Fjarðarpósturinn - 12.04.2006, Side 18
Fimmtudagur 12. apríl 2006H6
Skuldirnar hækka!
Heildar skuldbindingar
bæjarfélagsins HÆKKUÐU
á síðasta ári, í besta árferði Ís-
landssögunnar, fóru úr 15,2
milljörðum í 15,5. Forseti bæj-
arstjórnar ritar undarlega
grein í Víkurfréttir 30. mars
s.l. þar sem hann birtir línurit
með fyrirsögninni „Skuldir
pr.“ Af línuritinu má ráða að
skuldir bæjarfélagsins á
hvern íbúa séu rétt um
300.000 kr og hafi lækkað úr
426.000 kr.á síðasta ári. Hér er
væntanlega átt við langtíma-
skuldir bæjarins, undirritað-
ur fór hins vegar í reikninga
bæjarsjóðs og fann þar að
skuldir á íbúa eru 372.000 kr.
og að heildarskuldbindingar
bæjarfélagsins eru 682.000 kr
á íbúa við síðustu áramót í
stað 690.000 kr. áramótin á
undan. Þrátt fyrir íbúafjölgun
og þrettán prósent hækkun
skatttekna milli ára þá lækka
skuldir á íbúa aðeins um eitt
einasta prósent.
Fyrirfram innheimt
lóðagjöld bæta
stöðuna
Í reikningunum kemur
fram að skammtímaskuldir
vegna gatnagerðar hækkuðu
um 1,4 milljarða á árinu, eng-
ir veltufjármunir standa á
móti þessu. Það er því ljóst að
taka þarf langtímalán upp á
minnst 1,5 milljarða til að
klára gatnagerð upp á sam-
tals 2,1 milljarð sem fært er
sem skammtímaskuld í
reikningum. Það hefur ekki
farið fram hjá neinum að
gengi krónunnar hefur sigið
mikið síðustu vikur, það þýð-
ir að erlendar skuldir bæjar-
ins hækka í krónum talið. Í
byrjun árs skuldaði bæjar-
félagið 5,5 milljarða í erlend-
um lánum frá þeim tíma hef-
ur gengi krónunnar lækkað
um 18% sem þýðir að erlend-
ar skuldir hafa hækkað um
einn milljarð.
Langtímaskuldir
enn hærri
Af þessu sést, þegar öll kurl
koma til grafar, að langtíma-
skuldir bæjarins eru raun-
verulega 2,5 milljörðum
hærri en fram kom í reikn-
ingum hinn 31. desember s.l.
Það eru rúmlega 110.000
krónur á hvern íbúa bæjarins.
Þær þrjúhundruð þúsund
krónur sem forseti bæjar-
stjórnar slær fram eru því
fjarri öllu lagi og nær væri að
tala um tæpar fimm hundruð
þúsundir sem hina raun-
verulegu skuld hvers íbúa.
Lakur árangur í
frábæru árferði
Af þessum fáu dæmum sést
að árangur fráfarandi meiri-
hluta í fjármálum er eins og
við er að búast óviðunandi.
Hei ldarskuldbindingar
hækka, langtímaskuldir eru í
raun hækkandi og miklu
hærri en annar oddvita meiri-
hlutans heldur fram. Það er
því enn einu sinni ljóst að
vinstrimenn hafa ekki staðið
sig í rekstri bæjarins. Enn
einu sinni mun þurfa að taka
til hendinni og bæta fyrir lé-
lega frammistöðu vinstri-
manna.
Sjálfstæðisflokkinn
til forystu
Sjálfstæðisflokkurinn er
sem fyrr tilbúinn til góðra
verka og við frambjóðendur
flokksins heitum því að gera
okkar besta nú sem ávallt
fyrr. Ég heiti á Hafnfirðinga
að styðja Sjálfstæðisflokkinn
til forystu svo ná megi tökum
á rekstri bæjarins okkur
öllum til heilla. Styrk fjármál
eru grundvöllur þess að
koma Hafnarfirði í fremstu
röð!
Oddvitar vinstrimanna í meirihluta bæjarstjórnar
hafa á síðustu vikum verið ákaflega ánægðir með
eigin frammistöðu við fjármálastjórn bæjarins.
Það er rétt að miðað við fyrri tilraunir vinstri-
manna til stjórnunar bæjarins er árangurinn
góður. En ef rýnt er í tölurnar og tekið tillit til
breyttra færslna í bókhaldi og annarra aðstæðna
þá kemur í ljós að niðurstaðan er slök í saman-
burði við Kópavog og önnur sveitarfélög sem mest
líkjast Hafnarfirði. Langtímaskuldir, í dag, eru
einnig hærri en fram kemur í ársreikningum.
Frábær árangur eða
frábært árferði?
- vinstri menn ekki staðið sig í rekstrinum
Af þessu sést, þegar öll kurl
koma til grafar, að
langtímaskuldir bæjarins eru
raunverulega 2,5 milljörðum
hærri en fram kom í
reikningum hinn
31. desember s.l. Það eru
rúmlega 110.000 krónur á
hvern íbúa bæjarins
Skarphéðinn Orri Björnsson