Fjarðarpósturinn - 21.12.2006, Page 21
www.fjardarposturinn.is 21Fimmtudagur 21. desember 2006
Við sendum ykkur hugheilar óskir um gleðileg jól og farsælt
komandi ár og þökkum samskiptin á árinu sem er að líða.
Tökum höndum saman og gerum jólin og áramótin
að sannri fjölskylduhátíð.
Bæjarstjórn Hafnarf jarðar
Kæru Hafnfirðingar!
Ungir FH-
ingar gefa
langveikum
börnum
Drengir í 6. flokki FH í
knattspyrnu færðu Umhyggju,
félagi langveikra barna 125 þús-
und kr. en upphæðinni söfnuðu
þeir í bíóferð þar sem af hverjum
seldum miða runnu 250 kr. til
langveikra barna.
Það var sunnudaginn 3. des-
ember sem FH-sýning knatt-
spyrnudeildar var í Smárabíói
þar sem um 500 krakkar og for-
eldrar komu saman og skemmtu
sér konunglega á jóla- og
grínmyndinni Deck the Halls.
Sýningin var hugsuð sem
skemmtileg samverustund fót-
boltaforeldra og fótboltabarna í
FH og einnig var tilgangurinn að
láta gott af sér leiða.
Vonast forsvarsmenn FH til að
þett geti orðið árviss viðburður
og kunna öllum foreldrum,
knattspyrnufólki og Smárabíói
bestu þakkir fyrir.
Fjölgun í Firði
Jólaverslun síðar af stað
Um 120 þúsund gestir komu í
verslunarmiðstöðina Fjörð í
nóvember sl. sem er mikil aukn-
ing frá síðasta ári.
Að mati rektraraðila hefur
jólaverslunin hins vegar farið
seinna af stað en áður en um
17% fleiri gestir komu í Fjörð
fyrstu 17 daga desembermán-
aðar.
Taekwondo
Sjö af 12 úr
Björk á NM
Af 12 manna hópi Íslands á
Norðurlandamótinu í Tae-
kwondo sem fram fer 19.-20.
janúar nk. eru 7 úr Taekwondo-
deild Bjarkar. Það eru þau:
Björn Þorleifur Þorleifsson,
Gauti Már Guðnason, Haukur
Daði Guðmundsson, Auður
Anna Jónsdóttir, Sigríður Lilja
Skúladóttir, Sólrún Svava Skúla-
dóttir og Adrian Rodriquez.
Gauti már var jafnfram valinn
sem fyrirliði.
Gleðileg jól, þökkum viðskiptin á árinu
Kæru foreldrar
Tökum höndum saman um að gera gamlárskvöld
og áramót að ánægjulegri upplifun sem skilur
eftir góðar minningar.
Rannsóknir sýna að samvera unglinga með
fjölskyldum sínum dregur úr neyslu áfengis og
annarra vímuefna.
Gerum okkar til að minnka líkur á að börnin okkar
lendi í aðstæðum sem þau ráða ekki við.
Verum börnum okkar góðar fyrirmyndir
og njótum áramótanna saman.Kátir unglingar á jólaballi í Lækjarskóla á þriðjudaginn.
Lj
ós
m
.:
S
m
ár
i G
uð
na
so
n