Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 21.12.2006, Blaðsíða 24

Fjarðarpósturinn - 21.12.2006, Blaðsíða 24
24 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 21. desember 2006 Þökkum árið sem er að líða Gleðileg jól Við kunnum að meta eignina þína! Senn er aðventan á enda og nú styttist í jólin. Á jólunum tökum við á móti jólaljósinu, Jesú Kristi, sem fæddist fátækt barn í Betlehem. Jólahátíðin er helguð fæðingu hans um víða veröld. Þannig heitir jólahátíðin t.d. „Christ-mass“ á ensku, eða Krists-messa. Á Krists-messu sláum við upp veislu til að fagna ljósinu sem Guð sendi í myrkur heimsins. Um leið fögnum við því eins og forfeður okkar að hið mikla himinljós, sólin sem Guð skapaði, fer aftur hækkandi á himinhvolfinu og nú er í vænd- um bjartari tíð þegar myrkrið mun víkja. Á aðventunni undirbúum við jólin sem eru í vændum. Og þess vegna er aðventan full af gleði, tillhlökkun, eftirvæntingu og spennu sem fer sífellt vaxandi þegar nær dregur. Á aðventunni ætti okkur líka gjarnan að gefast tækifæri til þess að undirbúa okkur andlega undir hátíðina. Það er auðvitað margt sem þarf að gera á aðventunni. Það þarf að baka og taka til og kaupa jólagjafir, skrifa og senda jóla- kort og huga að jólamatnum. Svo þarf að kaupa jólafötin og kannski eitthvað jólaskraut og þannig mætti lengi telja. Allur þessi undirbúningur getur verið skemmtilegur, ef við látum hann ekki fara út í öfgar. Með hóf- stillingu verður undirbúningur- inn undir komu jólanna ánægju- legur og gefandi. Á Spáni er frægur staður sem heitir Santíago eftir einum helgasta dýrlingi Spánverja, heilögum Jakob, eða St. Jakob. Á miðöldum var Santíago einna mest heimsótti pílagrímastaður hins kristna heims, næst á eftir sjálfri Rómarborg. Til þess að komast til Santíago urðu píla- grímar oft að leggja á sig langt og strangt og hættulegt ferðalag. Santíagó liggur í 10 daga göngu- fjarlægð frá landamærum Frakklands og Spánar. Allir pílagrímarnir urðu að fara yfir þessi landamæri, því aðrar leiðir lágu þá ekki á hinn helga stað. Þegar komið var að landa- mærunum var það siður píla- gríma að búa til litla krossa áður en síðasti hluti göngunnar hæf- ist. Hver pílagrími bjó til einn kross fyrir sig. Krossinn skyldi gerður úr einhverju sem píla- gríminnn hafði með sér frá heimalandi sínu. Á landamær- unum fyrrnefndu átti hann að skilja krossinn sinn eftir. Kross- inn táknaði allt það er píla- gríminn sá eftir að hafa gert í lífinu, allar áhyggjur hans og annað er gerði honum þungt um hjartaræturnar. Þetta átti hann sem sagt að skilja eftir og halda síðan léttur í bragði og glaður í lundu til fagnaðarins sem beið pílagrímana í Santíago. Á vissan hátt er aðventan eins og þessi pílagrímsganga píla- grímana sem héldu til Santíagó. Það eru margar áhyggjur, sorgir, og mistök sem við hvert og eitt berum eins og krossa með okkur í gegnum lífið. Aðventan gefur okkur tækifæri til að skilja þessa krossa okkar eftir og ganga léttari í bragði í átt að hinu bjarta ljósi jólanna. Í því felst undirbúningur aðventunnar umfram allt annað. En það er okkar sjálfra að grípa tækifærið til að hreinsa til í sálarkytrunni. Og þá munum við með léttu hjarta eignast heilög jól. Guð gefi þér gleðileg jól. Jólahugvekja Sr. Þórhallur Heimisson, prestur í Hafnarfjarðarkirkju: Með ljós í hjarta Með hófstillingu verður undirbúningurinn undir komu jólanna ánægjulegur og gefandi. Lj ós m .: S ig ur jó n P ét ur ss on Bæjarbúar hafa margir tekið eftir spjöldum með myndum af íslensku jólasveinunum á Strand- götunni. Það er listamaðurinn Jean Antoine Posocco sem hefur gert þessar myndir en persónurnar eru teknar úr myndasögubókinni Rakkarapakk sem kom út um síðustu jól. Má sjá nokkrar mynd- anna úr bókinni á sýningu í Hafn- arborg. „Ég fór í sumar á fund Marínar menningarfulltrúa með þessa hugmynd til að lífga upp á mið- bæinn og var henni vel tekin og þetta er afraksturinn,“ segir Jean sem er með vinnustofu á Strand- götu 11 og hefur starfað sem myndlistarmaður síðan 1989. Jólasveinar á ljósastaurum Fjölmörg heimili landsmanna munu ilma af kæstri skötu á Þorláksmessu og fisksalar bæjar- ins eru tilbúnir með mikið magn af úrvals skötu við allra hæfi ásamt hamsatólg. Skatan tilbúin Ágúst Tómasson, fisksali sagði skötuna í ár mjög góða. Lj ós m .: S m ár i G uð na so n

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.