Fjarðarpósturinn - 21.12.2006, Síða 23
www.fjardarposturinn.is 23Fimmtudagur 21. desember 2006
Handbolti
Úrvalsdeild karla:
Haukar - Fylkir: 33-29
Bikarkeppni karla:
FH - Haukar: 38-33
Körfubolti
Úrvalsdeild kvenna:
Keflavík - Haukar: 92-85
Úrvalsdeild karla:
Haukar - UMFN: 99-104
Evrópukeppni kvenna:
Haukar - Parma: 58-117
Næstu leikir:
Körfubolti
17. des. kl. 19.15, Ásvellir
Haukar - UMFN
(Eúrvalsdeild karla)
17. des. kl. 17, Keflavík
Keflavík - Haukar
(úrvalsdeils kvenna)
21. des. kl. 19.15, Ásvellir
Haukar - UMFG
(úrvalsdeild kvenna)
29. des. kl. 19.15, Hveragerði
Hamar/Selfoss - Haukar
(úrvalsdeild karla)
Íþróttir
www.vaxtarvorur.com
Spjallvefur um líkamsrækt
www.gaflarinn.net
Gefðu heilsu
í jólagjöf
Heilsuklúbbur
Rakelar og Sindra
869 7090, 861 7080
www.kolbrunrakel.is
GEYMDU AUGLÝSINGUNA
Kæst Þorláksmessuskata
mild – sterk – söltuð
„Það er alltaf svo rosalega
gaman um áramótin, þau eru
miklu skemmtilegri en jólin,“
sagði lítill drengur við
mig um daginn. Marg-
ir taka undir þetta og
þá ekki hvað síst karl-
menn og skiptir þá
litlu máli á hvaða aldri
þeir eru. Flugeldar
eiga hug þeirra allan á
þessum tíma og því
stærri sem þeir eru því
betra.
Ákveðin lög gilda
um flugelda og þau eru ekki sett
að ástæðulausu. Bannað er að
selja þeim sem eru yngri en 16
ára vörur sem hætta getur stafað
af ef staðið er í minna en eins
metra fjarlægð frá þeim. Þumal-
fingursreglan er sú að ekki má
selja krökkum yngri en 16 ára
neitt sem hefur kveikiþráð. Hið
sama á við um rokeldspýtur.
Aldursleiðbeiningar er að finna á
öllum vörum sem seldar eru á
flugeldamörkuðum björgunar-
sveitanna, þ.e. hvaða aldurs-
hópur má meðhöndla vöruna, og
jafnframt hvernig bera eigi sig að
við meðhöndlun hennar. Ef farið
er eftir þessum leiðbeiningum í
einu og öllu stafar lítil hætta af
flugeldunum.
Því miður stunda mörg börn,
og þá sérstaklega
strákar, þann hættu-
lega leik að breyta
eiginleikum flugelda á
einn eða annan hátt.
Þeir eru teknir í sund-
ur, púðri safnað saman
eða annað gert sem
e.t.v. gefur þeim auk-
inn sprengikraft.
Verða alvarlegustu
slysin oft á tíðum við
þessa iðju þeirra. Á bak við
hverja flugeldategund liggja
ákveðnar prófanir sem tryggja
eiga að flugeldurinn sé sem
öruggastur. Ef búið er að breyta
þeim eiginleikum er engan veg-
inn hægt að vita hvernig flug-
eldurinn springur, hversu hratt
það gerist eða hver krafturinn
verður. Flestir áverkar sem hljót-
ast af svona fikti verða á höndum
og andliti þeirra sem ekki hafa
náð að koma sér í örugga
fjarlægð þegar flugeldurinn
springur.
Miklu máli skiptir að foreldrar
fylgist vel með börnum sínum á
þessum árstíma og vita hvað þau
eru að fást við. Foreldrum ber að
gæta þess að börn séu ekki að
sýsla með flugeldavörur án
eftirlits fullorðinna. Flest flug-
eldatengd slys á börnum verða
dagana fyrir og eftir áramótin en
ekki á sjálfu gamlárskvöldinu.
Þá eru flest börnin með for-
eldrum sínum að skjóta upp og
því undir virku eftirliti. Full-
orðnir karlmenn eru hins vegar í
meirihluta þeirra sem slasast á
gamlárskvöld og nýársnótt.
Aldrei er of varlega farið í
umgengni við flugelda. For-
eldrar verða að sýna gott for-
dæmi með því að umgangast
flugeldana á réttan hátt og fara í
hvívetna eftir þeim leið-
beiningum sem fylgja vörunni.
Allir ættu að nota flugeldagler-
augu, líka þeir sem aðeins eru að
fylgjast með. Skinn- eða ullar-
hanskar verja hendur og auð-
vitað á enginn sem er undir áhrif-
um áfengis að meðhöndla flug-
elda. Sé farið eftir þessum ein-
földu varúðarreglum ættu allir að
eiga ánægjuleg og slysalaus
áramót.
Höfundur er sviðstjóri slysa-
varnasviðs Slysavarnafélagsins
Landsbjargar.
Hvað eru krakkarnir að gera?
Aldrei er of varlega farið í umgengni við flugelda
Sigrún A.
Þorsteinsdóttir
Brunaskaði á ungu barni eftir flugeldaslys.
Mikilvægt er að allir noti hlífð-
argleraugu hjá flugeldum.
Ráðsmaður/kirkjuþjónn/meðhjálpari
Sóknarnefnd Hafnarfjarðarkirkju auglýsir hér með laust til umsóknar starf
ráðsmanns/kirkjuþjóns/meðhjálpara við Hafnarfjarðarkirkju.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í janúar 2007.
Í umsókn sinni skal umsækjandi gera grein fyrir menntun, fyrri störfum og meðmælendum.
Umsóknarfrestur er til 8. janúar nk.
og skal skriflegum umsóknum merktar: „Ráðsmaður/kirkjuþjónn/meðhjálpari“
skilað til sóknarnefndar Hafnarfjarðarkirkju v. Strandgötu, pósthólf 395, 220 Hafnarfjörður.
Stemmning í
jólaþorpinu
Að sögn Örnu Kristínar, verk-
efnisstjóra jólaþorpsins hefur
þátttaka verið góð, ekki síst á
jólaballinu sl. sunnudag. Býst
hún við fjölmenni á Þorláksmessu
en þá verður opið til kl. 10 um
kvöldið og fjölbreytt dagskrá.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n