Fjarðarpósturinn - 12.04.2006, Qupperneq 22
22 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 12. apríl 2006
Óska eftir herbergi á leigu, helst
miðsvæðis í Hafnarfirði,
skilvísum greiðslum heitið.
Uppl í síma 849-4423 Róbert
S.O.S. Fjögurra manna fjölskyldu
vantar íbúð á leigu í Hafnarfirði
sem fyrst. Öruggum greiðslum og
góðri umgengni heitið. Upplýsingar
gefur Halldóra í síma 695 9906.
Óskum eftir bæði 4ra og 3ja herb.
íbúð á Völlum frá 1. júlí nk.
Leigutími ca. 18-24 mán. Erum
reyklaus og reglusöm. Öruggar
greiðslur. Uppl. í s. 692 4106.
Sænskur reglusamur
rafmagnstæknifræðingur, sem
vinnur hjá Ístak, óskar eftir að
leigja 1-3ja herb. í búð í Hafnarfirði
sem fyrst. Upplýsingar í s. 616 8994
Anders eða 897 0175 Lovísa.
Óska eftir að komast í samband
við konu sem vill taka að sér
ræstingar í heimahúsi.
Uppl. í s. 867 7185.
Ljós grár og hvítur norskur
skógarköttur hvarf að heiman
(Tjarnarbraut), um mán.mót. Hann
er mjög loðinn með stórt og mikið
skott. Ef einhver hefur orðið hennar
var, vinsaml. hringið í s. 862 0021
eða 555 0021.
Tara er týnd!!! „Ég er hvítgrá
(shaded silver)persnesk, mjög loðin
læða sem týndist af heimili mínu
Blikaási 9 í Hafnarfirði þann 8. apríl
sl.“ Tara er ólarlaus en er eyrnamerkt
(R3HO44). Þeir sem hafa orðið varir
við hana eru vins. beðnir um að hafa
samb. við Elísabetu í s. 863 6679.
Þú getur sent
Tapað - fundið
Þrif
Húsnæði óskast
Breiðband - Loftnet
Gervihnattaþjónusta og sala
Rafeindavirkjar.
Loftnet IJ ehf.
Sími 696 1991.
Hvaða flokk myndir þú kjósa í Hafnarfirði ef kosið væri í dag?
Framsóknarflokk og óháða 6%
Samfylkinguna 36%
Sjálfstæðisflokkinn 47%
Vinstrihreyfinguna grænt framboð 11%
Taktu þátt á www.fjardarposturinn.is
Heilsuvörur
Erum með mikið úrval af Aloe
Vera heilsuvörum frá Forever
Living Products; drykkir,
næringarviðbót, húðumhirða og
snyrtivörur...
aloe.verslunin.net
sími 869 6448
Vönduð tölvuþjónusta
Einstaklingar og fyrirtæki
Kem á staðinn og geri við
11 ára reynsla
Viðukenndur af Microsoft
www.tolvudeildin.net
Sími 898 0690
Kornið Bakarí
óskar eftir starfsfólki
Fólk í fullt starf óskast, vinnutími kl. 7-13
aðra vikuna og 13-18 hina vikuna.
Upplýsingar á staðnum
hjá Matthildi
Bakaríið Kornið,
Tjarnarvöllum 15 (við hliðina á Bónus)
Laun ófaglærðs starfsfólks á
Hrafnistu og Sólvangi hér í
Hafnarfirði eru allt of lág og
verulega lægri en greitt er fyrir
skyld störf hjá Hafnarfjarðarbæ.
Þar munar tugum
þúsunda króna á
mánuði. Þar að auki er
vinnuálag á þessum
stofnunum langt um-
fram það sem eðlilegt
getur talist. Algengt er
að það vanti fólk í tvö
til þrjú störf af hverj-
um tíu og vinnu þeirra
starfa bætt á starfsfólk-
ið. Mjög sjaldan er
greitt aukalega fyrir þessa miklu
umframvinnu, en þegar það er
gert er um óverulegar upphæðir
að ræða. Það er því beinn
fjárhagslegur ávinningur fyrir
ríkissjóð og viðkomandi
stofnanir að undirmönnun sé
sem mest. Væri rétt og
sanngjarnt staðið að greiðslum
fyrir þessa aukavinnu mundu
laun hvers ófaglærðs starfs-
manns hækka um 20% til 30%
fyrir vaktina. Hér er um hundruð
þúsunda króna að ræða fyrir
hvern starfsmann á ársgrund-
velli.
Við þessar aðstæður vinnur
ófaglært starfsfólk á Hrafnistu og
Sólvangi í dag.
Heimskulegt
Það má vel vera að ráðamenn
þessara stofnana ráðgeri ekki
þessa undirmönnun, en hún er
samt til staðar og á ekki að
leysast í sjálfboðaliðsvinnu. Það
er því ekkert nema sanngirnis-
krafa að fólkið fái hærri laun og
sérstaka álagsgreiðslu þegar það
tekur á sig vinnu sem aðrir eiga
að vinna. Þeir sem þessum
málum stjórna eiga að sjá til þess
að skipt sé á milli
ófaglærða starfs-
fólksins launum þeirra
stöðugilda sem vantar
starfsfólk í. Ef það er
ekki gert þá er
viðkomandi stofnun
og ríkið að hafa laun
af starfsfólkinu. Þann-
ig framkoma er bæði
aðfinnsluverð og
heimskuleg, því það
góða starfsfólk sem þessar
stofnanir hafa haft hingað til
íhugar nú að segja upp og fara í
önnur störf.
Úrbætur
Til þess að leggja áherslu á
kröfur sínar um hærri laun og
minna vinnuálag hefur starfs-
fólkið farið tvisvar í setuverkfall,
í seinna skiptið á fimmtudag og
föstudag í síðast liðinni viku og
von er á meiri aðgerðum og upp-
sögnum ef úrbætur ekki fást.
Fólkið vill fá sömu launahækk-
anir og ófaglært starfsfólk sveit-
arfélaga fékk nú fyrir skömmu
síðan. Það vill einnig að metin
verði til launa sú mikla umfram
vinna sem það tekur á sig vegna
undirmönnunar á deildum. Þetta
eru sanngjarnar og aðgengilegar
kröfur sem stofnanir og stjórn-
völd geta strax gengið að. Vilji er
allt sem þarf.
Höfundur er fyrrv. formaður
Vlf. Hlífar.
Leiðréttingu strax
Sigurður T.
Sigurðsson
Það hefur verið stefna Sam-
fylkingarinnar í Hafnarfirði að
styðja við menningu og stuðla að
frumkvæði ungs fólks í Hafn-
firði. Eftir síðustu
kosningar var farið af
stað með listahátíðina
Bjarta daga, þar sem
ungt listafólk fær
tækifæri á að koma
sköpun sinni á fram-
færi. Unglingaráð var
sett á laggirnar sem
hefur greiðan aðgang
að bæjarstjórn og
hlustað er á skoðanir
og hugmyndir unga
fólksins með virðingu og margt
af þeirra hugmyndum er þegar
komið í framkvæmd.
Stór þáttur í því að stuðla að
sköpun og frumkvæði ungs fólks
í Hafnarfirði er sumartíminn,
ÍTH og Vinnuskóli Hafnarfjarð-
ar. Ýmsir hópar af mismunandi
stærðum og gerðum hafa látið til
sín taka í bæjarlífinu. Tónlistar-
hópurinn hefur glatt bæjarbúa á
góðviðrisdögum með frábærri
spilamennsku sinni í miðbænum
og hefur glatt unga sem aldna
með heimsóknum á stofnanir
bæjarins. Leiklistarhópurinn er
orðinn þekkt stærð í skapandi
sumarstarfi. Þar leggur ungt fólk
allt sitt í að gleðja okkur hin með
leikritum og uppákomum. Án
efa eru leikarar framtíðarinnar að
stíga þar sín fyrstu skref.
Ungur fræðir ungan
Fjölmiðlahópurinn leiðir unga
fólkið í allan sannleika um allt
það sem er á döfinni á vegum
bæjarins, auk þess að vera að
taka á samfélagslegum málefn-
um. Í vor verður frumsýnd heim-
ildarmynd um fordóma sem Fjöl-
miðlahópurinn vann að ásamt
Competo, jafningjafræðslu Hafn-
arfjarðar sem mun án efa gleðja
og fræða bæjarbúa, en síðarnefndi
hópurinn hefur vakið athygli á
landsvísu með ötulli
baráttu sinni gegn for-
dómum með hug-
myndafræðinni „ung-
ur fræðir ungan“. Sá
hópur öðlaðist þann
heiður að vera
tilnefndur til Sam-
f é l a g s v e r ð l a u n a
Fréttablaðsins þetta
árið. Competo mun
vinna áfram að
vi tundarvakningu
meðal unga fólksins í Hafn-
arfirði þetta sumarið og á eftir að
setja sinn svip á bæjarbrag
Hafnarfjarðar ásamt öllum hin-
um hópunum. Fleiri hópar af
ýmsu tagi hafa starfað yfir
sumartímann og ég vil nota tæki-
færið til að hvetja allt það unga
fólk sem lumar á hugmyndum að
viðra þær við starfsmenn ÍTH.
Ég veit af eigin reynslu að vel
verður tekið á móti ykkur því
þetta er jú stefna bæjarins, að
styðja við sköpun og frumkvæði
ungs fólks í Hafnarfirði.
Skapandi starf
með ungu fólki
Margrét Gauja
Magnúsdóttir
Eldsneytisverð
11. apríl 2006 í Hafnarfirði:
Sölustaður 95 okt. dísil
Atlantsolía 117,8 114,1
Esso, Rvk.vegi. 119,3 115,5
Esso, Lækjargötu 117,4 114,5
Orkan, Óseyrarbraut 117,7 114,0
ÓB, Fjarðarkaup 117,7 114,7
ÓB, Melabraut 117,8 114,8
Skeljungur, Rvk.vegi 119,3 115,5
Öll verð miðast við sjálfsafgreiðslu og
eru fundin á vefsíðum olíufélaganna.