Fjarðarpósturinn - 28.09.2006, Qupperneq 4
Sjóvá stóð fyrir forvarnardegi
á laugardaginn í samstarfi við
verslunarmiðstöðina Fjörð. Alls
fóru 755 í veltibílinn og grillaðar
voru 1300 pylsur að sögn
Auðunar Helgasonar hjá Sjóvá.
Skv. upplýsingum úr Firði komu
um 5600 manns í húsið þann
dag.
Krakkar gátu spreytt sig í
hjólreiðakeppni, prófað öryggis-
belti við högg, farið í veltibílinn,
prófað „ölvunargleraugu“ og
yngstu krakkarnir gátu leikið sér
í hoppukastala.
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 28. september 2006
!"#$%&'()'#*+(*,+-*,.*,/
Bæjarráð Hafnarfjarðar, í umboði bæjarstjórnarinnar, samþykkti á
fundi sínum þann 17. ágúst 2006, að auglýsa tillögu að breytingu á
Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 1995-2015 vegna íbúðabyggðar við
Jófríðarstaði í samræmi við 1. mgr. 21. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.
Tillagan felur í sér að hluti stofnanareits S36 við Jófríðarstaði verði
breytt í íbúðarreit. Í gildandi aðalskipulagi er svæði S36 um 16.300 m²
og skilgreint „Kaþólska kirkjan og leikskóli“. Með breytingunni er
svæðinu skipt í þrennt. S36, kaþólska kirkjan, verður um 7.410 m²,
íbúðarsvæði, 4.450 m² og ný merking, S51, leikskóli, 4.440 m² verði
bætt við. Breytingin á að vera til samræmis við tillögu að breyttu
deiliskipulagi á kirkjulóð við Jófríðarstaði í Hafnarfirði.
Tillaga að breytingu á Aðalskipu-
lagi Hafnarfjarðar 1995-2015,
íbúðabyggð við Jófríðarstaði
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 5. september
2006, að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi á kirkjulóð við
Jófríðarstaði í Hafnarfirði í samræmi við 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997. Breytingin felst í því að hluti stofnanareits
breytist í íbúðarreit. Gert er ráð fyrir þremur íbúðarbyggingum með 5
íbúðum í hverri byggingu. Einnig er gert ráð fyrir að hver bygging sé
3 hæðir, þar sem efsta hæðin er inndregin á 3 hliðar.
Aðalskipulagið og deiliskipulagið verða til sýnis í þjónustuveri
Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, frá 26. september til 24. október
2006. Nánari upplýsingar eru veittar á skipulags- og byggingarsviði.
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera
athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til
skipulags- og byggingarsviðs Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en
7. nóvember 2006. Þeir sem ekki gera athugasemd við breytinguna
teljast samþykkir henni.
Skipulags- og byggingarsvið Hafnarfjarðar
Tillaga að breytingu á samþykktu
deiliskipulagi á kirkjulóð við
Jófríðarstaði í Hafnarfirði
Fríkirkjan
Sunnudagur 1. október
Sunnudagaskóli kl. 11
Guðsþjónusta kl. 13
Fríkirkjubandið leiðir létta tónlist og söng og
fluttur verður vitnisburður. Guðsþjónustan er
tileinkuð kvenfélagi kirkjunnar.
Sporin 12 - andlegt ferðalag
á fimmtudögum kl. 20.
Krakkakirkjan
í safnaðarheimilinu á þriðjudögum
kl. 16-18.
Allir velkomnir
www.frikirkja.is
Fjölmenni á forvarnardegi Sjóvá
Það var góð reynsla að fara í veltibílinn.
Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár
lét sig ekki vanta.
Tíma- og hjólaleiknibrautin var
vinsæl.
Fyrrum forstjóri, Þorgils Óttar
með Albert Má og Auðuni.
Höggið var óþægilega mikið
þrátt fyrir lítinn hraða.
Sumarliði og félagi hans hjá
Sjóvá mættu á mótorhjólunum.
Lj
ós
m
yn
di
r:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n