Fjarðarpósturinn - 17.04.2008, Síða 2
Með sinn sérstaka stíl
Skátakórinn býður til afmælistónleika í
tilefni af tíu ára starfsafmæli sínu í húsi
Rauða Krossins, Strandgötu 24 á
laugardaginn kl. 15. Á efnis skránni
spann ar brot af því besta sem kórinn
hef ur flutt á ferli sínum og saman -
stendur af skátalögum, þjóð lögum,
dægur lögum, popptónlist og söng -
leikjalögum. Stjórnendur: Kirstín Erna
Blön dal og Örn Arnarson og hljóm -
sveitina skipa þeir: Jóhann Hjö rleifs -
son, trommur, Jón Rafns son, bassa,
Skarp héðinn Þór Hjart ar son, hljóm -
borð og Örn Arnar son, gítar. Að -
gangseyrir er kr. 500 en ókeypis er fyrir
börn.
Síðasta sýningarhelgi
Um helgina er síðasta sýningarhelgi
100 ára afmælissýningarinnar í
Hafnarborg.
Sænsk og spænsk í Bæjarbíói
Á laugardaginn kl. 16 sýnir Kvik -
myndasafn Íslands sænsku kvik -
myndina Elvira Madigan.
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 17. apríl 2008
Útgefandi: Keilir ehf. útgáfufélag, kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Nú hafa „sjálfboðaliðar“ hreinsað stóran hluta
bæjarins í átakinu Umhverfisvaktinni. Sjaldan
hef ur bærinn verið svo laus við drasl svona
snemma vors og ber það að þakka. Þá er bara
komið að næsta skrefi, að það sem þessir hópar ná
ekki að gera verði gert af starfsmönnum bæjarins
eða verktökum. Búið er að sópa götur víða um
bæinn en gangstéttar og bílastæði eru víða ein
sandhrúga og nauðsynlegt er að þessi svæði verði
hreinsuð. Þar geta bæjarbúar lagt lið með því að
taka fram strákústinn og sópa fyrir utan hjá sér, sópa þar sem tæki ná
ekki til og sópa undan bílum sínum ef þeir standa við götu eða sjá til
þess að hann sé ekki fyrir þegar hreinsað er. Ég hef áður þrýst á
þátttöku bæjarbúa við hreinsun bæjarins og geri enn þó ég kalli á
miklu meira framlag og skipulegra frá bæjaryfirvöldum. Þegar ekið
er um bæinn, gengið eða hjólað um stíga má víða sjá skemmdir
vegna veðrunar, snjómokstur eða að elli kerling hefur sett svip sinn
á. Skipulega þarf að taka á svona málum og það hlýtur að vera orðið
tímabært að skipta bænum upp viðhaldssvæði sem ákveðinn hópur
ber ábyrgð á. Mætti verðlauna þann hóp sem stendur sig best. Af
nógu er að taka, brotnir kantsteinar, brotnar gangstéttar, holur í
grasflötum eða hjólför, tré sem þarf að snyrta og margt fleira. Það eru
smáatriðin sem gera bæinn snyrtilegan. Þá má vanda betur til við
malbikun gatna og vega og benda má á Kaldárselsveginn sem til
allrar blessunar hefur verið malbikaður. En því miður er frágangur
kanta skelfilegur og vonandi er það vegna þess að það náðist ekki í
fyrra en þá er lag að gera það með hækkandi sól.
Allt sem vel er gert kunna bæjarbúar að meta en því miður tökum
við góðum hlutum sem sjálfsögðum og bendum á það sem betur má
fara. Guðni Gíslason
www.hafnarfjardarkirkja.is
Sunnudagur 20. apríl:
Guðsþjónusta kl. 11
Barn borið til skírnar
Prestur: sr. Þórhallur Heimisson
Kantor: Guðmundur Sigurðsson. Barbörukórinn syngur
Sunnudagaskóli
á sama tími í Hásölum og í Hvaleyrarskóla
Víðistaðakirkja
Sunnudagurinn 20. apríl
Sunnudagaskólinn kl. 11.00
Skemmtileg stund fyrir börn á öllum aldri
Messa kl. 13.00
Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur
Kyrrðarstundir á miðvikudögum kl. 12.00
Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
Opið hús fyrir eldri borgara
á miðvikudögum kl. 13.00
Spil, spjall og kaffiveitingar
Foreldrastundir á fimmtudögum kl. 13.00
Gefandi samvera fyrir heimavinnandi foreldra.
www.vidistadakirkja.is
Verið velkomin!
Bragi J. Ingibergsson,
sóknarprestur
Allir velkomnir
í kaffi hjá Sörla.
3. Landsbankamótið
verður á Sörlavöllum
helgina 18.-19. apríl kl. 14
Á þriðjudaginn kl. 20 sýnir Kvik -
mynda safnið spænsku dansmyndina
Flamenco (1995) eftir Carlos Saura.
Myndin sýnir 13 mismunandi flam -
enco dansa án nokkurra truflana frá
flóknum hreyf ingum myndavélar eða
sögu þræði.
Útskriftarhópur 1987
Laugardaginn 19. apríl nk. mun út -
skrift arhópur 1987 frá Öldutúns skóla
(fædd 1971) koma saman á Gafl -
inum við Dalshraun til að borða sam -
an og eiga skemmtilega kvöld stund
við minningar frá skóla ár unum. Hóp -
urinn lét til sín taka á þeim tíma,
stund aði námið af kappi og kraft -
mikið félags lífið í Öldutúnsskóla með
leiklist og tónlist áberandi. Hópurinn
gerði kvik myndina „Í Öldutúni“ og hin -
ir sívin sælu „Túnfiskar“ voru stofn aðir
á þessum árum. Tímanum í skólan um
lauk síðan með ógleym anlegri út -
skriftar ferð til Hollands vorið 1987.
Húsið verður opnað klukkan 19.30.
Afmælistónleikar Tríós
Reykjavíkur
Tríó Reykjavikur efnir til 20 ára af -
mæl is tónleika sunnudaginn 20. apríl
kl. 20. Tón leik arnir munu hefj ast á
verki eftir Þorkel Sigur björnsson,
verkið ber heitið Hafnar borgar kvar -
tettinn og er fyrir 2 fiðlur og 2 selló.
Það eru systurnar Pálína og Margrét
Árna dætur sem flytja verkið ásamt
fyrr verandi kenn urum sínum Guð -
nýju og Gunnari. Hafliði Hallgrímsson
tónskáld hefur samið sérstakt verk,
Memo ra bilia, í tilefni þessara tíma -
móta með styrk frá Hafnar fjarðarbæ.
Á síðari hluta tónleikanna verður á
dagskrá eitt glæsilegasta píanótríó
allra tíma eftir rússneska tónjöfurinn
Piotr Ilich Tchaikowsky.
Bubbi í Bæjarbíói
Bubbi Morthens verður með tónleika
í Bæjarbíói á sumardaginn fyrsta kl.
20.30. Langt er síðan Bubbi hefur
leikið á tónleikum í Hafnarfirði og því
kærkomið fyrir bæjarbúa að geta
notið tónlistar Bubba á tónleikum.
Bubbi verður einn á sviðinu en á
efnisskránni verður blanda af gömlu
og nýju efni, klassískir Bubba -
tónleikar eins og hann hef ur haft þá í
gegn um tíðina. Það er hafnfirska um -
boðsskrifstoan Prime sem stendur
fyrir tónleikunum og má jafnvel
vænta fleiri tónleika í Bæjarbíói. Miðar
á tónleika Bubba verða seldir við
innganginn og á midi.is