
og Hringrás.
Samkvæmt könnun sem Capa -
cent gerði fyrir Úrvinnslusjóð
safna 22% landsmanna raf hlöð -
um til úrvinnslu. Nýleg rafh -
löðu tilskipun Evrópusam bands -
ins sem verður innleidd á Íslandi
innan tíðar kveður á um að
skilahlutfall rafhlaðna skuli vera
komið í 25% á árinu 2012 og
45% árið 2016.
Af þeim 161,5 tonnum raf -
hlaðna sem flutt voru inn til
lands ins á árinu 2005 var aðeins
rúmlega 37 tonnum skilað. Þetta
eru ekki nema 21% af öllum
seld um rafhlöðum hér á landi.
Þetta þýðir að hvorki meira né
minna en rúm 124 tonn af raf -
hlöðum hafa farið beint í ruslið
og því verið urðuð með öðru
sorpi.
Rafhlöður eiga ekki að fara í
ruslið heldur á að skila þeim til
úrvinnslu. Hægt er að skila inn
ónýtum rafhlöðum á bensín -
stöðvum og söfnunarstöðvum
sveitarfélaga um land allt, auk
þess sem hægt er að setja þær í
endurvinnslutunnur fyrir flokkað
heimilissorp. Á vef Úrvinnslu -
sjóðs, www.urvinnslusjodur.is,
er hægt að nálgast upplýsingar
um staðsetningu söfnunarstöðva
á landinu öllu. Þar er einnig að
finna spurningar og svör um
rafhlöður þar sem fróðleiksfúsir
geta aflað sér nánari upplýsinga
um innihald þeirra, flokkun og
áhrif spilliefna á umhverfið.
Sameiginleg táknmynd átaksins
eru teiknimyndafígúrurnar Raffa
og Batti
sem prýða
allt kynn -
ingarefni
þess.
Vilja miklu fleiri
rafhlöður til úrvinnslu
Flutt voru inn 161,5 tonn af rafhlöðum árið 2005
Í Vonarhöfn í safnaðarheimili
Hafnarfjarðarkirkju hittast að
jafnaði um 10 konur annan hvern
mánudag á milli kl. 13.30 og 16.
Ekki þarf að mæta á mínútunni
enda er félagsskapurinn óform -
legur en kalla sig Steinþórurnar.
Þessar konur eiga allar sam eigin -
legt að hafa barist við krabba -
mein og hittast til að gleðjast og
gleyma og eiga tækifæri á að
skipt ast á skoðunum og
vitneskju. Hópurinn myndaðist
árið 2004 þegar þeim var
útvegað húsnæði í Bókasafninu
þar sem þær voru í góðu yfirlæti
en þær höfðu þá flestar verið í
endurhæfingu í Kópavogi við
mjög góðar aðstæður. Einn
iðjuþjálfinn hét Steinþórunn og
er nafnið henni til heiðurs.
Handavinnan á hug þeirra og
hver kemur með sitt og miðlar
þær svo af þekkingu sinni og
dást að verkum hverrar annarrar.
Á mánudaginn dáðust þær
sérstaklega að hönnuninni henn -
ar Birnu sem var búin að gera
alls kyns flíkur úr flókaull. Kon -
urnar koma með meðlæti og
kirkjan býður þeim kaffi og fyrr
en varir er tíminn liðinn. Flestar
starfa þær í Ljósinu einnig en
segja langt að þurfa að fara til
Reykjavíkur og því séu þessar
stundir kærkomnar.
Allir sem hafa farið í gegnum
krabbameinsmeðferð eru vel -
komnir, karlar sem konur.
Steinþórurnar
hittast í Vonarhöfn
Hittast til að gleyma krabbameininu
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Nýr
grunnskóli í
undirbúningi
Að tilhlutan fræðsluráðs
hefur verið settur á laggirnar
vinnu hópur til að undirbúa
næsta grunn skóla í Hafnarfirði
og hefur vinnuhópurinn hafið
störf. Næsti grunnskóli verður
fyrir nem endur á Völlum og
Hamranesi sem er enn í
skipulagsferli. Gert er ráð fyrir
að hefja þurfi starf rækslu nýs
skóla eftir 3-4 ár. Þó að enn sé
eftir að ákveða margt er að
grunnskólanum lýtur eru
nokkur atriði sem unnið er út
frá í skipulagsferlinu. Í fyrsta
lagi er verið að skoða
möguleika á stofnun tón -
listarskóla í tengslum við
grunnskólann. Í öðru lagi er
gert ráð fyrir að þetta verði
þriggja hliðstæðna grunn -
skóla, þ.e. með þremur
bekkjum í árgangi. Samkvæmt
því má ætla að nemendur í
fullbyggðum skóla verði um
700. Í þriðja lagi er að skólinn
verði miðsvæðis í nýju
íbúðarhverfi en líka með góða
tengingu í Hraunvallaskóla.
Þann 7. mars 2007 eru liðin 95
ár frá stofnun Kvenfélagsins
Hringurinn í Hafnarfirði, en
félag ið er eitt elsta
starfandi kvenfélag í
bænum, fjórum árum
yngra en bæjarfélagið
sjálft. Það voru 18 kon -
ur sem höfðu þann
kjark og framsýni, að
stofna Hringinn 7.mars
1912, en neistinn að
stofn un félagsins var
berklaveiki, sem herj -
aði á þeim tíma í Hafn -
arfirði, sem og annars staðar á
landinu. Markvisst starf Hrings ins
varð til þess að berklaveikin varð
fyrr yfirbuguð hér í bænum, en
víða annars staðar.
Á árinu 1931 fékkst leyfi hjá
bæjaryfirvöldum til að nota Ham -
arskotstún undir barna leikvöll.
Þar var byggður skúr, settar upp
tvær rólur, þrír sand kassar og
keypt ar voru 50 skóflur. Barna -
leik völlurinn var svo opnaður 1.
júní 1932, en þetta er fyrsti leik -
völlur í Hafnarfirði, sem hafði
skipulega barnagæslu.
Félagskonur Hringsins, sem eru
um eitt hundrað, hafa í þessi tæp
95 ár starfað ötullega að líknar -
mál um, aflað fjár til ýmissa góð -
gerðamála, bæði innanbæjar sem
og utan. Þannig hafa tól og tæki
verið gefin á St.Jósefspítala, Sól -
vang, Heilsugæslu Hafnarfjarðar,
Hrafnistu, Víðistaðaskóla, Bóka -
safn Hafnarfjarðar, Dagheimil -
anna Hörðuvöllum og Smára -
lundi, einnig á Víðivöllum vegna
þroska heftra, Sambýlið á Kletta -
hrauni 17.
Hringurinn hefur einnig verið
með í söfnunum til tækjakaupa
fyrir Sólvang, St.Jósefsspítala,
Kvensjúkdómadeild
Lsp, Styrktarfélag lam -
aðra og fatlaðra, Gigt -
arfélagið, Blindra -
félag ið, Krabba meins -
félagið, Skátanna og til
margra annarra, sem
of langt yrði upp að að
telja. Í tilefni 95 ár -
anna, ætlar Hringurinn
að fjárfesta í skimunar -
tækja búnaði, til for -
varna gegn magasýkingum og
krabba meini og gefa St.Jósefs -
spítala, og er það mál í farvegi.
Það má segja að Hafnarfjörður
hafi eiginlega aldrei verið án
Hrings ins, þar sem bæjarfélagið
var svo ungt, þegar Hringurinn
var stofnaður.
Í tilefni afmælisins, hafa stjórn
og félagskonur Hringsins ákveðið
að fara í afmælisferð nú í mars, til
Barce lona. Afmælisfagnaður
verð ur haldinn í Fjörugarðinum, á
af mælisdeginum og hefst hann
kl.19. það er okkar von að sem
flestar félagskonur fjölmenni og
taki með sér gesti.
Stjórn Hringsins er skipuð
fimm konum:
Kristín Gunnbjörnsd formaður,
stinag@internet.is,
Sigrún H. Jóhannesd. Gjaldk.
sigrunhj@internet.is,
Ingigerður Sigurðardóttir inga -
sig@hotmail.com,
Karin Gústavsdóttir og Karó -
lína Sif Ísleifsdóttir með stjórn -
endur
Kvenfélagið
Hringurinn 95 ára
Kristín
Gunnbjörnsdóttir
Ódýrara fyrir
börn í sund
Eru líka börn lengur
Fjölmargir lögðu leið sína í
Tónlistarskólann á laugardaginn
þar sem tónlist hljómaði úr
hverju horni. Þá var Tónhvíslin,
hús næði blásaradeildarinnar í
gamla íþróttahúsinu við Lækjar -
skóla var vígt við hátíðlega
athöfn. Um 700 manns heim -
sóttu skólann þennan dag.
Vel heppnaður dagur
tónlistarskólanna
Mikil gróska í starfi Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
Spunasveit Gunnars Ben og á efri myndinni er þjóðlagsveit Ármanns Helgasonar.
L
j
ó
s
m
.
:
H
e
l
g
i
B
r
a
g
a
s
o
n