Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 12.04.2006, Side 3

Fjarðarpósturinn - 12.04.2006, Side 3
www.fjardarposturinn.is 3Fimmtudagur 12. apríl 2006 Föstudaginn langa 14. apríl Guðsþjónusta kl. 14 Prestur: Sr. Þórhallur Heimisson. Organisti og píanóleikari: Antonía Hevesi. Gréta Jónsdóttir og Hrönn Hafliðadóttir, mezzosópranar syngja tvísöng. Páskadag 16. apríl Árdegis- og hátíðarguðsþjónusta kl. 08. Ath. tímann Prestur: Sr. Gunnþór Þ. Ingason. Guðrún Árný Karlsdóttir syngur einsöng og leikur undir á flygil. Kór Hafnarfjarðarkirkju leiðir safnaðarsöng. Páskamorgunverður eftir guðsþjónustuna í Hásölum Strandbergs. Annan dag páska Opin kirkja. Kl. 11-12 Kveikt á bænakertum www.hafnarf jardark i rkja. is Opið fyrir matar- gesti alla páskana. Sumardagurinn fyrsti: Fiskisúpa Fjörugarðsins með blönduðu sjávarfangi framreidd í brauðkollu á 950 kr. Opið hús frá kl. 12 -17 sími 565 1213 Barna- og unglingaföt Úrval af vönduðum og ódýrum barna- og unglingafötum. Föt & Skart Öldugötu 17 Opið kl. 11-18 sími 868 0418 Vinsamlegast hringið á undan www.fjorukrain.is Ástjarnarsókn í samkomusal Hauka, Ásvöllum Guðsþjónusta páskadag kl. 11 Fríkirkjan Föstudaginn langa: Kvöldvaka við krossinn kl. 20 Flutt verður dagskrá í tali og tónum sem tengist atburðum föstudagsins langa Páskadag: Hátíðarguðsþjónusta kl. 08 árd. Glæsilegur morgunverður í safnaðarheimilinu að lokinni guðsþjónustu. Tónlistarstjóri er Örn Arnarson www.frikirkja.is Föstudagurinn langi Föstudagurinn langi eða langa- frjádagur er föstudagurinn fyrir páska. Þá er minnst pínu Krists á krossinum. Norræna heitið virð- ist upphaflega komið úr forn- ensku, en myndir þess tvær eru nokkuð jafngamlar í norrænu og voru notaðar hérlendis jöfnum höndum fram á 19. öld þegar „föstudagurinn langi“ verður nær einráður. Dagurinn var mesti sorgardagur ársins, með strangri föstu í katólskum sið. Ýmsar heimildir geta um að börn og jafnvel vinnuhjú hafi verið hýdd þennan dag til afbötunar drýgð- um syndum. Má jafnvel telja staðfest að þetta hafi sumstaðar verið tíðkað á 18. og 19. öld. Kynni í slíkri venju að eima eftir af yfirbótahýðingum úr katólsku. Sú þjóðtrú var meðal annars á föstudeginum langa að hann hentaði vel til að verða sér úti um hulinhjálmstein eða sögustein. Á föstudaginn langa skal draga fána í hálfa stöng. Heimild: Saga daganna eftir Árna Björnsson, 1996 Naglarnir burt eftir 15. apríl Á laugardaginn, 15. apríl eiga allir bifreiðaeigendur að vera búnir skipta nagladekkjum út fyrir sumardekk. Í seinasta Fjarðarpósti skrifa maður að nafni Guðmundur Jónsson sem er stuðningsmaður Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Þar leggur hann út af grein Eddu Björgvinsdóttur sem skrifuð var í Morgun- blaðið í seinasta mán- uði. Þó svo að ég í ein- feldni minni átti mig ekki alveg á öllu því sem Guðmundur er að fara er rétt að fara yfir nokkur atriði. Framsóknarflokkurinn = sjálfstæðismenn Í greininni er eitthvað um yfir- borðskenndar, og einkennilegar fullyrðingar sem dæma sig alveg sjálfar. Til dæmis má tiltaka gamalkunnugt jarm sem Guð- mundur Jónsson, ásamt Valgerði álráðherra Sverrisdóttir eru sjálf- sagt ein um, en það er þessi skondna hugmynd að pólitískar hreyfingar séu sérstaklega að óska eftir því að hreindýramosi og hundasúrur séu ræktuð í ein- hverjum undarlegum tilgangi. Við Hafnfirðingar vitum svo sem betur en margir að það er reyndar ýmislegt fleira misgott sem framsóknarmenn eiga sameigin- legt með framsóknarmönnum. Við kjósum um hægri og vinstri Af því málefnalega sem eftir stendur í greininni stendur eitt upp úr. Það er hin klassíska sýn að kjósendur séu annað hvort að kjósa um hægri eða vinstri stjórn. Guðmundur bendir á að vinstri stjórnin muni aldrei koma stækkun álvers í gegn. Þetta er auðvitað hárrétt hjá Guðmundi. Svo framarlega sem aðild að þessari stjórn eigi vinstri græn. Þó ekki væri nema andstaðan við það að Hafnar- fjörður, bærinn okkar og annað stærsta sveitarfélag landsins, verði í þvílíkum helj- argreipum erlends stórfyrirtækis, að meginþorri tekna bæjarins komi frá einu fyrirtæki sem með geðþótta- ákvörðun sinni geti ákveðið að leggja niður hundruð starfa hér í Hafnarfirði. Þetta gildir burtséð frá því hvort við viljum sjá stóriðju hér í bænum eða ekki! Hitt er annað mál að það er deginum ljósara að Sjálfstæðis- flokkurinn styður stækkun ál- vers. Það er hins vegar engan veginn ljóst hvaða afstöðu Sam- fylkingin hefur til málsins. Þeir sem hafna stækkun álvers kjósa vinstri græna Ég vil svo gjarna fá að vita hvaða afstöðu núverandi meiri- hluti hefur í málinu. Það má svo sem merkja af lóðasölunni undir álverið og af langtímafjárhags- áætlun bæjarins sem er undir- rituð af bæjarstjóra að Samfylk- ingin tekur stækkun álversins fagnandi. Því hefur ekki verið neitað. Þeir sem hafna stækkun álvers kjósa því vinstri græna. Þeir sem hafna stækkun álvers kjósa vinstri græn Gestur Svavarsson Soðin egg merkt X-D verða falin í Hellisgerði á laugar- daginn og börnum boðið að fara um garðinn í einskonar ratleik til að finna þau. Þeir sem finna egg, fá í skiptum páskaegg frá Góu. Að sögn sjálfstæðismanna er fyrirmynd að leiknum sótt til sjálfstæðisfólks í Reykjavík þar sem leikurinn hefur þótt takast vel og liður í að gefa fjölskyld- um tækifæri á að vera saman í skemmtilegum leik. Leikurinn hefst í Hellisgerði kl. 13 og stendur yfir í allt að tvo tíma. Páskaeggjaleit í Hellisgerði Sjálfstæðisflokkurinn efnir til páskaeggjaleitar fyrir börn á laugardaginn fyrir páska Krafist er dugnaðar, árverkni, stundvísi og samviskusemi. Lágmarksaldur 18 ár eða fædd 1988 eða fyrr. Viljum ráða bæði stráka og stelpur. Vinsamlega sendið allar nauðsynlegar upplýsingar, s.s. nafn, kennitölu, heimilisfang, skóla, fyrri störf og nafn og símanúmer meðmælanda á gasfelagid@simnet.is eða Gasfélagið ehf, Straumsvík, 220 Hafnarfjörður Gasfélagið ehf., Straumsvík vantar sumarstarfsfólk sem fyrst

x

Fjarðarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.