Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 12.04.2006, Síða 17

Fjarðarpósturinn - 12.04.2006, Síða 17
Fimmtudagur 12. apríl 2006 H5 Fasteignagjöldin hækkað mest í Hafnarfirði En snúum okkur að grein Gunnars, þar nefnir hann að samanburður sé mikilvægur og er ég honum alveg hjart- anlega sammála í þeim efn- um en það er ekki sama hvernig samanburður er framreiddur fyrir lesendur. Það virðist sem Gunnar sé vísvitandi að blekkja lesend- ur með framsetningu töflu um samanburð á tekjum af fasteignasköttum á íbúa. Þessi samanburður segir ekki til um hver raunhækkun hefur orðið á fasteignaskatti í Hafnarfirði. Ég er þess full- viss að íbúðareigendur í Hafnarfirði hafa fundið fyrir verulega meiri hækkun en 7% eins og Gunnar og félagar hans í Samfylkingunni eru að fullyrða. Það var ASÍ sem framkvæmdi þennan saman- burð á fasteignagjöldum á íbúðarhúsnæði áranna 2003- 2006 en þar kemur fram m.a. að fasteignamat hefur hækk- að minnst í Hafnarfirði og Akureyri sem ætti að leiða til lægri fasteignagjalda í krón- um talið. Þessi samanburður tekur til allra stóru sveitar- félaganna á suðvesturhorni landsins auk Akureyrar. Þar kemur fram að fasteignagjöld á sérbýli og fjölbýli eru tölu- vert hærri í Hafnarfirði en í flestum nágrannasveitarfé- lögum okkar en fasteignagjöld af fjölbýli (90m² íbúð) hafa hækk- að um 38% og af sérbýli um 44% (170m² íbúð) frá árinu 2003. En á stærri eignum hefur fasteignaskatturinn hækkað allt að 60%. En það sem skiptir mestu máli fyrir okkur sem þurfum að greiða þessi gjöld þá hafa fasteignagjöld hækkað mest í Hafnarfirði ef talið er í krón- um og aurum eins og með- fylgjandi myndir sýna. Leyna óþægilegum staðreyndum Hafnfirðingar ættu að kynna sér skýrslu ASÍ (asi.is) þar sem sést hvernig bæjar- fulltrúar Samfylkingarinnar reyna að blekkja kjósendur í Hafnarfirði með samanburði sem þeim hentar. Við Sjálf- stæðismenn í Hafnarfirði ásamt öllum bæjarbúum ger- um þá kröfu til frambjóðenda Samfylkingarinnar að þeir fjalli um fjármál bæjarinns á ábyrgan og faglegan hátt sem er þó að skiljanlegum ástæð- um erfitt fyrir þá þar sem margar óþægilegar stað- reyndir sem fulltrúar Sam- fylkingarinnar hafa reynt að leyna, koma þá fram í dags- ljósið eins og t.d. fasteigna- gjöldin eru. Í komandi sveitarstjórnar- kosningum hafa Hafnfirðing- ar skýran valkost, en hann er Sjálfstæðisflokkurinn sem hefur og mun áfram reka ábyrga fjármálastefnu og hefur það á stefnu skrá sinni að lækka fasteignaskatta í Hafnarfirði til jafns við ná- grannasveitarfélögin. Haraldur Ólafsson Í Fjarðarpóstinum þann 30. mars sl. skrifar Gunnar Svarsson, bæjarfulltrúi og forseti bæjar- stjórnar undir fyrirsögninni „ábyrga fjármála- umræðu“. Það er ljóst samkvæmt þessari grein að hvorki Gunnar Svavarsson né Samfylkingin í Hafnarfirði ætla að ræða um fjármál Hafnarfjarð- ar af ábyrgð. Heldur á núna að fara í skotgryfjurn- ar og reyna að kasta rýrð á þekkingu frambjóð- enda Sjálfstæðisflokksins í fjármálum sveitarfélag- anna, með því að eins og segir í umræddri grein „..að þekkingu og reynslu skorti vegna þess að að viðkomandi siti ekki í bæjarráði sveitarfélagsins“. En það sem skiptir mestu máli fyrir okkur sem þurfum að greiða þessi gjöld þá hafa fasteignagjöld hækkað mest hér í Hafnarfirði ef talið er í krónum og aurum ... Fasteignagjöld í fjölbýli 2003-2006 Fasteignagjöld í sérbýli 2003-2006 Skýrsla ASÍ staðfestir að álagningaprósenta fasteignagjalda er hæst í Hafnarfirði samanborið við nágrannasveitarfélögin að Seltjarnanesi (þar er ekki innheimt holræsagjald) og Reykjanesbæ undanteknum. Ábyrg fjármálaumræða - Samfylkingin vísvitandi að blekkja kjósendur

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.