Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 28.09.2006, Page 2

Fjarðarpósturinn - 28.09.2006, Page 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 28. september 2006 Útgefandi: Keilir ehf. kt. 681175-0329 Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193 www.fjardarposturinn.is Sunnudaginn 1. október Fjölskylduhátíð kl. 11 Sr. Kjartan Jónsson og sr. Gunnþór Þ. Ingason leiða hátíðina ásamt leiðtogun sunnudagaskólannna. Hljómsveitin Gleðigjafar syngur og leikur. Góðgæti í boði í Strandbergi. Sætaferð frá Hvaleyrarskóla kl. 10.55 Gospelmessa kl. 20 Gospelsveit Fíladelfíu leikur og syngur Stjórnandi: Óskar Einarsson. Einsöngvarar: Hrönn Svansdóttir og Edgar Smári. Óskar Einarson leikur á píanó og Símon Hjaltason á gítar Prestar: Sr. Gunnþór Þ. Ingason og sr. Kjartan Jónsson. www.hafnarf jardark i rkja. is 17. Vífilfell hf., bréf. Lagt fram bréf, dags. 6. september ´06, frá SAV f.h. Vífil- fells hf. þar sem óskað er eftir lóð. Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til frekari vinnslu hjá skipulags- og byggingarsviði. 2. Hlaðbær-Colas/Ris ehf., vilyrði. Lögð fram teikning af iðnaðar- svæðinu í Kapelluhrauni. Bæjarráð leggur eftirfarandi til við bæjarstjórn: „Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að veita Hlaðbæ-Colas, kt. 420187-1499, og Ris ehf., kt. 610566-0149, vilyrði fyrir lóðum, sbr. framlagða teikningu, á iðnaðarsvæðinu í Kapelluhrauni með fyrirvara um samþykkt deiliskipulag.“ 2. Vesturgata 32 – Bungalow Formaður kynnti tillögu að fyrirhuguðu útboði vegna fram- kvæmda við ytra birði hússins. Lögð fram styrkumsókn til Húsafriðunarsjóðs ríkisins. Sigurður Haraldsson forstöðu- maður Fasteignafélags gerði grein fyrir málinu. Framkvæmdaráð heimilar Fasteignafélaginu að fara í forval vegna ytra birðis hússins og jafnfram að sækja um styrk til Húsafriðunarsjóðs ríkisins vegna endurbótanna. 3. Hraunvallaskóli, verksamningur 2. og 3. áfanga Lagður fram verksamningur við Fjarðarmót ehf vegna byggingar 2. og 3. áfanga skólans. Sigurð- ur Haraldsson forstöðumaður Fasteignafélags gerði grein fyrir samningunum. Einnig lagður fram framhaldssamningur vegna umsjónar og eftirlits með fram- kvæmdunum. Framkvæmdaráð leggur eftirfarandi til við bæjarstjórn: „Bæjarstjórn Hafnarfjarðar sam- þykkir framlagða verksamninga við Fjarðarmót ehf vegna 2. og 3. áfanga Hraunvallaskóla. Einnig framhaldssamning vegna umsjón- ar og eftirlits við VSB verkfræði- stofu ehf.“ Tillagan var samþykkt sam- hljóða með 5 atkvæðum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Framkvæmdaráði gera fyrirspurn um eldhús í 1. áfanga Hraun- vallaskóla og óska eftir skriflegu svari. Hvenær og af hverjum var tekin ákvörðun um að koma fyrir eldhúsi til bráðabirgða í 1. áfanga Hraunvallaskóla þegar fyrir lá að það var ekki gert ráð fyrir eldhúsi fyrr en í 2. áfanga. Hversu mikill kostnaður var af þessu fráviki frá byggingarlýsingu ? 4. Lækur, athvarf fyrir fólk með geðraskanir Lagt fram bréf frá Rauða krossi Íslands, dags. 22. sept. sl., þar sem þess er farið á leit við Hafnarfjarðarbæ að gerður verði nýr rekstrarsamningur sem taki gildi frá og með næstu áramótum og frá sama tíma taki Hafnar- fjarðarbær á sig stærri hluta rekstursins. Vísað til sviðsstjóra og fjár- hagsáætlunar. Sýningar í Bæjarbíói Á laugardaginn kl. 16 sýnir Kvik- myndasafn Íslands myndina 79 af stöðinni (1962) í leikstjórn Erik Balling. Þriðjudaginn 26. sept. kl. 20 verður sýnd myndin Salka Valka (1954) í leikstjórn Arne Mattson. Myndin, sem er byggð á samnefndri skáldsögu Halldórs Laxness er jafnframt fyrsta myndin sem Edda Film og þar með Íslendingar gerðu í samvinnu við erlenda kvik- myndagerðarmenn. Það var að frum- kvæði hins nýskipaða formanns Edda Film, Guðlaugs Rósinkrans sem átti eftir að ryðja brautina fyrir komandi kyn- slóðir íslenskra kvikmyndagerðar- manna og leikara. Leikstjóri og kvik- myndatökumaður voru Svíarnir Arne Mattson og hinn þekkti myndasmiður sem síðar varð: Sven Nykvist. Leikarar í aðalhlutverkum eru flestir sænskir en Íslendingar í minni hlutverkum, s.s. Lárus Pálsson. Haustferð Kvenfélags Hafnarfjarðarkirkju Kvenfélag Hafnarfjarðarkirkju fer í haustferð á Eyrarbakka n.k. sunnudag 1. október kl 13. Farið verður með rútu frá Hafnarfjarðarkirkju. Aðalfundur Foreldrafélags Setbergsskóla Aðalfundur Foreldrafélags Setbergs- skóla verður haldinn þriðjudaginn 3. október nk. kl. 20 í Setbergsskóla. Auk venjulegra aðalfundarstarfa mun Júlíus Björnsson, sálfræðingur flytja er- indi um áhrif svefns og svefntruflana á námsárangur og einbeitingarhæfileika barna. Mega vott í Hafnarborg Sýningin Mega vott í Hafnarborg var opnuð 2. september sl. Þar er teflt fram fimm listakonum, fjórum íslenskum og einni bandarískri, sem allar hafa í verkum sínum tekið þátt þeirri umbreytingu sem orðið hefur á höggmyndlistinni undanfarið, ekki síst í meðförum listakvenna. Þetta eru þær Anna Eyjólfsdóttir, Ragnhildur Stefáns- dóttir, Rúrí, Þórdís Alda Sigurðarsdóttir og Jessica Stockholder. Sýningunni lýkur 2. október. Listamannaspjall Listamannaspjall verður í kvöld, fimmtudag kl. 20 í Hafnarborg. Geirharður hinn æðsti samdi um varnir okkar við mestu stríðsþjóð heims. Við fáum ekki að vita hvernig varnir samið var um né síður höfum fengið að vita fyrir hverju eigi að verja okkur. Fyrir mestu var þó að byggingarmeisturum var bjargað frá bráðum bana og tryggt að íbúðirnar á vellinum verða ekki settar á frjálsan markað. Það hefði verið skelfilegt ef sauðsvartur almúginn hefði komist með lúkurnar í ódýrt íbúðarhús- næði. Nei, gamla góða forræðishyggjan fær að ráða og byggingarmeisturum tryggð sala á sínum húsum fyrst. Þeir hugsa vel um sína þarna suðurfrá. Herinn er á förum og því ber að fagna. Betur hefði verið ef við hefðum losað okkur við tengsl við bandaríska herinn fyrir fullt og allt. Kannski var ekki við því að bú- ast með ráðamenn sem hafa alist upp við Bonanza og stríðsmyndir kanasjónvarpsins. Þeir eru síst betri þessir eldri, leynilögguáhuga- mennirnir heldur en þeir ungu sem hafa alist upp við drápsleiki í tölvunni heima í faðmi fjölskyldunnar. Ekki hefur heyrst hósti né stuna frá hafnfirsku gömlu herstöðvar- andstæðingunum, þeir kannski skammast sín fyrir baráttuna? Nei, þeir geta verið hreyknir af því að hafa barist á meðan ég og fleiri hlógum og sáum ekkert vont við Kanann. En hvað varð um sann- færinguna þeirra? Í umræðunni hefur komið fram að efla þurfi löggæslu í landinu. Er það vitleysa í mér að virðing fyrir lögum og reglum hafi minnkað? Þjóðfélagið er að verða sýkt af eiginhagsmunagæslu þar sem hver hugsar um sjálfan sig og skeytir ekki um hvaða afleiðingar það hefur fyrir aðra eða þjóðfélagið í heild. Kannski eru það ekki erlendir hryðjuverkamenn sem við eigum að hræðast? Guðni Gíslason Víðistaðakirkja Sunnudagurinn 1. október Fjölskylduhátíð kl. 11:00 Sunnudagaskólinn og fjölskylduguðsþjónustan saman í einni stórri fjölskylduhátíð. Barnakórinn og Unglingakórinn syngja undir stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttir. Fundur með foreldrum fermingarbarna í safnaðarheimilinu að messu lokinni. 8-9 ára starf á mánudögum kl. 16:30 10-12 ára starf (TTT) á þriðjudögum kl. 17 Unglingastarf á þriðjudögum kl. 19:30 Kyrrðarstundir á miðvikudögum kl. 12:00 Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir. Opið hús fyrir eldri borgara á miðvikudögum kl. 13:00 Spil, spjall og kaffiveitingar. Foreldrastundir á fimmtudögum kl. 13:00 Gefandi samvera fyrir heimavinnandi foreldra www.vidistadakirkja.is Allir velkomnir Bragi J. Ingibergsson, sóknarprestur

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.