Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 12.04.2006, Qupperneq 2

Fjarðarpósturinn - 12.04.2006, Qupperneq 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 12. apríl 2006 Víðistaðakirkja Fermingarguðsþjónusta skírdag kl. 10:30 Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Úlriks Ólasonar. Einsöngur: Sigurður Skagfjörð Trompet: Eiríkur Örn Pálsson Guðsþjónusta föstudaginn langa kl. 11:00 Kirkjukór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Úlriks Ólasonar Hátíðarguðsþjónusta páskadagsmorgunn kl. 8:00 Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Úlriks Ólasonar. Einsöngur: Sigurður Skagfjörð Boðið verður upp á heitt súkkulaði og meðlæti í safnaðarheimilinu að messu lokinni. BLÓMA- og SKÁTAMESSA á sumardaginn fyrsta kl. 12:30 Prestur: Bragi J. Ingibergsson Prédikun: Guðni Gíslason Einsöngur: Sigurður Skagfjörð Organisti: Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir www.vidistadakirkja.is Allir velkomnir Sóknarprestur Útgefandi: Keilir ehf. Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is Auglýsingar: Jakob Guðnason, 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193 www.fjardarposturinn.is Í síðustu viku ber hæst líflegt skipulagsþing. Ekki vegna þess að þarna hafi árangur af „samráði við íbúana“ verið að blómstra í sinni bestu mynd, heldur var þetta afrakstur af ótrúlegum klaufaskap svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Grassandi óánægja vilyrðishafa á Völlum 3 og skyldi engan undra því þeim var kynnt allt annað skipulag en nú er auglýst, og þá á fölskum forsendum. Undirrót þessarar óánægju má með sanni segja vera skort á upplýsingaflæði til bæjarbúa! Var ekki samráð eitt af kosningaloforðunum í síðustu kosningum? Einn af hornsteinum lýðræðisþjóðfélags er greið leið upplýsinga til íbúanna. Fundargerðir hinna ýmsu nefnda og ráða bæjarins ættu að vera einn þáttur að því markmiði en því miður er það ekki svo. Ég lofaði hér í þessu blaði fyrir all löngu að minnast ekki á lélegar fundargerðir hjá Hafnarfjarðarbæ fyrr en ég sæi að bót yrði á. Ég hef gefist upp á biðinni. Nú er kominn tími til að Hafnarfjarðarbær setji skýrar línur um ritun fundargerða og þá þarf að hafa að leiðarljósi af hverju fundargerðir eru skrifaðar og fyrir hverja. Við lestur fundargerða verða lesendur oft einskis nær um það sem fram fór á viðkomandi fundi. Dýrir embættismenn eru notaðir til að rita fundargerðir bæjarstjórnar sem að mestu byggist á að segja hverjir tóku til máls en ekki um hvað. Fundargerðir um endurskoðun tillagna að deiliskipulags á Áslandi 3 eru gott dæmi um arfaslaka fundarritun. Þar gat ekki nokkrum manni dottið í huga að verið væri að stækka skipulags- svæðið, fjölga húsum og hækka. Ekkert af þessu gat heyrt undir lagfæringar á gatnakerfi eins og stóð í fundargerðum. Þegar svo gerðar eru athugasemdir við að bæjarstjórn taki ákvarðanir á grundvelli slíkra fundargerða er bent á að bæjarfulltrúar hafi fengið ítarlegri gögn! Af hverju fylgdu þau þá ekki fundargerðinni. Nei, nú er mál að linni. Lærið að skrifa vandaðar fundargerðir! Nú er framundan ein helgasta hátíð kristinna manna, páskarnir. Þó svo sé leggja landsmenn minni áherslu á hana en jólin. Föstudagurinn langi er þó í hugum margra sá dagur sem menn virða hvað mest. Vitneskjan um það að Kristur var krossfestur þann dag og tók á sig allar syndir mannanna er þess valdandi að menn virða þennan dag þó margir vilji helst sleppa honum sem helgidegi. Kannski veitir okkur ekki af alheilögum dögum þar sem við erum skikkuð til að taka okkur algjört frí og kannski fara í kirkju ef það er ekki til of mikils mælst. Ég óska þér, lesandi góður, gleðilegrar páskahátíðar og hvet þig til að taka þátt í helgihaldi páskanna í kirkjum bæjarins. Guðni Gíslason Sýningar í Bæjarbíói Á laugardaginn kl. 16 sýnir Kvik- myndasafn Íslands Sommaren med Monika frá árinu 1953 í leikstjórn Ingmar Bergman. Hún fjallar á afar óvenjulegan hátt um ástarsamband unglinganna Harry sem er 19 ára og Moniku 17 ára. Það er allt á móti þeim. Harry þolir ekki vinnuna, rífst við yfirmanninn og er rekinn. Monika rífst við pabba sinn og hleypur að heiman. Harry hefur lítinn bát til umráða og þau ákveða að sigla inn í skerjagarðinn og búa í bátnum í nokkrar vikur. Þriðjudaginn 18. apríl kl. 20 verður sýnd mynd Vilgot Sjöman Älskerinnan frá árinu 1962. Vilgot Sjöman gerði fjölda mynda á ferli sínum þó fæstar hafi þeirra hafi ratað til Íslands. Älskerinnan er fyrsta mynd hans í fullri lengd og studdi Bergman hann nokkuð við hana og ber myndin þess nokkur merki. Bibi Andersson leikur unga konu og myndir fjallar um ástarþríhyrning, konuna og samband hennar við ungan kærasta og eldri elskhuga. Með hlutverk unga mannsins fer Per Myrberg en elsk- huginn er leikinn af Birger Lensandre. Galakvöld Óperukórsins í Gullhömrum Galakvöld Óperukórs Hafnarfjarðar verður haldið síðasta vetrardag í Gull- hömrum Grafarholti. Veislustjóri er Örn Árnason leikari en heiðursgestir verða Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og frú. Tónlistardag- skrá verður fjölbreytt. Má þar nefna Elínu Ósk, Jóhann Friðgeir, Peter Máté, Örn Árnason og fl. Dansarar úr Dans- íþróttafélagi Hafnarfjarðar sýna dans og Salonhljómsveit Sigurðar Snorrasonar leikur undir söng og dansi. Sam- kvæmisklæðnaður áskilinn. Forsala miða er í Bókasafni Hafnarfjarðar og víðar en nánari upplýsingar eru á www.operukor.is Hraunseli, Flatahrauni 3 og hefst kl. 20.30 Félagsmiðstöðin Hraunsel • 555 0142, 555 6142 Munið vef félagsins: www.febh.is Hið vinsæla Capri-tríó leikur fyrir dansi. Hver vill missa af þessum dansleik? Dansleikur eldri borgara síðasta vetrardag, 19. apríl Fróðleikur: Skírdagur Skírdagur er fimmtudaginn fyrir páska. Þá er minnst heilagr- ar kvöldmáltíðar og þess að Kristur þvoði fætur lærisveina sinna. Þennan dag var altari þvegið og olía vígð í katólskum sið, og varð hann fljótt aflausnar- dagur syndara. Að slíkri hreinsun lýtur skírdagsheitið, sem til er í elstu norrænum textum og á sér hliðstæðu í gamalli ensku. Á skírdag eða kvöldið áður var klukkum hringt til messu á ka- tólskum tíma í síðasta sinn fram að páskum, og ljós deyfð í kirkj- um. Eftir siðaskipti hefur loðað við að halda til skírdagsins sem föstuloka í mat, og eru heimildir frá 18. og 19. öld um sérstakan grjónagraut þann dag, skírdags- graut. Páskar Páskadagur er fyrsta sunnudag eftir fullt tungl að loknum vor- jafndægrum, þó ekki fyrr en 22. mars og ekki síðar en 25. apríl. Aðrar hræranlegar kirkjuhátíðir miðast allar við páska. Páska héldu Gyðingar í fyrndinni til að fagna sauðburði og fyrstu korn- uppskeru, en síðar tengdust páskarnir flóttanum frá Egypta- landi. Páskarnir eru aðalhátíð kristinnar kirkju og er þá minnst upprisu Krists frá dauðum. Páska-heitið er komið í nor- rænu um lágþýsku úr fornensku en er hebreskt að uppruna. Fjór- heilagt var á katólskum páskum hérlendis en við siðaskipti fækk- aði páskadögum í þrjá og enn í tvo árið 1770. Til eru frá katólsk- um sið heimildir um skrúð- göngur við páskamessu og um kveiking og vígslu elds í kirkj- unni, hvorttveggja vel þekkt ytra. Til eldkveikingar voru notuð safngler og sennilega líka „slíkisteinar“ sem taldir eru í máldögum kirkna. Gamlir ís- lenskir siðir tengdir páskum eru fáir að undanskildu páskakjöti og páskagraut eftir föstuna. Ekki er mikið um þjóðtrú tengda pásk- um. Þó þykir gott að leita óskasteins á páskamorgun, og þá sofa tröll og óargadýr. Til eru íslenskar frásagnir af sólardansi á páskamorgun, allar frá 19. öld. Kann sá átrúnaður að skýrast af hillingum á köldum sólar- morgnum. Páskaegg þekkjast ekki hér fyrr en á öðrum áratug 20. aldar. Sá siður sprettur af því að leiguliðar í Mið-Evrópu guldu á miðöldum egg í skatt fyrir páska. Dreifðu landeigendur hluta hans meðal fátækra, svo að páskar urðu mikil eggjahátíð. Síðar voru eggin myndskreytt, oft með guðsorði, og enn síðar framleidd sælgætisegg af ýmsu tagi. Með þeim voru send ýmis skilaboð og ekki öll guðrækileg, hérlendis einkum málshættir. Páskarnir voru aldrei vorhátíð á Íslandi eins og sunnar í Evrópu. Til þess eru þeir of snemma á ferð. Sumardagurinn fyrsti er hin eiginlega íslenska vorhátíð. Heimild: Saga daganna eftir Árna Björnsson, 1996

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.