Fjarðarpósturinn - 17.04.2008, Qupperneq 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 17. apríl 2008
Opið hús í kvöld
hjá Stangaveiðifélagi Hafnarfjarðar að
Flatahrauni 29.
Kynning á Nielsen veiðivörunum sem seldar
verða með góðum afslætti.
Húsið opnað kl. 20.
Heitt á könnunni – Allir velkomnir
www.svh.is
gjafir
fríar prufur
Elma s. 846 6447 – 555 4750
www.betralif.am
Dansleikir félagsins eru haldn -
ir að jafnaði þriðju hverja viku í
Hraunseli, félagsheimili Félags
eldri borgara, Flatahrauni 3. Þar
koma fram ýmsar hljómsveitir
sem leika bæði gömlu og nýju
dans ana. Dansinn er einn af fjöl -
mörgum þáttum félagsinsog nýt -
ur sívaxandi vinsælda, enda holl
og góð hreyfing.
Dansleikina sækja líka félagar
úr öðrum sveitarfélögum og
bjóðum við þá hjartanlega vel -
komna. Jónína sér um góða
þjónustu við dansgesti og dans -
gólf ið er stórt og gott. Næsti
dans leikur er síðasta vetrardag
23. apríl og sá síðasti á vorönn er
9. maí.
Öflugt félagsstarf Félags eldri borgara
Dansinn dunar í Hraunseli
Dans nefnd f.v.Elín Kristbergsdóttir, Gísli Engilbertsson, Hanna Friðjóns dótt ir,
Sveinbjörn Guðbjarnason, Sigríður Magnúsdóttir og Jóhann Smári Jó hannes -
son. Sitjandi: Margrét Guðmundsdóttir, formaður og Kolbrún Leósdóttir.
Hafnarfirðingum blæðir þessa
dagana. Ákvarðanafælni meiri -
hlut ans í Hafnarfirðir varð til
þess að eitt stórt apríl gabb var
tilkynnt 1 apríl. Hafn firðingar
vökn uðu við þann
vonda draum að bæjar -
stjóri Hafnar fjarðar
tilkynnti um þriggja
milljarða króna auka -
lán sem bærinn hyggð -
ist taka. Margir hverjir
héldu að þetta apríl -
gabb yrði blásið af
daginn eftir, en annað
kom í ljós. Eftir góð -
ær ið sem hefur ríkt í
þjóð félaginu er ótrú legt að
skuldir bæjarins séu að aukast á
sama tíma sem bestir möguleikar
hefðu verið að minnka skuldir.
Ákvarðanafælni Sam fylk ing -
ar innar hefur kostað Hafn firð -
inga milljarða króna. Til stóð að
bærinn fengi átta milljarða fyrir
hlut bæjarins í Hitaveitu Suður -
nesja. Ekki var gengið að því til -
boði, önnur tækifæri hafa einnig
litið dagsins ljós en ákvarðana -
fælnin sagði til sín í þeim málum
einnig.
Sú saga sem verður skráð um
Hafnarfjörð á einum mesta
góðæristíma eftir seinna stríð er
sú að hagstjórnin hafi
gleymst. Fjár hags áætl -
un Hafnarfjarðar fyrir
2008 er nú þegar orðið
ómerkt plagg. Nú
verða menn að setj ast
niður og hugsa um
hvort hag bæjarins sé í
raun borgið innan raða
núverandi meiri hluta.
Einn ig má benda á að
líklega væru fjármál
bæjarins ekki svona slæm ef
bæjarbúum hefði borið gæfa til
að samþykkja í maka lausri at -
kvæðagreiðslu Samfylk ingar inn -
ar sl. vor að stækka álver ið í
Straums vík. Einnig virðist ríkis -
stjórnin vera að smitast af sömu
ákvarðana fælni og er að finna í
meirihluta bæjar stjórnar.
Höfundur er formaður Félags
ungra Framsóknarmanna í
Hafnarfirði.
Aprílgabb Samfylk -
ingar innar í Hafnarfirði
Hlini Melsteð
Jóngeirsson
Sýningunni 100 hafnfirskir
lista menn 2008 í Hafnarborg
lýkur um helgina. Sýningin er
haldin í tilefni af 100 ára afmæli
Hafnar fjarðarkaupstaðar og inni -
heldur nýrri myndir starf andi
lista mann a sem hafa tengsl við
Hafnarfjörð. Það er vel þess virði
að skoða sýninguna enda margt
að sjá og fjölbreytt og allir ættu
að geta fundið eitthvað fyrir sinn
smekk á sama tíma og þeir kynn -
ast öðrum straumum og stílum í
listinni.
Sl. fimmtudag hafði Gunn -
hildur Þórðardóttir, upplýsinga -
full trúi safnsins, leiðsögn um
sýninguna en safnið hefur boðið
upp á slíka leiðsögn í vetur.
Leið sögnin gaf nýja sýn á verkin
og ekki síst höfundana enda
Hafn firðingar forvitnir um ætt -
erni og tengsl fólks í bænum.
Sýningin spannar málverk,
vatns litamyndir, ljósmyndir,
textíl verk, leirmuni og högglist
og listamennirnir eru á öllum
aldri, þeir elstu eru Eiríkur
Smith, Jón Gunnarsson, Sigrún
Guðjónsdóttir og Sigurbjörn Ó.
Kristinsson sem stunduðu list -
nám sitt fyrir og um miðja síð -
ustu öld en yngstu listamennirnir
á sýningunni hafa nýlokið námi
og eru að hefja sinn feril.
Frægastur þeirra allra er óhikað
Ólafur Elíasson sem sýnir loft -
myndir í 48 mynda vetrarseríu.
Á sýningunni má sjá á
skemmtilegan hátt hvernig listin
og sagan eða þjóðfélagsrýnin
spila saman, m.a. í verki Öldu
Sigurðardóttir sem sýnir myndir
af barnabörnum Björns á Sjónar -
hóli. Í tölvu framan við verkð
geta gestir leikið sér við að raða
saman mismunandi and lits -
hlutum þessarra einstaklinga og
fá út ný andlit eða sjá hversu líkir
sumir eru.
Fjölbreytt sýning í Hafnarborg
Sum verkin má handfjatla eins og þetta verk Sigríðar Erlu Guðmundsdóttur.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Gunnhildur Þórðardóttir við verk Öldu Sigurðardóttur, 4. f.v.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Þann 2. júlí á sl. sumri var und -
ir ritaður samningur milli Hafnar -
fjarðarbæjar og Orkuveitu
Reykja víkur (OR) um
hugs anlega sölu á
eignarhlut bæjarins í
Hitaveitu Suðurnesja til
Orkuveitunnar. Sam -
kvæmt samn ingn um
hafði bæjarstjórn frest
til síðustu áramóta að
taka ákvörðun um sölu.
Bæjarfulltrúar voru
sammála um að skoða
þessi mál gaum gæfi -
lega og afla allra nauðsynlegra
gagna. Unnið var verðmat á
eign ar hlut bæjarins og teknar
upp viðræður við OR um mat á
vatns- og fráveitu bæjarins og
mögu legum samlegðaráhrifum
þeirra með OR.
Á sumar- og haustmánuðum
var á engan hátt sjálfgefið, miðað
við þær upplýsingar sem þá lágu
fyrir og þær aðstæður sem voru
uppi í samskiptum orkufyrir -
tækja og sveitarfélaga á suð -
vestur horninu, að Hafnar fjarðar -
bær tæki þá ákvörðun um að
selja hluta eða stærstan hluta
eignar sinnar í Hitaveitu Suður -
nesja. Eftir ítarlega yfirferð mála
sem áður var lýst, úttekt á verð -
mati eigna og formlegt sam starf
við nágrannasveitarfélög um
stofnun Suðurlinda, höfðu skap -
ast þær aðstæður að full sam -
staða myndaðist í bæjar stjórn um
sölu á umræddum eignar hlut.
Að reikna barn í vinnukonu
Samfylkingin hefur alla tíð
lagt ríka áherslu á breiða og
almenna samstöðu
bæj arstjórnar og
bæjar búa um þetta
mikilvæga mál. Það er
vinnulag sem Sam -
fylkingin hefur boðað
og staðið fyrir. Því var
á engan hátt hægt að
taka undir ótímabæra
tillögu Sjálf stæðis -
flokks ins í september
um málið. Engir út -
reikn ingar lágu þá fyrir né var
yfirferð málsins lokið. Einstakir
reiknimeistarar Sjálf stæðis -
flokks ins geta reiknað sig fram
og aftur í þessum málum líkt og
þeir hafa gert í boðskap sínum
um glórulausar einka fram -
kvæmdir á liðnum árum.
Nær væri að bæjarfulltrúar
Sjálf stæðisflokksins beindu
kröftum sínum að því að þrýsta á
um að flokksfélagar þeirra í
Reykjavík sem fara með stjórn
borgar innar og Orkuveitu
Reykja víkur standi við þá samn -
inga sem þeir hinir sömu óskuðu
eftir gera við bæjaryfirvöld í
Hafnar firði á sl. sumri. Það
stendur ekki uppá bæjaryfirvöld í
Hafnarfirði að ljúka þeim við -
skiptum með réttum og lög -
mætum hætti, enda full samstaða
um málið í bæjarstjórn.
Höfundur er formaður
bæjarráðs.
Vönduð vinnubrögð og
breið samstaða
Guðmundur Rúnar
Ólafsson