Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 12.04.2006, Page 15

Fjarðarpósturinn - 12.04.2006, Page 15
Fimmtudagur 12. apríl 2006 H3 Hamar: Af hverju þessi mikli áhugi á skólamálum? María: Það er erfitt að hafa ekki áhuga á menntun enda er menntun ævilöng vegferð. Foreldrar hafa almennt mikinn áhuga á menntun barna sinna og áhuginn hefur aukist eftir því sem skólinn hefur orðið stærri hluti af lífi barnanna. Áhugi minn á skólamálum vaknaði fyrir alvöru þegar dóttir mín byrj- aði í skóla í Bandaríkjunum. Þar voru foreldrar mjög virkir þátttakendur í skóla- starfinu. Við aðstoðuðum kennara í þemavinnu, kynnt- um störf okkar og skipu- lögðum fjáraflanir og fjöl- skylduskemmtanir í sam- starfi við kennarana í skólan- um. Ýmis félagastarfsemi, s.s. skátastarf, er einnig rekin í beinum tengslum við skólana og nemendur stunda tón- listarnám á skólatíma. Þessi reynsla vakti áhuga minn á að verða virkur þátttakandi í skólastarfi dóttur minnar. Hamar: Þú talar oft um að horfa heildstætt á málefni barna. Hvernig tengist það skólamálum? María: Ég trúi því að ef við ætlum að gefa öllum börnum kost á bestu mögulegu skil- yrðum til vaxtar og þroska þurfum við að setja börnin sjálf í brennidepil þegar við ræðum um skólamál. Ég vil búa í samfélagi sem lítur á réttindi og möguleika barna allt frá fæðingu og horfir heildstætt á málefni þeirra, hvort sem um er að ræða skólamál, fjölskyldumál eða félagsmál. Samfélagið okkar þarf að gefa fólki tækifæri til að fara eigin leiðir og hafa þannig áhrif á sitt nánasta umhverfi, eins og t.d. aðstöðu barna, og frjálst val um skóla. Hamar: Hvernig eru skólar í Hafnarfirði? María: Það eru margir góðir skólar í Hafnarfirði og mikið af frábæru fagfólki sem vinn- ur með börnunum okkar hvern dag. Þetta skiptir for- eldra máli því þeir þurfa að vera öryggir um börnin sín á meðan þeir stunda vinnu. Þrátt fyrir góða aðstöðu og gott starfsfólk skortir hins vegar enn raunverulega val- kosti um nám. Til að auka valkosti þurfa að fara saman stefna og vilji bæjaryfirvalda til framkvæmda. Mér finnst hægt hafa miðast í þessa áttina hér í Hafnarfirði á þessu kjörtímabili. Samfylk- ingin tók sér tæp þrjú ár í að móta skólastefnu sem er ítar- leg og tiltekur áherslur nánar en lög og námsskrár marka. Slíkar stefnur þrengja svig- rúm skóla til skólaþróunar. Hamar: Hver er fram- tíðarsýn ykkar Sjálfstæðismanna í skólamálum í Hafnar- firði? María: Sjálfstæðisflokkur- inn hefur ávallt sett menntun á oddinn og skilur vel að það er hverri þjóð nauðsyn að eiga öflugt og gott mennta- kerfi. Markmið okkar er að hafnfirskir skólar séu ávallt í hópi þeirra bestu. Við teljum auðvelt að ná fram þeim markmiðum með þá aðstöðu og starfsfólk sem er til staðar. Okkar sýn er skýr. Stjórn- málamenn eiga ekki að stýra skólastarfi, þeir eiga fyrst og fremst að skapa stjórnendum og starfsfólki aðstæður, svig- rúm og skilning til að vinna starf sitt. Skólaþróun verður til í grasrótinni - ekki á borð- um pólitíkusa. Með þetta hugarfar að leiðarljósi veitum við skólunum raunveruleg tækifæri til að þróast í takt við nýjar þarfir barna og fjöl- skyldna í Hafnarfirði. Hamar: Þið leggið áherslu á aukið sjálf- stæði skóla og viljið setja skólastjórnir fyrir hvern skóla? Hvað þýðir þetta? María: Sjálfstæðisflokkur- inn ætlar að gera Hafnarfjörð að leiðandi bæ í skólamálum í landinu. Til þess að svo geti orðið þurfa stjórnvöld að veita skólunum viðeigandi stuðning og hvatningu. Einn þáttur í því er að veita skól- unum rekstrarlegt og faglegt sjálfstæði og auka stjórnunar- rétt og ábyrgð stjórnenda,. Með slíku fyrirkomulagi auk- ast möguleikar til að umbuna framsæknum og þjónustu- miðuðum skólum og kenn- urum. Mér finnst eðlilegt að árangur kennara verði met- inn ekki síður en nemenda. Skólastjórnir eru líka eðlilegt næsta skref í átt að auknu sjálfstæði og aukinni vald- dreifingu innan skólanna. Með þátttöku hagsmuna- aðila eins og foreldra í skólastjórnum fær- um við starf- semina nær neytendum þjónustunn- ar. Þessi hugsun að færa neyt- andann nær ákvarðanatöku er mjög stórt skref frá skipu- lagshyggju í átt að auknu íbúalýðræði. Hamar: Hvað þýðir að fé fylgi hverju barni? María: Hverfaskipting skóla var afnumin í tíð meiri- hluta Sjálfstæðisflokks en fáir foreldrar vita af því vegna þess að núverandi meirihluti hefur lítið lagt sig fram um að kynna þetta val. Val um skóla er mikilvægur liður í að tryggja að barn fái þjónustu sem hæfir getu þess og hæfi- leikum. Opinbert fé til menntunar á að fylgja nem- endum til þeirra skóla sem þeir velja sér, án tilllits til eignarhalds eða rekstrar- forms. Við viljum tryggja hverju barni jafnt framlag hvort sem það sækir skóla í sínu hverfi eða öðru, eða jafnvel í sjálfstæðum skóla. Slíkt fyrirkomulag skapar ákveðna neytenda- og sam- keppnishugsun í skóla- kerfið og gerir árangur skóla sýnilegan og metinn. Skólar keppast um að laða til sín n e m e n d u r og hafa því a u k i n n hvata til þess að skapa sér s é r s t ö ð u eða skara framúr á einhverjum sviðum. Ávinningsins njóta nem- endurnir. Hamar: Nú er mikið rætt um samfellu á milli skólastiga. Er hægt að koma því við? María: Sveigjanleg skil skólastiga er mjög spennandi verkefni. Hafnarfjörður á að taka frumkvæði í að efla sam- fellu og samstarf á milli skólastiga með nemandann í forgrunni. Börn sem hafa til þess getu eiga að fá tækifæri til að byrja fyrr í grunnskóla. Börn sem ná góðum árangri eiga líka að hafa tækifæri til að fara hraðar í gegnum grunnskólann og jafnvel taka áfanga í framhaldsskóla þrátt fyrir að vera enn á grunn- skólaaldri. Fyrir þessa áfanga á bæjarfélagið að greiða svo að tryggt sé að allir nem- endur hafi jafnan aðgang. Sama svigrúm þarf að vera fyrir hendi fyrir börn sem hafa meiri áhuga á list- og verkgreinum. María Kristín Gylfadóttir stjórnmálafræðingur er nýtt andlit á framboðslista Sjálfstæðisflokksins. Hún byrjaði að taka þátt í bæjarmálunum þegar hún flutti aftur til Hafnarfjarðar árið 2000 eftir 8 ára námsdvöl í Bandaríkjunum. María vakti verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína sem formaður Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra, í 8 vikna verkfalli kennara fyrir rúmu ári síðan. Hún hefur lengi verið virk í foreldrastarfi, starfar fyrir evrópska áætlun um starfsmenntun og á sæti í fjölmörgum nefndum hérlendis og erlendis um menntamál. Nýverið var hún skipuð í nefnd menntamálaráðherra um endurskoðun grunnskólalaga. Frumkvæði í menntamálum ER-hús ehf. Reynir Einarsson, húsasmíðam. Erlendur G. Gunnarsson, húsasm.m. Símar 893 6346, 861 8100 Endurskoðun Gísla Torfasonar Fjarðargötu 11 sími 555 1523

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.