Fjarðarpósturinn - 12.04.2006, Qupperneq 23
Þegar undirritaður fæddist voru
varnir Íslands í höndum sam-
bandsríkis Íslands og Danmerkur
og hvíldu eðlilega samkvæmt því
að mestu á herðum Dana. Á dög-
um heimsstyrjaldarinnar hinnar
síðari (númer tvö) voru það í
fyrstu Bretar og síðan Banda-
ríkjamenn og Bretar sameigin-
lega, sem sáu um varnir landsins.
Síðan, eftir stríð og eftir að samn-
ingur var gerður við Bandaríkja-
menn um varnir landsins, sáu
Bandaríkjamenn um varnirnar
allt fram á þennan dag.
Ber er hver að baki nema sér
bróður eigi. Nú eru vatnaskil í
þessum málum. Heimsmyndin
hefur breyst og okkur Íslending-
um stafar ekki hætta af neinni
þjóð í okkar heimshluta. Það er
því mjög eðlilegt að Bandaríkja-
menn vilji draga úr starfsemi
sinni og kostnaði við varnir lands-
ins sem að mestu hefur verið
falinn í rekstri Keflavíkurflug-
vallar. Það kemur mér því undar-
lega fyrir sjónir hve tillögur og
kröfur okkar Íslendinga eins og
þær lýsa sér í stefnu stjórnvalda
gagnvart Bandaríkjamönnum, eru
fávísar og algjörlega úr takti við
stöðu heimsmála í dag. Sú mikla
áhersla sem lögð er á veru fjög-
urra herþotna (fighter inter-
ceptors) á Keflavíkurflugvelli,
vegna þess að hún skiptir engu
máli varðandi varnir landsins, er
lýsandi dæmi um þessa fávisku.
Hverjir eru ráðgjafar ríkisstjórn-
arinnar í varnarmálum? Það
kæmi mér ekki á óvart að það
væri helst guðinn Mammon sem
þar réði ríkjum. Brottför Banda-
ríska flotans (US Navy), er miklu
alvarlegra mál. Eftirlitsflugsveit
Bandaríkjaflota (VP Squadron)
hélt uppi eftirlitsflugi umhverfis
landið bæði ofansjávar og neðan.
Það eftirlit skipti miklu meira
máli en fjórar þotur ætlaðar til
loftvarna.
Það er okkur Íslendingum til
vansa hvernig við tölum til vina
okkar Bandaríkjamanna um þessi
málefni í dag. Oftast nær bæði í
ræðu og riti. Þar er því t.d. haldið
á lofti að hvatir Bandaríkjamanna
í þessum efnum hafi fyrst og
fremst verið þær að eiga betri
möguleika á því að verja sitt eigið
land, og við Íslendingar skiptum
þar engu máli. Ágætt íslenskt
máltæki segir „hver er sjálfum sér
næstur“. Erum við Íslendingar
eitthvað öðruvísi en aðrar þjóðir í
þessum efnum?
Bandaríkjamenn héldu hér uppi
vörnum í fyrstu gegn nazistum
Hitlers í seinni heimsstyrjöldinni,
og síðan gegn kommúnistum
Stalins og félaga í kalda stríðinu.
Þeir sýndu okkur á þessum tím-
um mikla vináttu og mikið um-
burðarlyndi gagnvart oft á tíðum
ósanngjörnum kröfum okkar
sjálfra, t.d. á tímum þorskastríð-
anna gegn vinum okkar Bretum.
Bandamenn gáfu okkur tvo al-
þjóðlega flugvelli á stríðstímum.
Flugvelli sem við sjálf hefðum
ekki haft bolmagn til að byggja.
Þeir hafa varið okkur vanmegn-
ug, vegna smæðar okkar, gegn of-
beldisöflum í okkar heimshluta í
næstum sjö áratugi. Á sama tíma
hömuðust svokallaðir herstöðva-
andstæðingar gegn þessu sam-
starfi og fóru í gönguferðir eftir
Keflavíkurveginum í mótmæla-
skyni gegn herstöðinni. Það er
með ólíkindum hve margir af
helstu menntamönnum þjóðar-
innar, gáfaða fólkið, lét blekkjast
af Sovétríkjunum og fagurgala
kommúnista. Þetta fólk sem
hryllir sig ennþá yfir morðum
nasista á 6 milljónum gyðinga
ypptir bara öxlum yfir þeim
hundruðum milljóna sem þeir
félagar Stalín og Maó og fylgi-
fiskar þeirra drápu í Sovét-
ríkjunum og rauða Kína. Var þetta
fólk kannske ekki svo gáfað eftir
allt saman og e.tv. alls ekkert vel
menntað? En við getum huggað
okkur við það að Sovét Ísland,
óskalandið þeirra, kemur aldrei,
ekki frekar en tími Jóhönnu. Það
er kominn tími til að hætta að
vera eingöngu þyggjendur í
varnarmálunum. Við eigum að
hætta þessu væli út af Keflavíkur-
flugvelli og taka til í eigin ranni.
Ég starfaði hjá Flugmálastjórn
á Keflavíkurflugvelli í þrjátíu og
átta ár, lungan úr kalda stríðinu og
átti ágætt samstarf við Banda-
ríkjamenn á þessu sviði. Ég tala
því af reynslu. Nú er kominn tími
til þess að við förum að gefa
eitthvað til baka. Það er komið að
því að við förum að þakka fyrir
okkur. Við getum sjálf séð um
rekstur flugvallarins sem er að
mestu leiti í dag að þjóna borg-
aralegu flugi, öfugt við það sem
var þegar ég hóf störf sem ungur
maður hjá Flugmálastjórn.
Öryggismál okkar í dag eru
fyrst og fremst fólgin í því að vera
meðlimir í NATO, og það er það
sem veitir okkur mesta vernd. Við
eigum alfarið að taka að okkur
rekstur flugvallarins, allt sem
varðar almennt flug, en Banda-
ríkjamenn eða NATO að sjá um
kostnað við rekstur hernaðar-
mannvirkja sem talið er nauð-
synlegt að viðhalda vegna al-
mennra hagsmuna NATO. Það er
mín skoðun að við Íslendingar
eigum í því skini að efla varnir og
öryggi landsins, að efla fyrst og
fremst Landhelgisgæsluna með
fleiri og öflugri skipum og flug-
vélum, ekki síst fleiri þyrlum,
bæði til eftirlits- og björgunar/-
sjúkraflugs og með fjölgun starfs-
manna hjá þessari stofnun. Einnig
eigum við að efla sérsveitir Lög-
reglunnar verulega og gera þeim
það kleyft að hafa a.m.k. slíkar
sveitir starfandi í öllum lands-
fjórðungum. Það er útilokað fyrir
okkur Íslendinga að stofna
almennan her (conventional
army) til þess að verja landið,
vegna fámennis þjóðarinnar. Nú á
tímum frelsis í viðskiptum hefur
það komið í ljós að við eigum yfir
fjölda hæfra einstaklinga í
þessum efnum að ráða. Á sama
hátt er ég þess fullvís að við eig-
um í okkar röðum fólk sem getur
stjórnað varnarmálefnum okkar
af skynsemi og ráðdeild. Við get-
um lagt okkar af mörkum í sam-
starfi vestrænna þjóða með skyn-
samlegri stefnu í öryggis- og
varnarmálum.
Spurningin er því þessi: „Eru
ráðamenn þjóðarinnar tilbúnir að
horfast í augu við staðreyndir, eða
ætla þeir áfram að berja höfðinu
við steininn?“ Eru þeir tilbúnir að
axsla ábyrgðina eða vilja þeir
áfram vera þyggjendur eingöngu
á þessu sviði? Er víkingablóðið
orðið útþynnt vatnsgutl eða hvað?
Talandi um víkinga þá ættum við
að sjálfsögðu að líta til nágranna
okkar Dana og Norðmanna um
samstarf við eftirlit á hafsvæðun-
um umhverfis Ísland. Við höfum
nú þegar samstarf við Dani um
björgunarstörf og bæði þeir og
Norðmenn hafa hagsmuna að
gæta á Norður-Atlantshafs-
svæðinu.
Ég segi við stjórnvöld: „Hættið
þessu væli og takið til heima hjá
ykkur!“
Hermann Þórðarson.
www.fjardarposturinn.is 23Fimmtudagur 12. apríl 2006
Úrslit:
Handbolti
Úrvalsdeild karla:
FH - HK: 30-27
Haukar - Vík./Fjölnir: 33-19
Körfubolti
Úrvalsdeild kvenna:
Haukar - Keflavík: 81-77
Íþróttir
Auglýsingar:
565 3066
Lokahóf SVH
Lokahóf, síðasta opna hús
vetrarins hjá Stangaveiðifélagi
Hafnarfjarðar verður haldið mið-
vikudaginn 19. apríl n.k. í sal
félagsins að Flatahrauni 29. Hefð
er fyrir því hjá SVH að halda
lokahófið á síðasta vetrardag og
kalla það „kvöldið fyrir sumar-
daginn fyrsta“ og fagna þannig
komu sumars og nýs veiði-
tímabils. Happdrættið verður á
sínum stað með mörgum glæsi-
legum vinningum, gefnum af
fjölmörgum fyrirtækjum. Kynn-
ing verður á Fluguveiðiskóla
Arkó og Pálma Gunnarssonar og
munu þeir Pálmi, stórveiðimaður
og hljómlistarmaður og Guð-
mundur Guðmundsson hjá Arkó
veiðiþjónustunni sjá um kynn-
inguna.
Húsið verður opnað kl. 20 og
eru félagsmenn hvattir til að taka
með sér gesti.
Loksins sögðu margir eftir
góðan sigur FH á HK í
Íslandsmótinu í handknattleik
karla. Gengi liðs FH var arfa-
slakt í byrjun móts en strákarnir
hafa verið að ná betur saman og
áttu mjög góðan leik á sunnu-
dagskvöld, vel studdir af áhorf-
endum sem virðast líka vera að
taka við sér eftir rólegan vetur.
FH-ingar eru nú í 7. sæti og
eiga tvo leiki eftir, gegn Vík-
ingi/Fjölni og Haukum í síðustu
umferð. Lendi liðið í einu af 8
efstu sætunum leikur það í
úrvalsdeild næsta leiktímabil en
staðan virðist vera allvænleg þó
ekkert sé öruggt. FH-ingar
sigruðu HK með 3 marka mun,
en Haukar unnu HK með 2ja
marka mun í síðustu umferð.
Haukar eru hinsvegar jafnir
Fram í efsta sæti og verða að
treysta á heppni eigi liðið að
verða Íslandsmeistarar.
FH-ingar líta nú
aftur til sólar
Sigruðu HK í mikilvægum leik
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Fjölbreytt
tónlist á
páskum
Guðrún Árný, Gréta,
Hrönn og barnakórar í
Hafnarfjarðarkirkju
Við árdegis- og hátíðarguðs-
þjónustu í Hafnarfjarðarkirkju á
páskadagsmorgun kl. 8 mun
Guðrún Árný Karlsdóttir, hin
efnilega hafnfirska söngkona,
syngja einsöng við eigin undir-
leik á flygil og kór Hafnar-
fjarðarkirkju leiða safnaðarsöng
og Antonía Hevesi organisti
leika á orgel. Eftir hátíðarguðs-
þjónustuna er boðið til páska-
morgunverðar í Hásölum Strand-
bergs.
Við messu á helgu skírdags-
kvöldi kl. 20 mun barnakór
Hafnarfjarðarkirkju syngja undir
stjórn Helgu Loftsdóttur við
undirleik Önnu Magnúsdóttur.
Við guðsþjónustu á föstudaginn
langa kl. 14 munu þær Gréta
Jónsdóttir og Hrönn Hafliða-
dóttir mezzosópranar syngja
tvísöng. Segja prestar kirkjunnar
að helgihald í kyrruviku sé inn-
haldsríkt og gefandi og fagnaðar-
ríkt á páskum og vænta góðrar
aðsóknar sóknarbarna.
Ber er hver að baki ...
Hraunsel:
Eldri borgarar
dansa á
síðasta
vetrardag
Félag eldri borgara í Hafnar-
firði kveður veturinn og fagnar
sumri með dansleik, síðasta vetr-
ardag, miðvikudaginn 19. apríl
n.k. Þar leikur Capri-tríó fyrir
dansi og eru allir eldri borgarar
bæjarins velkomnir.
Opnunartími um páskana
Skírdagur: opið 13-19
Föstudagurinn langi: opið 13-19
Laugardagur: 12-23
Páskadagur: Lokað
Annar í páskum: opið 13-23
Söluturninn Hringbraut
(Bryndísarsjoppa) sími 555 3546
Mjólk
brauð
ís
hamborgarar og franskar