Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 21.12.2006, Blaðsíða 8

Fjarðarpósturinn - 21.12.2006, Blaðsíða 8
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 21. desember 2006 Hvernig undirbýr bæjar- stjórinn í Hafnarfirði jólin? Það er oft ekki mikill tími til undirbúnings þegar helsti álags- tími ársins er við afgreiðslu fjár- hagsáætlunar skömmu fyrir jól, en við Hanna höfum reynt að hefja jólaundirbúninginn snemma og það hjálpar líka til þegar börnin eru heima og taka virkan þátt í öllum undirbúningi. Eldri strák- arnir hafa verið í prófum í Háskólanum og Flensborg en sá yngsti sem er í Lækjarskóla ýtir mjög duglega við pabba sínum og það er besta mál. Það er búið að skreyta inni og úti og baka piparkökur, heimsækja jólaþorp- ið og ganga um bæinn og skoða jólaskreytingar. Það er mikil- vægt að fjölskyldan njóti ekki bara jólanna og áramóta, heldur líka aðventunnar. Ert þú mikið jólabarn? Hugsar þú mikið um tilgang jólahátíðarinnar? Já er ekki lítið jólabarn í öllum, ungum sem öldnum. Mér finnst skammdegið vera um margt notalegur tími. Það er meiri ró yfir hlutnum og ég les mikið á þessum tíma og það er einn aðalkostur jólanna að fjölskyldur og ættingjar gefa sér meiri tíma en annars til að njóta samvista. Fólk verður að gefa sér tíma í öllum asanum til að njóta kyrrð- arinnar og samverunnar. Núna þegar skammdegið er mest, þá er líka komin ákveðin tilhlökkun eftir björtu og fallegu sumri. Ég hitti á sl. sumri Kanadamann sem hefur búið hér sl. 3 ár og spurði hann hvernig honum lík- aði hér þegar við hefðum svo misjafnt veðurfar og margar árstíðir. Hann sagði að sér líkaði vel hérna enda væru hér bara tvær árstíðir. Ég sagði það væri ekki rétt við hefðum fjórar árstíðir; vetur, sumar, vor og haust. - Nei, það eru bara tvær sagði hann, - birta og myrkur. Það er margt til í því sem hann sagði og kannski upplifir hann þetta mun sterkar en við sem höfum alið hér manninn alla tíð. Hvað er þér efst í huga þegar þú lítur yfir líðandi ár? Mér þykir ánægjulegt að sjá hvernig bærinn okkar er að eflast og styrkjast á allan máta. Það eru búnir að vera miklir fram- kvæmda- og framfaratímar í Hafnarfirði á síðustu árum og nú á þessu ári er fólksfjölgun meiri en við höfum séð eða hátt í 1300 nýir íbúar á aðeins einu ári. Þetta sýnir að bæjarfélagið er í mikilli sókn og það skiptir miklu fyrir okkur að nýta öll tækifæri og treysta alla undirstöðu í byggð- inni hjá okkur. Mér þótti líka ánægjulegt að við lukum lang- þráðu verkefni á þessu ári sem var stækkun og endurbætur á Flensborgarskóla. Það var afar mikilvægt verkefni til að styrkja og efla okkar helstu mennta- og menningarstofnun sem er einnig einn stærsti vinnustaðurinn í öll- um bænum. Nýja húsnæðið boð- ar algera breytingu fyrir starf- semi og þróun skólans og það var gaman að vera á aðventunni á glæsilegum tónleikum Flens- borgarkórsins með þeim Páli Óskari og Moniku í nýja salnum í Flensborg. Úrslitin í bæjarstjórnarkosn- ingunum sl. vor eru auðvitað minnisstæð. Þau voru afgerandi og um leið skýr skilaboð frá bæjarbúum um að vel hafi til tekist og við eigum að halda áfram á sömu braut. Ég er afar þakklátur fyrir þennan stuðning við okkur sem höfum unnið vel saman að stjórn bæjarins og einnig með það víðtæka samstarf sem hefur verið um öll megin- verkefni okkar hér í bænum á síðustu árum. Árið hefur vissulega verið annasamt en þó reynir mest á þegar á bjátar hjá fjölskyldu og vinum. Það voru mikil og erfið veikindi sem faðir minn hefur gengið í gengum fram eftir öllu árinu og það var erfiður tími, en að sama skapi gleðilegt þegar hann náði sinni heilsu að mestu aftur. Prófkjör til alþingis voru áberandi í haust, veltir þú því aldrei fyrir þér að bjóða þig fram til þings? Ég gaf bæjarbúum skýr svör um það fyrir kosningarnar á sl. vori að ég væri að leita eftir endurnýjuðu umboði til að leiða stjórn bæjarmála og starfa áfram sem bæjarstjóri á nýju kjörtíma- bili. Það kom því aldrei annað til greina í mínum huga, enda voru úrslit kosninganna afdráttarlaus. Það er hins vegar mikilvægt að rödd okkar Hafnfirðinga heyrist með skýrum hætti á Alþingi og okkar hagsmunamálum sé þar fylgt eftir af röggsemi. Það er tryggt að svo verður á nýju kjör- tímabili þar sem Gunnar Svav- arsson mun leiða framboð Sam- fylkingarinnar hér í kjördæminu, en fáir þekkja betur en hann alla innviði í okkar bæjarmálum og hvar þarf að taka á málum í samvinnu og samstarfi við ríkis- valdið. Hvað ber árið 2007 í skauti sér fyrir Hafnfirðinga? Það er bjart framundan hjá okkur Hafnfirðingum eins og öðrum landsmönnum. Við fáum vonandi nýja og öfluga ríkis- stjórn undir forystu Samfylk- ingarinnar á vori komanda og það eru fjölmörg framfaramál sem unnið verður að hér í bæn- um okkar á nýju ári. Við reiknum með því að íbúafjölgun verði áfram mikil í bænum eða um og yfir 4% og ég hef trú á því að miðbæjarkjarninn okkar muni eflast til muna með þeim framkvæmdum sem eru nú á fullri ferð og fyrirhugaðar á mið- bæjarsvæðinu. Þá munu bæjar- búar væntanlega taka af skarið hvort af stækkun álversins verð- ur en það er alveg ljóst að þær kosningar munu marka ákveðin tímamót í íbúðalýðræði hér- lendis. Hafnarfjörður og allt mannlíf hér verður á fleygiferð og framfarabraut á nýju ári, segir Lúðvík Geirsson bæjarstjóri um leið og hann óskar bæjarbúum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða. Viðtal við Lúðvík Geirsson, bæjarstjóra í Hafnarfirði Það eru bara tvær árstíðir – birta og myrkur Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði SKÖTUVEISLA Nú er komið að því, hin árlega skötuveisla Íshesta verður haldin í Jósölum, Sörlaskeiði 26 þann 23. desember frá 11.30-13. Á boðstólum verður ilmandi skata með tilheyrandi meðlæti. Fyrir þá sem treysta sér ekki í skötuna, en vilja taka þátt í stemmn- ingunni, verður jafnframt saltfiskur á boðstólum. Allt saman þjóðlegt, hollt og gott Munið að panta tímanlega, í fyrra komust færri að en vildu!! www.ishestar.is • sími 555 7000 Fj ar ða rp ós tu rin n © H ön nu na rh ús ið e hf . 0 61 2 Fyrirtæki og einstaklingar Færsla á bókhaldi, launaútrreikningur, vsk-uppgjör, ársuppgjör, skattframtöl, skattakærur, fjármálaráðgjöf. Magnús Waage, viðurkenndur bókari Reykjavíkurvegi 60, s. 565 2189, 863 2275 Nú í byrjun desember færðu Flúrlampar ehf. öllum leikskól- um bæjarins gjafapakka með jólaseríum til nota í skólunum. Allar 67 deildir og kjarnar leikskólanna 16 í bænum fengu afhentar samtals 201 jólaseríu til að skreyta með í skólunum og var gjöfunum ætlað að gleðja börnin á aðventunni að sögn Jóhanns Harðarsonar, eiganda fyrirtækisins. Flúrlampar gáfu jóla- seríur í 16 leikskóla Ásta Ármannsdóttir, t.h. afhendir jólaseríur á leikskólanum Smáralundi.

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.